Spássían - 2011, Side 11

Spássían - 2011, Side 11
11 sem mæta má í ótal glæpasögum). Aðrar persónur fá þó meiri dýpt og má þá helst nefna bræðurna Arnar og Rafn. Bræðrasamband þeirra er sannfærandi en um leið táknrænt fyrir þann vanda sem við stöndum frammi fyrir sem þjóð þegar fara á fram uppgjör í íslensku kunningjasamfélagi. Allir þekkja alla og eru margflæktir hver í annars mál. Togstreitan sem skapast er kunnugleg en „lausnin“ í tilviki bræðranna helst til einföld. Í heildina má segja að miðað við risavaxið verkefnið sem Sigrún Davíðsdóttir tekst á hendur, að leitast við að sýna samhengi hlutanna í íslenska efnahagshruninu í formi hefðbundinnar spennusögu, takist henni nokkuð vel upp. Hún heldur sig algjörlega á jörðinni í raunsærri samfélagsgreiningu og –ádeilu. Það sama á hins vegar ekki við um aðrar bækur sem hér eru til umfjöllunar. Þar er hrunið oft kveikjan að fantasíu sem lifir algjörlega á eigin forsendum. SAGA ÞESS SEM HVERFUR Eftir rúmlega þriggja ára stanslausa umræðu um hrunið, þar sem sömu tuggurnar hljóma í eyrum okkar oft á dag, gætir nokkurrar þreytu hjá lesendum. Höfundar sem ákveða að takast á við þetta efni verða því ekki hvað síst að sigrast á tortryggni þeirra og fordómum. Káputexti Mannorðs um örlög lykilmanns í „íslenska efnahagsundrinu“ er ekki beint hvetjandi. Eftir aðeins nokkurra blaðsíðna lestur verður þó ljóst að höfundinum, Bjarna Bjarnasyni, tekst að nálgast viðfangsefnið á áhugaverðan hátt, með heimspekilegum og stundum persónulegum undirtóni - og smá daðri við vísindaskáldskap. Önnur aðalpersónan freistar þess að kaupa sér nýtt mannorð í kjölfar efnahagshrunsins, en fljótlega kemur í ljós að orðstír er svo órjúfanlegur hluti af lífi og persónu hvers manns að eina leiðin til að öðlast nýtt er að verða einhver annar. Og hér reynist þeim sem peningavaldið hafa ekkert ómögulegt, fremur en á öðrum sviðum. Milligöngumenn, hér í líki brjálaðs vísindamanns, eru ávallt tilbúnir á hliðarlínunni þegar nógir eru aurarnir. Aðgerðin sem er í boði reynist nokkuð einföld og auðskiljanleg bisnessmanni. Hún er einfaldlega vinsamleg yfirtaka á lífi manns sem langar til að hverfa. Helsti kostur Mannorðs og áhugaverðasti flöturinn er sú staðreynd að það eru ekki endilega örlög útrásarvíkingsins sem eru í brennidepli, heldur persónunnar sem hann „yfirtekur“; rithöfundar sem missir lífsviljann. Spurningin „hvers virði er mannorð?“ hefur í raun tvöfalda merkingu. Auðjöfurinn Bjarni Bjarnason. Mannorð. Uppheimar. 2011. frekari vitna við. Þannig rekur Jóhann að sumarið 2006 veittu handhafar forsetavalds Árna Johnsen uppreist æru eftir að hann hafði afplánað fangelsisdóm fyrir fjárdrátt, mútuþægni og önnur afbrot. Ári síðar náði Árni á ný kjöri til Alþingis. Þarna sýnist mér að höfundurinn ætli okkur að lesa milli línanna að handhafar forsetavalds hafi gert klíkubróður greiða. En var það í raun óeðlilegt að brotamaður sem hafði setið inni fengi uppreist æru og mætti vera í framboði til Alþingis? Ætti það sem sagt að vera þannig að dæmdir menn megi ekki bjóða sig fram? Eða var „skandallinn“ kannski frekar sá að Sunnlendingar skyldu kjósa sinn gamla vildarvin í stórum stíl? Einnig þykir mér umfjöllun Jóhanns um Eimreiðarhópinn svokallaða innan Sjálfstæðisflokksins