Fréttablaðið - 06.06.2020, Page 79

Fréttablaðið - 06.06.2020, Page 79
Allar nánari upplýsingar á Verð á mann frá 125.000 kr.Komdu í sólina! ELDRI BORGARAR! Ferðaskrifstofa eldri borgara gengst í samstarfi við Spánarheimili fyrir vikulegum ferðum til Costa Blanca, frá 2. október til 14. nóvember. Flogið verður í beinu flugi til Alicante og dvalið í glæsilegum þriggja herbergja íbúðum við Torrevieja sem staðsettar eru mjög miðsvæðis, eða við hlið Zenia Boulevard verslunarmiðstöðvarinnar í La Zenia hverfinu. Hægt verður að bóka eina viku í senn eða fleiri og allt að fjórir geta deilt íbúð saman. Allar íbúðir eru á jarðhæð með fullbúnu eldhúsi, sjónvarpi, interneti, tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og þvottahúsi með þvottavél og þurrkara. Sérinngangur er í allar íbúðir og verönd beint út frá stofu með stólum og sólbekkjum. Sameiginlegur afgirtur garður liggur að öllum íbúðum, ásamt sameiginlegri sundlaug sem stendur gestum til boða. Boðið er upp á skoðunarferð til Cartagena í samstarfi við Íslendingafélagið á Costa Blanca, en innifalin í verðinu er ein ferð á mann. Umsjónarmaður ferðanna er Gísli Jafetsson og tekur hann á móti hópum á flugvellinum og verður innan handar meðan á dvöl stendur. Setrið, samkomustaður Íslendingafélagsins, verður opið ferðalöngum en þar er dagskrá nánast alla daga vikunnar. Þeir sem vilja fara í golf geta valið úr fjölda valla skammt frá og aldrei í meira en10 mín. akstursfjarlægð. Hægt er að ferðast með golfsett gegn aukagjaldi, en einnig er hægt að leigja sér golfsett á hagstæðu verði. Vikulegar ferðir til Costa Blanca frá 2. október til 14. nóvember 2020* Gisting í glæsilegum íbúðum á Torrevieja þar sem fyrsta flokks aðbúnaður er í boði. Niko ehf | sími: 783-9300 - 783-9301| Email: hotel@hotelbokanir.is | Kt. 590110-1750 * Allar brottfarir eru háðar núverandi flugáætlun sem kann að breytast.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.