Spássían - 2011, Qupperneq 7
7
standi upp úr nefnir hún eftir smá umhugsun Ljósu eftir
Kristínu Steinsdóttur. „Við lásum hana áður en við heimsóttum
annan leshring á Akureyri í vor. Við vorum allar svo vel
lesnar að fundurinn varð sérlega skemmtilegur. Það var líka
ógleymanlegt þegar við tókum eitt sumarið fyrir Dalalíf eftir
Guðrúnu frá Lundi. Við vorum frekar tregar til að lesa hana
en það var svo alveg yndisleg upplifun og Guðrún frá Lundi
reyndist algjör snillingur. Við féllum kylliflatar fyrir henni og
elskum allar þessa sögu. Þegar einni bókinni lauk urðum við að
fá næstu bók strax, það var ekki hægt að hætta. Í kjölfarið
höfum við gefið mörgum Dalalíf og auglýst bækurnar grimmt,
enda vonum við að þær fari að koma út aftur.“
SKYLDA AÐ VERA Í NÁTTFÖTUNUM
Þegar hópur kvenna hittist svo oft og reglulega um margra
ára skeið er óhjákvæmilegt að það myndist sérstök tegund
vináttu. „Við höfum náð svo góðum tengslum að það er
alveg ómetanlegt. Við höfum fylgst að í gegnum barneignir,
brúðkaup og allt sem getur gerst í lífinu á tuttugu árum. Við
vorum í upphafi sex en ein er dáin. Þegar hún fékk krabbamein
breyttust fundirnir um nokkurra mánaða skeið og þetta varð
hálfgerður vídeóklúbbur. Hún gat ekki lesið lengur svo við
horfðum bara allar saman á kvikmyndir. Við tengdumst enn
sterkari böndum við þetta. Leshringurinn er því orðinn mjög
lokaður og náinn hópur og við hleypum ekki nýjum að.“
Svo langri vináttu fylgja líka margar hefðir og ýmis sérviska.
Guðrún nefnir sem dæmi að á afmælisdögum leggist þær í að
semja brag. Þá sé komið víða við og jafnvel vitnað í bækur
sem hafa verið lesnar. „Svo syngjum við í kór, allar klæddar
í eins náttföt frá Victoria‘s Secret. Í sumarbústaðaferðum,
berjaferðum og öðru slíku er líka alveg skylda að vera í þessum
náttfötum. Yfir höfuð er þessi félagsskapur alltaf gefandi og
umræðuefnið margvíslegt, uppörvandi og skemmtilegt.“
Handhafi Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011
Gyrðir Elíasson, sem veitti Bókmenntaverðlaun um
Norður landaráðs viðtöku 2. nóvember síðast liðinn,
sendir frá sér tvær þýddar gersemar á árinu: Ljóða
safnið Tunglið braust inn í húsið og sagnasafnið
Hvernig ég kynntist fiskunum eftir Tékk ann Ota
Pavel. Gagnrýnendur eru á einu máli, báðar bæk
urn ar fá hvar vetna verðskuldað lof og bestu með
mæli. Til hamingju Gyrðir!
Gyrðir Elíasson
www.uppheimar.is
Ljósmynd © Einar Falur Ingólfsson.
Einar Kárason / Morgunblaðið
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn
Árni Matthíasson / Morgunblaðið
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir / Fréttablaðið
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn
Lespíurnar syngja í kór klæddar
náttfötum frá Victoria’s Secret