Spássían - 2011, Qupperneq 24

Spássían - 2011, Qupperneq 24
 24 getur líka verið meðvitað. „Ef maður les ævisögu Katherine Hepburn, sem er skrifuð eftir hennar daga, þá blasir við að æviminningar hennar sjálfrar eru aldeilis sérstakar. Hver einasta minning sem hún átti var endurgerð, tilbúningur sem var leikstýrt með harðri hendi. Hún var miklu verri en draumaverksmiðjan. Kannski gerum við þetta öll.“ Í bókinni bætast svo við utanað- komandi afskipti þeirra sem reyna að stjórna því hvað eða hvernig fólk man. „Já, án þess að þetta fari beint út í ofsóknarbrjálæði, þá höfum við kannski ekki aðgang að öllu því frelsi sem við höldum. Ég held að frelsi okkar sé ekkert meira en sagnfræðingsins sem ætlar að skrifa um einhverja sögulega stund. Hann fer strax að velja hvaða heimildir hann ætlar að nota. Þannig er okkar líf, því er mikið stjórnað. Það er náttúrlega miklu auðveldara á svona stað eins og í sögunni, í lokuðu rými. En reyndar er heimurinn voða lokað rými.“ ÞURFUM AÐ PASSA UPP Á FASISMANN Og svo segir mamma eitthvað um endalausar tengingar skáldskaparins sem ég eigi eftir að kynnast þegar ég komist héðan, ef ég komist héðan og sjái hvernig öllu er raunverulega á botninn hvolft. (Trúir þú á töfra?, 89) Tengingarnar við önnur skáldverk virðast óteljandi í sögunni og Vigdís segir áhrif sem síast inn af öllu sem maður sér, heyrir og les koma meira og minna af sjálfu sér. „En það á ekki að þurfa að þekkja neinar tilvísanir til þess að geta notið þessarar bókar - eða ekki notið hennar. Þú þarft ekki einu sinni að vera neitt verseruð í skáldskapnum hennar Nínu til þess að geta lesið þessa bók. En það væri náttúrulega voða gaman fyrir okkur Nínu, að bókin mín kveikti í fólki svo það segði: „Æ, ég las aldrei Nínu Björk og Svartan hest í myrkrinu, ég þarf að fara að lesa hana.““ Núna liggur leið mín í undirgöngin; inn í boðin, bönnin og feluleikina; inn í leyndardómana, núna er ekki tími til að sakna, ekki tími til að þjást, ekki tími til að minnast, ekki tími til að skapa; Núna er tími til að leita og tími til að finna þótt myrk og þung skýin í brjósti mér hrannist upp í kringum mig hvar sem ég fer og hvernig sem ég læt. Núna er kominn tími til að vakna. (Trúir þú á töfra?, 248) Fyrir utan beinar ljóðavísanir í allar áttir er bókin einnig gædd þeim eiginleika að vekja stöðugt upp óbein hugrenningatengsl við önnur bókmenntaverk. Við lesturinn hvarflar hugurinn oftar en ekki að öðrum dystópíum, hrollvekjandi framtíðarsýnum af ýmsu tagi, því þetta er að einhverju leyti bók um kúgun, ekki síst skoðanakúgun, og yfir söguheiminum hvílir mikil ógn. Á móti er teflt frelsisþránni og ímynduninni. Það er freistandi að tengja þetta eftirhrunssamfélaginu, en Vigdís segir bókina ekki endilega spegla sýn hennar á samtímann. Hins vegar finnist henni ógnvænlegt til þess að hugsa að mögulega gæti ógn af þessu tagi verið yfirvofandi. „Ég held að það verði að passa vel upp á fasismann í heiminum. Hann kemur alltaf aftan að fólki. Hann er kannski þarna í bókinni í sinni ömurlegustu mynd - en hann er alltaf ömurlegur. Það er allt í lagi að skrifa um það hvað gæti hugsanlega orðið ef fasisminn fær að búa til sitt leikrit í litlu kúluþorpi í einhverjum firði. Það getur orðið ógurlega vont leikrit.“ ÞJÓÐERNISHYGGJAN HÆTTULEG [...] þeir heppnu lentu í kórhúsi til þess eins að verða brotnir niður dag eftir dag, viku eftir viku, ár eftir ár, til að mega syngja þennan kórsöng sáttfýsi og niðurlægingar. Nei, það létti engu okkar við það. Enn þann dag í dag er kórhús útlendinga og ranghugmyndamanna fjölmennasta kórhúsið okkar í austrinu og stendur á enginu gula við hliðina á kórhúsi tilgangslausra manna og gönguspöl frá kórhúsi gamalla og sjúkra. Í kórhúsi útlendinga og ranghugmynda- manna mynda níu manneskjur kórinn og hann er ungur og kröftugur og æfingarnar ganga rösklega og einarðlega og einhvern veginn finnst mér alltaf einsog textinn sé þessu fólki tamari en þeim í hinum húsunum. (Trúir þú á töfra?, 183) Söguheimur Vigdísar er öðrum þræði lýsing á undarlegri tilvist mannkynsins, sem reynir að þrauka við þrúgandi skilyrði án þess að hafa hugmynd um tilganginn með öllu saman. En kúluþorpið einangraða getur líka vel staðið fyrir Ísland í huga lesanda og Vigdís telur að eitt af því sem helst beri að varast um þessar mundir sé þjóðernishyggja. „Þegar Hitler byrjaði var fyrsta viðbragðið að leyfa honum bara að hamast í kommúnistunum. Það sáu fáir fyrir að nasisminn kæmist á í öllu sínu veldi – þótt Þórbergur hafi reyndar strax séð hvað var að gerast. En við þurfum að hafa varann á og þó það sé klisja að við þurfum að læra af sögunni þá held ég að við ættum að gera það. Þegar það verður svona hrun, og draumur litla mannsins sem varð ríkur hrynur, þá er svo mikil hætta á of mikilli þjóðernishyggju. Og tilhneigingu til að gleypa við alls konar svona gylliboðum. Menn verða að vera gætnir.“ Í bók Vigdísar hljóma við og við kunnuglegir frasar um gömlu gildin og afturhvarf til fortíðar. Þótt margir höfundar hafi leitað í þá átt undanfarið fer hún sjálf í hina áttina, inn í framtíðina og spáir í afleiðingarnar: „Ekki fara í rembuna hinum megin frá, hún var nógu slæm hinsegin. Hún getur orðið ennþá verri í fortíðardýrkuninni og ástinni á torfkofunum. Jafnvel þeir sem vilja best „Bókin er einfaldlega beiðni um það að einhver í heiminum taki hana í hendurnar, opni hana og njóti hennar. Hún er kaffiboð.“

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.