Mosfellingur - 14.05.2020, Síða 22
- Mosfellingurinn Ágústa Pálsdóttir22
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Það er ævintýri líkast að koma inn í gjafavöruverslunina Evítu í Háholti en þar má sjá fallegar og glitrandi
vörur hvert sem auga er litið. Það þarf að
gefa sér góðan tíma til að skoða úrvalið
en allir ættu að geta fundið sér eitthvað
við hæfi.
Hjónin Ágústa Pálsdóttir og Haukur
Hafsteinsson keyptu verslunina í ágúst
2016 en hún var þá á Selfossi. Ári seinna
fluttu þau hana í Mosfellsbæinn og þau
sjá ekki eftir því enda hæstánægð með
móttökur bæjarbúa.
Ágústa er fædd 12. mars 1966. Foreldrar
hennar eru þau Maj-Britt Kolbrún Haf-
steinsdóttir, verslunar- og skrifstofumaður,
og Páll Halldórsson flugstjóri.
Ágústa á tvö systkini, Hafdísi f. 1964 og
Pál Inga f. 1970 d. 2018.
Dró inn alla villiketti hverfisins
„Ég er alin upp í Reykjavík, Garðabæ og
á Seltjarnarnesi og lék mér úti alla daga.
Ég var víst ansi dugleg við að draga inn á
heimili okkar alla villiketti hverfisins sem
var að sjálfsögðu ekki vel séð,” segir Ágústa
og hlær.
„Ég var mikill bókaormur og las allar þær
bækur sem ég komst yfir. Ég var líka dugleg
að breyta til og skreyta í herberginu mínu,
foreldrar mínir vissu í raun aldrei hverju
þau áttu von á þegar þau gengu inn.
Nýstraujuð rúmföt, ný náttföt og ný bók
á aðfangadagskvöld er falleg og góð æsku-
minning.”
Fluttu til Belgíu
„Þegar ég var fimm ára þá fluttum við
fjölskyldan til Belgíu vegna starfs föður
míns og þar bjuggum við í eitt ár. Við
ströndina í Ostend á ég margar góðar
minningar. Ég man t.d. hvað ég hafði gam-
an af því að safna maríuhænum í körfu,
mér fannst þær svo litríkar og fallegar,”
segir Ágústa og brosir.
Eftir að við fluttum heim aftur þá voru
gerðar tvær tilraunir til að senda mig í sveit.
Ég lét mig hafa það og fór en eins mikill
dýravinur og ég er þá grét ég
mig heim aftur eftir tvær nætur
og þar með var þeim kafla í lífi
mínu lokið.”
Gaman að fljúga með pabba
„Ég hef haft mjög gaman af því að fljúga
með pabba mínum í gegnum tíðina en
hann hefur verið að fljúga bæði á þyrlum
og flugvélum. Við höfum farið í mörg út-
sýnisflugin saman bæði frá flugvellinum á
Tungubökkum og síðar frá Haukadalsmel-
um.
Það hefur verið mikið upplifelsi að fá að
skoða landið sitt frá ólíkum sjónarhornum
og hlusta á fróðleik pabba í leiðinni, þetta
er algjörlega ómetanlegt.”
Alveg hreint frábær ár
Ágústa gekk í Hlíðaskóla,
Flataskóla og Valhúsaskóla en
uppáhaldsfögin hennar voru
lestur og skrift. Eftir útskrift úr gagnfræða-
skóla lá leiðin í Fjölbrautaskólann í Ármúla
þaðan sem hún fór út á vinnumarkaðinn.
„Ég hóf störf hjá Steinari Waage og fór
þaðan yfir í bókaverslunina Ísafold í Aust-
urstræti og svo var ég í 10 ár hjá gleraugna-
versluninni Optical Studio í Smáralind.
Ég sá um veitingasöluna í gamla Golf-
skálanum hér í Mosfellsbæ í þrjú ár. Þetta
voru alveg hreint frábær ár og maður
kynntist mörgu góðu fólki.”
Elskum að vera úti í náttúrunni
Ágústa eignaðist tvíburana Sóldísi Björgu
og Hafdísi Ásu með Óskari Þór Péturssyni
árið 1993 en þau slitu samvistum.
Eiginmaður Ágústu er Haukur Hafsteins-
son starfsmaður hjá Bergá Sandblæstri á
Esjumelum. „Við hjónin höfum mjög gam-
an af því að ferðast og erum búin að gera
mikið af því og erum hvergi hætt. Við erum
útivistarfólk og elskum að vera út í náttúr-
unni og fara í langa og góða göngutúra.
Við höfum einnig mikla ánægju af að
vera með fjölskyldu og vinum í kósýheit-
um heima, elda góðan mat og spjalla. Við
eigum þrjá norska skógarketti sem við
nostrum mikið við og þeir gefa okkur ansi
mikið. Kettir hafa alltaf verið í uppáhaldi
hjá mér eins og æskuminningin um úti-
gangskettina bera glöggt vitni um,” segir
Ágústa og hlær.
Fundum hentugt húsnæði
„Við hjónin keyptum gjafavöruverslunina
Evítu í ágúst 2016 en hún var þá staðsett á
Selfossi, þar rákum við hana í eitt ár. Við
bjuggum í Mosfellsbæ þegar við festum
kaupin svo það var ekkert annað í stöð-
unni en að keyra bara á milli. Við ákváðum
svo á einum tímapunkti að nú væri þetta
komið gott og færðum verslunina um set,
okkur fannst tilvalið að færa hana hingað í
Mosfellsbæinn.
Við vorum svo heppin að finna hentugt
og bjart húsnæði að Háholti 14 og útsýnið
úr gluggunum hérna er alveg dásamlegt.
Það er náttúrlega algjör draumur að vera
svona miðsvæðis í bænum.”
Erum með fjölbreytt vöruúrval
„Við flytjum inn allar okkar vörur sjálf
og erum alltaf á höttunum eftir nýjum og
fallegum vörum. Við Haukur njótum þess
að fara saman erlendis á sýningar, hitta
birgja og njóta lífsins í leiðinni.
Við erum með mjög fjölbreytt vöruúrval
svo það getur verið gott að gefa sér góðan
tíma til að skoða,” segir Ágústa um leið og
hún gengur um búðina og sýnir mér úrval-
ið. „Við seljum allskyns dúllerí og fínerí fyr-
ir falleg heimili og sumarbústaði og erum
eingöngu með vörur sem fást hvergi annars
staðar. Við erum einnig með mikið úrval
skilta í öllum stærðum, gerðum og litum,
með fallegum tilvitnunum á.
Það er gaman að segja frá því að við
fengum nýjan birgja núna í byrjun árs og
er fyrsta sending frá honum komin í hús,
falleg hnífapör og kertaarnar. Þessar vör-
ur urðu svo vinsælar að ég varð að panta
aðra sendingu um hæl sem er á leiðinni til
landsins. Svona getur þetta verið, sumar
vörur hitta algjörlega í mark,” segir Ágústa
og brosir.
Þakklát fyrir móttökurnar
„Viðskiptavinir okkar koma alls staðar að
af landinu og heilu saumaklúbbarnir mæta
hér stundum saman og þá er sko líf og fjör
get ég sagt þér. Móttökur bæjarbúa hafa
verið alveg hreint yndislegar og fyrir það
erum við afar þakklát. Það er búið að vera
mikið að gera frá því við opnuðum hér.
Það er vissulega búin að vera skrítin
staða í þjóðfélaginu í þessu Covid-ástandi
en við höfum ekki fundið fyrir neinum
samdrætti. Það hefur verið mikið rennirí
hjá okkur alla daga og mikið um pantanir.
Fólk er greinilega að nýta tímann vel við að
breyta, bæta og punta heima hjá sér.
Við verðum öll að halda áfram að vera
bjartsýn, við komumst í gegnum þetta
ástand með jákvæðni og hækkandi sól og
þá fara hjólin að rúlla aftur,” segir Ágústa
að lokum og með þeim orðum kvöddumst
við.
Ég var dugleg að breyta
til og skreyta í herberginu
mínu, foreldrar mínir vissu í raun
aldrei hverju þau áttu von á
þegar þau gengu inn.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
HIN HLIÐIN
Það besta við Ísland?
Öryggið og náttúran.
Besti helgarmaturinn? BBQ eða
humarsalat a la Haukur maðurinn minn.
Klukkan hvað ferðu á fætur?
Oftast um kl 07:00
Besta ilmvatnið?
Chic frá Carolina Herrera.
Hvað hefur haft mest áhrif á líf þitt?
Það er ansi margt, að hafa eignast stelp-
urnar mínar, að hafa kynnst manninum
mínum, að flytja í Mosó, kaupa Evítu og
margt annað.
Hvað gleður þig mest?
Fjölskyldan, vinirnir, starf mitt,
kisurnar mínar og súkkulaði.
Hvaða litir lýsa þér best?
Svartur og hvítur.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Búðarkona eða dýralæknir.
Hjónin Ágústa og Haukur á góðviðrisdegi árið 2019.
Gott að gefa sér góðan tíma
Ágústa Pálsdóttir eigandi gjafavöruverslunarinnar Evítu er hæstánægð með móttökur bæjarbúa
tvíburasysturnar
sóldís og hafdís
systurnar ágústa og hafdís
ágústa eins árs