ekki sanngjörn. Fordæmingin verður of sterk, höggvið í of margar áttir. Jóhann Hauksson segir: „Sá jafningjahópur skoðanabræðra og skólafélaga varð að einstæðri valdaelítu og gat af sér þrjá forsætisráðherra, þrjá prófessora, tvo dómara, borgarstjóra og leiðandi menn í viðskiptalífi og jafnvel á sviði lista og mennta. Tengslanetið greiddi þeim leið til metorða og áhrifa. [...] Þeir urðu að sjálfum valdavef samfélagsins“ (167). Standist þetta verður Jóhann að halda því til streitu að fræðimennirnir Þór Whitehead og Þráinn Eggertsson, annar í fremstu röð sagnfræðinga á Íslandi og hinn með helstu hagfræðingum í heimi á sínu sviði, hafi á framabraut sinni notið góðs af kunningsskap við Hannes Hólmstein Gissurarson, Hrafn Gunnlaugsson, Davíð Oddsson og fleiri. Það fær ekki staðist. Einhliða finnst mér líka lýsing Jóhanns á „kosningamaskínu“ Sjálfstæðisflokksins fyrstu áratugina eftir seinni heimsstyrjöld (73-74). Þar er vitnað til lýsinga í bók minni um Gunnar Thoroddsen, á trúnaðarmannakerfi á vinnustöðum, eftirliti á kjördag og öðrum leiðum til að komast að því hver kysi hvað. Jafnframt vitnar Jóhann til þeirra orða Þráins Bertelssonar alþingismanns að þetta hafi verið „stórfelldasta njósnaprógramm“ sögunnar, verra en STASI og Gestapo. Aftur er hér tekið of djúpt í árinni. Sanngjarnara hefði verið að segja þá sögu alla, að kosningasmalar allra flokka reyndu eins og þeir gátu að skipa kjósendum í bása, skráðu skoðanir fólks hjá sér eftir bestu getu og höguðu sér eftir því á kjördegi. Þetta var hægt í fámenninu, einkum á landsbyggðinni, en varð sífellt erfiðara í Reykjavík. Þótt Jóhann finni rót þess sem aflaga hefur farið helst innan Sjálfstæðisflokksins (oftast allra er Davíð Oddsson nefndur á nafn, næstur honum kemur Geir H. Haarde), minnist hann líka á helmingaskiptakerfið svonefnda þar sem sjálfstæðismenn og framsóknarmenn nutu góðs af landsins gæðum á kostnað annarra. Ekki væri þó rétt að gleyma alþýðuflokksmönnum alveg; í þeim bæjum þar sem þeir réðu ríkjum gátu menn vart orðið sturtuverðir, hvað þá meira, nema flagga réttu flokksskírteini. Og Jóhann minnist á Árbótarmálið svokallaða þar sem Steingrímur J. Sigfússon sætti ámæli ásamt öðrum (75-76). Að lestri loknum er kannski helst hætt við að fólk fyllist svartsýni. Víða vitnar Jóhann í erlenda fræðimenn til stuðnings þeirri skoðun sinni að vestræn valdakerfi séu spillt og hljóti nánast að vera það. Kannski fær hann líka einhverja lesendur til að líta í eigin barm. Skyldi ekki einhver gera það við þessi orð: „„Því skyldi ég reiða til höggs gegn óréttlæti eða spillingu þegar vænlegra er að hlýða og eiga von um umbun?“ gæti ungur Íslendingur með framavonir sagt við sjálfan sig“ (166). Þrátt fyrir allt sést þó líka vonarglæta. Hana er að finna í lokaorðunum - en hún er skilyrðum háð: „Eina leiðin til að breyta þessu er að upplýstir og hófstilltir borgarar safni kjarki til að varpa af sér áratuga oki þöggunar og fylgi eftir fyrirheitum um lýðræðisumbætur og opnara og gagnsærra þjóðfélag. Þar getur annarleg og spillt leyndarhyggja fortíðarinnar ekki ráðið ferðinni, heldur aðeins grundvallarreglur þroskaðs réttarríkis, ekki síður í viðskiptum en stjórnmálum“ (180).

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.