Fréttablaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 84
SAFNAGEIRINN Í
LISTUM HEFUR ÞVÍ
MIÐUR EKKI BORIÐ GÆFU TIL
AÐ STANDA SAMAN UM SAM-
EIGINLEGA HAGSMUNI SÍNA.Leikminjasafn Íslands var stofnað árið 2003 eftir nokkurn aðdraganda. Tilgangur þess var að skrá sögulegar minjar um íslenskar sviðslistir,
rannsaka þær og miðla þeim áfram
með nútímalegum hætti. Nú hafa
orðið vatnaskil í sögu safnsins, sem
var lagt niður fyrir ári, en þá tóku
Landsbókasafn Íslands og Þjóð
minjasafn Íslands við hlutverki
þess, safnkosti og eignum. Kol
brún Halldórsdóttir var stjórnar
formaður Leikminjasafnsins og
annaðist rekstur þess síðustu árin.
Stofnendur Leikminjasafnsins áttu
sér þann draum að veglegt leik
minjasafn að erlendri fyrirmynd
yrði til hér á landi. Kolbrún segir að
sá draumur sé að dofna.
Þrefalt hlutverk
Spurð um tilurð Leikminjasafnsins
á sínum tíma segir hún: „Við í sviðs
listageiranum vildum að það yrði
stofnað faglegt og metnaðarfullt
safn sem hefði þrefalt hlutverk. Í
fyrsta lagi átti það að sinna söfnun
og koma þannig í veg fyrir að það
glötuðust minjar um leiklistar
starf á Íslandi. Í öðru lagi að stuðla
að rannsóknum og í þriðja lagi að
miðla arfinum með nútímalegum
hætti, bæði með sýningahaldi og
gegnum öfluga heimasíðu.
Það sem er spennandi við safna
geirann er þetta þríþætta hlutverk
safna, sem á jafnt við um söfn á
listasviðinu sem öðrum sviðum.
Það hefur enga þýðingu að safna
bara og setja hluti í geymslu. Það
er heldur ekki fullnægjandi fyrir
fræðimenn og sérfræðinga að
stunda rannsóknir en fá aldrei að
miðla þekkingu sinni. Það er miðl
unin á arfinum sem er svo mikilvæg
og í henni felast ótal tækifæri, ekki
síst á tímum stafrænnar tækni. Við
sem störfuðum fyrir Leikminjasafn
ið, og börðumst fyrir tilveru þess í
tuttugu ár, höfum alltaf skynjað
þessi tækifæri, en okkur tókst ekki
að fá stjórnvöld með okkur í lið.
Þess vegna voru aldrei nægir fjár
munir til að stofna alvöru safn, í
líkingu við þau söfn sem okkur
dreymdi um og eru til í nágranna
löndum okkar.“
Verðmætum bjargað
Spurð hverju Leikminjasafnið hafi
áorkað segir Kolbrún: „Okkur tókst
að bjarga úr geymslum látinna leik
húslistamanna miklum verðmæt
um og koma þeim fyrir í geymslu
húsnæði sem við greiddum háar
upphæðir fyrir á hverju ári. Þannig
tókst okkur að koma í veg fyrir að
ómetanlegur arfur glataðist. Úr
þessum arfi varð svo til efniviður í
á þriðja tug sýninga og viðburða á
20 árum. Þegar litið er yfir þá sögu
og þann fróðleik sem þannig var
miðlað, þá getum við alveg borið
höfuðið hátt.“
Þessi verðmæti eru nú geymd
á heimasíðu safnsins og í Lands
bókasafninu og Þjóðminjasafninu.
„Við keyrðum þangað á annan tug
vörubretta af kössum sem í voru
meðal annars leikhandrit, dag
bækur og úrklippubækur leikhús
listamanna liðinnar aldar. Þar tóku
sérfræðingar Landsbókasafnsins
við og hafa unnið skráningarvinnu
handrita og bóka, ásamt frágangi
einkaskjalasafna af mikilli natni
og fagmennsku. Svo hefur bóka
safn Listaháskóla Íslands líka notið
góðs af.
Við sem vorum í forsvari fyrir
Leikminjasafnið lögðum mikla
áherslu á að ráðinn yrði sérfræð
ingur í sviðslistum inn í Lands
bókasafn, sem myndi starfa með
Þjóðminjasafni og Landsbókasafni
í að miðla þessari þekkingu sem
við höfum um gengna leikhúslista
menn og um sviðslistirnar eins
og þær hafa þróast á Íslandi. Þessi
sérfræðingur er að vísu ekki enn
kominn til starfa, en vonir standa
til að auglýst verði eftir honum með
haustinu.“
Dreifðir fjármunir
Spurð hvort eitthvað bendi til að
leikminjasafn í eigin húsnæði muni
líta dagsins ljós segir Kolbrún: „Það
er ekkert á þessari stundu sem
bendir til að svo verði. Það er í sjálfu
sér dapurlegt en helgast af því að
fjármunirnir í safnageiranum eru
ekki miklir og þeir eru dreifðir.
Safnageirinn í listum hefur því
miður ekki borið gæfu til að standa
saman um sameiginlega hagsmuni
sína. Fyrir nokkrum árum gerði ég
tilraun til að leiða saman krafta
Kvikmyndasafns Íslands, Tón
listarsafns Íslands og Leikminja
safnsins, en þá var enginn vilji til
þess að skoða möguleikana á sam
starfi. Á endanum held ég samt að
þessi söfn hljóti öll að ganga meira
og minna í eina sæng í mjög opnu og
skapandi samstarfi við höfuðsöfnin
okkar. Þannig gæti orðið til faglegt
og metnaðarfullt safn þar sem við
getum heiðrað þá sem gengnir eru
og dregið þeirra arf fram í dagsljós
ið. Slíkt safn gæti aukið þekkingu
og skilning og þar af leiðandi gert
sviðslistir dagsins í dag enn betri.“
Vatnaskil í sögu Leikminjasafns Íslands
Kolbrún Halldórsdóttir segir að með stofnun safnsins hafi ómetanlegur arfur varð-
veist. Landsbókasafn Íslands og Þjóðminjasafn Íslands hafa tekið við hlutverkinu.
„Við getum borið höfuðið hátt,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir sem annaðist rekstur Leikminjasafnsins síðustu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Fimm sýningar verða opnaðar í dag, laugardaginn 6. júní kl. 12, í Listasafninu á Akureyri:
Brynja Baldursdóttir
Sjálfsmynd
Heimir Björgúlfsson
Zzyzx
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Meira en þúsund orð
Samsýning
Hverfandi landslag. Íslenskir og
finnskir listamenn sýna þæfð verk
úr ull.
Snorri Ásmundsson
Franskar á milli
Sunnudaginn 7. júní verður lista
mannaspjall með Jónu Hlíf Halldórs
dóttur klukkan 14 og Önnu Gunn
arsdóttur, sýningarstjóra, kl. 15.
Fimm sýningar í
Listasafni Akureyrar
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Hin árvissa jazzsumartónleikaröð veitingahúss Jómfrúarinnar við Lækjargötu
hefst í dag, laugardaginn 6. júní.
Þetta er tuttugasta og fimmta árið
í röð sem Jómfrúin býður þeim sem
heyra vilja upp á ókeypis sumar
skemmtun á laugardagseftirmið
dögum. Eins og undanfarin ár er
dagskrárgerð og kynning í höndum
Sigurðar Flosasonar. Tónleikar
verða alla laugardaga í júní, júlí og
ágúst.
Á fyrstu tónleikum sumarsins
kemur hljómsveitin Staðlaráðið
fram. Ari Bragi Kárason leikur á
trompet, Sigurður Flosason á saxó
fón, Andrés Þór Gunnlaugsson á
gítar, Þorgrímur Jónsson á kontra
bassa og Einar Scheving á trommur.
Þeir munu flytja fjölbreytta efnis
skrá jazzstandarda. Tónleikarnir
fara fram utandyra á Jómfrúar
torginu. Þeir hefjast klukkan 15 og
standa til klukkan 17.
Sumarjazz í
tuttugasta og
fimmta sinn
Guðmundur Andri Thorsson og félagar hans f lytja efni af sólóplötu hans Ótrygg er
ögurstundin í Hannesarholti klukk
an 16.00 og 20.00 í dag, laugardag.
Þetta eru frumsamin lög og textar
– vísnatónlist, lágvær, hlýleg og ang
urvær. Miðaverð er 3.000 krónur.
Vísnatónlist í
Hannesarholti
Ari Bragi Kárason verður á
Jómfrúnni ásamt félögum.
6 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING