Fréttablaðið - 06.06.2020, Qupperneq 92
Lífið í
vikunni
31.05.20-
06.06.20
ÞETTA ER NÚ BARA
TILKOMIÐ VEGNA
ÞESS HVERSU HRÆRÐUR ÉG ER
YFIR ÖLLUM ÞESSUM ÓTRÚLEGU
VIÐBRÖGÐUM SEM VIÐ FENGUM
VIÐ ÞÆTTINUM OKKAR Í
SKEMMTANABANNINU.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason
hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna settu svip sinn á samkomubannið með því að færa innilokuðum
Íslendingum stuð heim í stofu með
söng og gleði. Heima með Helga sló
svo rækilega í gegn að þjóðin bar sig
nokkuð vel þessi föstudagskvöld
og gleymdi örlitla stund að úti væri
stormur og él. Vilborg Halldórsdótt
ir, eiginkona Helga ásamt völdum
gestum, varð hluti af rútínu landans
á föstudagskvöldum og viðtökurnar
voru miklu betri en Helgi átti von á.
Helgi og Reiðmennirnir ætla að
fara annesja á milli og hitta lands
menn og þakka fyrir ótrúlegar við
tökur síðasta misserið. Félagarnir
tróðu upp um síðustu helgi í Hlé
garði þrjú kvöld í röð, en þar verða
þeir einnig um helgina. Mikill áhugi
var á miðunum sem fóru í sölu í
vikunni.
Þegar leik lýkur í Hlégarði verða
hattarnir settir upp, hnakkarnir á
klárana og þeyst af stað um landið.
Ætla þeir félagar að byrja á Norður
landi og fara á Húsavík, til Akureyrar
og á Siglufjörð dagana 10. til 13. júní.
Næsta stopp er Ísafjörður 19. júní og
svo er það austurlandið: Eskifjörður,
Borgarfjörður eystri, Egilsstaðir og
Vopnafjörður, 25.28. júní.
„Þetta er nú bara tilkomið vegna
þess hversu hrærður ég er yfir öllum
þessum ótrúlegu viðbrögðum sem
við fengum við þættinum okkar í
skemmtanabanninu. Það er ekki
hægt að taka þessu sem sjálfsögðum
hlut. Fyrir bannið vorum við með
dagskrá á prjónunum í Háskólabíói,
sem við urðum að færa fram í ágúst
en það er allt saman löngu uppselt.
Okkur langaði því að fara til þeirra
sem búa lengst frá borginni og eiga
ekki auðvelt með að fara í það ferða
lag.
Þannig að við komum bara til
þeirra og gleðjum og gefum,“ segir
Helgi. Alls verða þetta 14 tónleikar á
30 dögum. „Þetta er umfangsmikið
ferðalag, við erum að fara með alla
hljómsveitina og hluta leikmynd
arinnar og ætlum að skapa þessa
stemningu á öllum stöðunum,
Mikið rosalega hlökkum við til
að sjá framan í sólbrúna Íslendinga,
skælbrosandi og glaða,“ bætir Helgi
við og tilhlökkunin leynir sér ekki.
Miðaverði er stillt í hóf og er það
sama og var í Hlégarði í Mosfellsbæ,
4.990 krónur, en miðasala fer fram á
tix.is. benediktboas@frettabladid.is
Helgi Björns segir
takk við land og þjóð
Helgi Björnsson, sem fékk þjóðina til að syngja og gleyma
samkomubanninu um stund, ætlar að leggja land undir fót til að
þakka viðtökurnar. Hann mun halda 14 tónleika á 30 dögum.
