Spássían - 2011, Qupperneq 27

Spássían - 2011, Qupperneq 27
27 setur hana ekki í fyrsta sætið líkt og danski lýtalæknirinn í Kaupmannahöfn sem hún heimsótti yfir helgi: „Mig langar ekki að vera einhver annars flokks afþreying hjá karlmanni. Ekki aftur“ (228). Þrátt fyrir að makaleitin sé ekki meginviðfangsefnið nú er Lilja verðlaunuð fyrir sjálfstæði sitt, nýtilkomið jafnvægi og því að átta sig á því að: „Það sem skiptir máli er fjölskyldan mín og vinir“ (218). Draumaprinsinn bíður hennar handan við hornið: „Þegar ég hætti að bíða, leita og þurfa, þá gerist það“ (249). Sagan endar á því að sjúkraþjálfarinn hennar sem hún er skotin í verður laus og liðugur á fésbókinni: „Held niðri í mér andanum“ (250). Þótt frásagnarstíllinn sé kómískur vantar smá húmor í þráhyggju Lilju gagnvart sykurlausu fæði, háum hælum, léttum bjórum, heilsufæði og áhyggjum af línunum. Samræðurnar eru yfirleitt á léttu nótunum og oftar en ekki neðanbeltis, en þrátt fyrir það ná þær sjaldan flugi og lesandi skilur oft ekki hvers vegna persónurnar „springa úr hlátri“ (155), tryllast úr hlátri (139, 236), „berjast við hláturinn (132), halda niðri í sér hlátrinum (125, 210), fá „nett hláturskast“ (27), „skellihlæja“ (236, 249), eða hlæja svo mikið að það „ætlar engan endi að taka“ (249). Útlitsdýrkunin í sögunni er ekki heldur sett fram á írónískan hátt þrátt fyrir að Lilja skammi sjálfa sig fyrir að vera svona yfirborðsleg og velta sér endalaust upp úr því hvenær hún geti „farið að ganga á háum hælum“ (43). Skvísusögur hafa verið gagnrýndar fyrir áherslu á neyslu. Margir femínistar líta á tískuna sem hégómlega, hún geri konur að grandalausum fórnarlömbum kapítalisma og ómerkilegrar sölumennsku. Aðrir benda á að konur tjái sjálfsmynd sína með tískunni. Þá tvíræðni sem sjá má í viðhorfum femínista til tísku má einnig sjá í viðhorfinu til skvísusagna. Taka skvísusögur þátt í niðurlægjandi neyslumenningu og ýta undir hana, eða er verið að fletta ofan af henni og sýna takmarkanir hennar?6 Í Lýtalaus birtist þessi umræða þó ekki, því áherslan á mikilvægi góðs útlits, holdafars, klæðnaðar, að borða rétt og stunda líkamsrækt er sett fram á ógagnrýninn hátt og aldrei virðist efast um gildi þess að sjálfsmynd kvenna liggi eingöngu í því að hún sé kynvera. Hér hefði verið kjörið tækifæri að takast á við útlitsdýrkun samfélagsins í gegnum samband Lilju við danska lækninn, en í raun er viðfangsefnið skotið niður því læknirinn er aðallega í „lýtaaðgerðum, ekki fegrunaraðgerðum“ (74). Í lok sögunnar segir Lilja: „Ég er kannski ekki lýtalaus en ég er langt frá því að vera allslaus“ (250). Þannig dregur söguhetjan fram galla sína, þá staðreynd að hún er ekki fullkomin en þrátt fyrir það sé hún sátt í eigin skinni. Titillinn „Lýtalaus“ er þannig skemmtilegur en gefur þó til kynna viðfangsefni sem sagan sinnir ekki. Í raun er ekki tekist á við mikilvægi fullkomins útlits fyrir konur í samtímanum í sögunni. 1 Benstock, Shari, „Afterword. The New Woman’s Fiction“, Chick Lit. The New Woman’s Fiction, ritstj. Suzanne Ferriss og Mallory Young, New York/ London, Routledge, 2006, 253. 2 Adriaens, Fien, „Post feminism in popular culture: A potential for critical resistance?“, Politics and Culture, 4/2009, Sótt 20, október 2011 af http://www.politicsandculture.org/2009/11/09/ post-feminism-in-popular-culture-a-potential-for-critical-resistance/. 3 Veröld Tobbu, sótt 20. október 2011 af http://www.dv.is/blogg/verold-tobbu/. 4 Tobba Marinós, Lýtalaus, Reykjavík, JPV útgáfa, 2011, 26. Framvegis verður vísað til bókarinnar með sviga fyrir aftan hverja tilvísun. 5 Mabry, A. Rochelle, „About a Girl: Female Subjectivity and Sexuality in Contemporary ‘Chick’ Culture“, Chick Lit. The New Woman’s Fiction, 200. 6 Ferriss, Suzanne og Mallory Young, „Introduction“, Chick Lit. The New Woman’s Fiction, 11. Tryggvagötu 15 - sími 411 6100 - www.artotek.is Listaverk eftir íslenska myndlistarmenn eru til leigu og sölu í Artóteki. Leigan er 1.000 – 10.000 kr. á mánuði. Listaverkin má leigja þar til þau eru að fullu greidd eða ljúka greiðslu fyrr og dregst þá frá áður greidd leiga. Kynntu þér málið á staðnum og á heimasíðunni. Íslensk myndlist fyrir heimili og fyrirtæki Artótek í Borgarbókasafni Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir Anna Torfadóttir Halldóra Emilsdóttir

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.