Spássían - 2011, Blaðsíða 2

Spássían - 2011, Blaðsíða 2
 2 Þetta tölublað hefur hlotið útgáfustyrk úr Bókmenntasjóði Hvert erum við að fara? Hvar erum við? Hvar vorum við? Er einhver með kort? Í jólabókunum í ár má víða finna fólk sem virðist ekki vita hvaðan það er að koma og hvert það er að fara. Eins og endranær líta margir yfir farinn veg og reyna að finna fótfestu í fortíðinni og náttúrunni en í okkar eftirhrunsheimi er allt í lausu lofti. Í þessari ótryggu veröld fara skrímslin á kreik. Grótesku og óhugnað, limlestingar og flæðandi blóð er að finna í hverju verkinu á fætur öðru – jafnvel í barna- og unglingabókum, eins og nýr íslenskur hryllingsbókaflokkur ber merki. Persónur Steinars Braga stíma beina leið upp á hálendið en finna þar aðeins eyðimörk, drauga fortíðar og skrímslið í sjálfum sér. Í bók Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Allt með kossi vekur, má líka finna skrímsli og eyðilönd en persónurnar þar virðast eiga sér einhvers konar útleið í fantasískum hliðarveruleika. Á svipaðan hátt er sköpunin útgönguleið úr fasísku framtíðarsamfélagi í Trúir þú á töfra? eftir Vigdísi Grímsdóttur. Oddný Eir Ævarsdóttir leitar á hinn bóginn að jarðsambandi, virðist telja tíma til kominn að láta nú hendur standa fram úr ermum og er tilbúin að taka þátt í að teikna upp kort til að vísa veginn: „Ég er búin að vera að teikna mér til skemmtunar. Reyni að teikna hús. Gerði líka eina tilraun til að teikna upp samfélagsskipan, lífræn tengsl sjálfstæðra klasa. Veit nú ekki hversu skýrandi sú mynd er enda metnaðarfullt verkefni“, segir hún í bókinni Jarðnæði. Því verki verður væntanlega ekki lokið í bráð. Af þessu mætti ráða að við stefnum þungbúin og kvíðin inn í dimmasta tíma ársins, með fortíðina hangandi eins og möru yfir okkur – og að einhverju leyti er það eflaust rétt. En höfundar eru einnig duglegir að minna okkur á hvaða vopnum má beita til að lifa ferð okkar inn í framtíðina af. Hæfilegt kæruleysi, húmor og hugrekki, segir sögumaðurinn í verki Guðrúnar Evu. Að víkka sjóndeildarhringinn getur líka komið í veg fyrir að við týnum okkur í eigin nafla, eins og kemur fram í bók Sigrúnar Davíðsdóttur, Samhengi hlutanna. Þar eru bækur á borð við Ríkisfang: Ekkert eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur ómetanlegar, en hún gefur ekki aðeins innsýn í tilveru sem okkur þykir yfirleitt framandi, heldur nýja sýn á okkar stöðu í heiminum. Og þótt bók Rögnu Sigurðardóttur, Bónusstelpan, minni okkur á að leitin að skyndilausnum geti afvegaleitt okkur sýnir hún líka að af og til má með opnum huga finna nýja von á ólíklegustu stöðum. Undarlegt ferðalag norra na husid e -- lifandi menning FJÖLBREYTT UMRÆÐA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.