Helgi og Reiðmenn vindanna styttu biðina í samkomubanninu svo um munaði. Viðtökurnar voru mun betri en
þeir áttu von á og vilja þeir þakka öllu landinu fyrir með tónleikaröð. MYND/BJARNI GRÍMSSON
Heima með Helga um landið
6. júní Mosfellsbæ
10. júní Húsavík
11. júní Akureyri
12. júní Akureyri
13. júní Siglufjörður
19. júní Ísafjörður
25. júní Eskifjörður
26. júní Borgarfjörður
27. júní Egilsstaðir
28. júní Vopnafjörður
magnifique
york
ligne
classico
magnifique
york
ligne
lassico
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
SERTA ER OPINBER SAMSTARFSAÐILI
HILTON WORLDWIDE HÓTELKEÐJUNNAR
Nótt fyrir tvo á Hilton Reykjavik Nordica,
ásamt morgunverði og aðgangi að Hilton
Reykjavik Spa, fylgir kaupum á Serta fimm
stjörnu hótelrúmi.
Verðmæti: 36.000 kr.
5 STJÖRNU HÓTELRÚMIN frá Serta eru framleidd til að fullnægja
ýtrustu kröfum. Fjaðrandi botn gefur 5 svæða heilsudýnunni
óvið jafnanlega fjöðrun og stuðning, lúxus yfirdýnan lagast
að þér og þér líður eins og þú svífir. Velkomin í þitt 5 stjörnu
heilsurúm, heima hjá þér – allar nætur – alltaf.
CLASSICO OG YORK eru með Serta Splendid Royal heilsu dýnu
frá Serta. Hún er fimm svæðaskipt pokagormadýna með góðum
stuðningi við bak en mýkra gormakerfi á axla- og mjaðma svæði.
Hægt er að velja um tvo stífleika á dýnunni eftir því hvað hentar
hverjum og einum. Yfirdýnan er millistíf, úr kaldpressuðum
svampi og vinnur vel á móti fjöðruninni í botni og dýnu.
FIMM STJÖRNU
LÚXUS HÓTELRÚM
– HEIM TIL ÞÍN –
Fimm stjörnu Hótel -rúmalínan frá Serta er
kominn aftur og fæst á tilboðsverði í Betra Baki
auk þess að nótt á Reykjavik Nordica ásamt
morgunverði fyrir tvo og aðgangi að Hilton Reykjavik
Spa fylgir kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi.
Tilboðsverð, Vivant stillanlegt: 424.915 kr
Verðdæmi: Vivant stillanlegt 2x80x200 cm (botn, fætur, dýna, yfirdýna og gafl)
Fullt verð: 499.900 kr. (með Hilton Reykjavik Nordica kaupauka 385.000 kr.)
Tilboðsverð, Classico: 296.650 kr
Verðdæmi: Classico 160 x 200 cm (botn, fætur, dýna, yfirdýna og gafl)
Fullt verð: 349.000 kr. (með Hilton Reykjavik Nordica kaupauka 385.000 kr.)
ÁFRAM GRÍN Á ENSKU
Aðstandendur grínklúbbsins The
Secret Cellar hafa verið beðnir
um íslenskt uppistand, fyrst túrist-
arnir eru farnir í bili. Koma á til
móts við þá ósk, en efnið verður þó
aðallega á ensku, eins og fyrr.
LISTALEIÐSÖGN Á HJÓLUM
Á miðvikudaginn var boðið upp á
hjólreiðatúr um Vesturbæ og Sel-
tjarnarnes, þar sem öll helstu úti-
listaverkin voru skoðuð. Verkefnið
er samstarf Listasafns Reykjavíkur,
Hjólafærni á Íslandi og Landssam-
taka hjólreiðamanna.
ICEDOCS Í SUMAR
Heimildamyndahátíðin IceDocs
fer fram á Akranesi í júlí í sumar.
Fimmtudaginn síðasta var haldið
upphitunarhóf á Hlemmur Square.
DANSAÐ Í SUMAR
Í gær stóð Kramhúsið, í samstarfi
við Sumarborgina Reykjavík,
fyrir danstíma á Arnarhóli. Til
stendur að halda útidanstíma
reglulega yfir sumarið, þátttak-
endum að kostnaðarlausu.
6 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð