Spássían - 2011, Qupperneq 28
28
Ljósmynda- og textabókin Selfoss eftir Gunnar Marel
Hinriksson er ekki dæmigerð glansmyndabók. Höfundurinn
teflir saman svarthvítum myndum af Selfossi sem hann hefur
tekið sjálfur og textum um svæðið sem hann velur héðan
og þaðan og stillir upp við hlið myndanna, án frekari
útskýringa. Yfirlýstur tilgangur er enginn, umgjörðin aðeins
stuttur formáli eftir Pál Sigurðsson sem byrjar á setningunni
„Ég vakna oft í skurði þegar mig dreymir Selfoss“ og
tengir Selfoss við fortíðina, náttúruna, Kardimommubæinn,
lestarstöð og kortabækur. Um framhaldið segir einungis:
„Hér eru gráar myndir af Selfossi, einsog hann er, þegar
búið er að ljósmynda hann einsog landslag. Ef til vill snertir
það einhverjar taugar í hjarta lesandans, hvort sem hann
kannast við Selfoss eða ekki.“
Myndir Gunnars Marels fanga bæinn á óvenjulega
hlutlausan hátt. Yfirleitt er ekki hægt að sjá tilraun til
að draga fram fegurðina í umhverfinu eða undirstrika
ljótleika. Þótt mótsagnakennt megi virðast er það einmitt
þetta sem gefur bókinni sjarma, gerir hana sérstaka og
hnýsilega. Sjónarhornið virðist oft næstum tilviljunarkennt,
mótífið ekkert sérstakt, aðeins smellt af yfir bæinn en samt
er eitthvað aðdráttarafl í þeim. Textabrotin skírskota til
myndanna við hlið þeirra á ýmsan hátt en eiga það eitt
sameiginlegt að tengjast Selfossi; þarna er allt frá lýsingum
Íslendingasagna á landnámi í Ölfusi til skilgreininga erlendra
bloggara á hugtökunum hnakki og skinka. Útkoman verður
bráðskemmtileg; fróðleg, angurvær, kaldhæðin, hranaleg
og smellin samsuða sem fær mann til að velta fyrir sér
staðnum og fyrirbærinu Selfoss í nýju ljósi.
„Hér eru gráar myndir
af Selfossi ...“
LESSTOFAN
lesstofan@lesstofan.is
Angantýr
- sagan sem mátti ekki segja -
„[...] einn af gull-
molum íslenskra
bókmennta.“
Guðrún Helgadóttir
rithöfundur
„Þú mátt engum lána
hana því það er
engum að treysta.“
Fyrrum starfsstúlka Elínar
Fátt er betur til þess fallið að skapa
stemningu fyrir ljúfsárt afturlit en
flutningur Lay Low á ljóðum kvenskálda
á plötunni Brostinn strengur.
Fyrir nostalgíukastið
Fyrsta ljóðabók Unnar Guttormsdóttur,
Það kviknar í vestrinu, dregur upp stuttar
svipmyndir af sumardvöl borgarbarns
í sveitinni um miðja síðustu öld. Ljóðin
eru dæmi um það hvernig fortíðin getur
lifnað við með réttu orðunum og orðið
næstum raunverulegri en nútíðin.
Bresku þættirnir Downton Abbey
hafa notið mikilla vinsælda.
Sögusviðið er Bretland í byrjun 20.
aldar og skipið Titanic er nýsokkið
sem dregur dilk á eftir sér fyrir
hefðarfjölskyldu eina og þjónustufólk
hennar. Ástir og örlög og umtalsverð
sápa í stífpressuðu umhverfi.
Ævintýri Tinna: Leyndarmál Einhyrningsins.
Ekki minni maður en Steven Spielberg
deilir nostalgískri upplifun sinni af þessum
vinsælu teiknimyndabókum í formi nýrrar
kvikmyndar um hárfagra blaðamanninn.