Spássían - 2011, Síða 29

Spássían - 2011, Síða 29
29 ÚLFHILDUR DAGSDÓTTIR hefur um árabil fjallað um bókmenntir á ýmsum vettvangi, meðal annars í magasínþáttum Ríkissjónvarpsins og á vef Borgarbókasafnsins. Hún er hressileg rödd, hvort sem maður er alltaf sammála eða ekki, og karlveldinu gjarnan óþægur ljár í þúfu, þúfan sú er í eigu vel valinna karla og hana á að umgangast með lotningu og þögn. Úlfhildur hefur verið ötul fræðikona, kennt við Listaháskólann og H.Í. og skrifað esseyjur um allt milli himins og jarðar, oft með áherslu á sjónræna þætti menningarinnar. Úlfhildur var að senda frá sér mikla bók og hefur sjaldan verið mikilvægari íslenskri menningu, enda fara skrif hennar heldur meira fyrir brjóstið á fólki en áður, ef eitthvað er. Í ritinu Af marxisma sem Nýhil gaf út árið 2009 er þannig að finna grein eftir Önnu Björk Einarsdóttur sem ómögulegt er að túlka öðruvísi en sem svo að einn helsti forkólfur hugsunarháttar íslensku útrásarinnar sé Úlfhildur Dagsdóttir. Svo er að sjá sem í mannlegum fræðum megi gera jafnvel banölustu forsendu góða og gilda með hugtakafimi, góðum heimildatilvísunum og stofnanamáli – og eftir að sú hugmynd að kapítalisminn kristallist í bókaverði hefur verið skreytt með fræðilegu jólaskrauti virkar hún hreint ekki eins fráleit og hún er í raun og veru. Að baki býr nokkuð algengt prógramm sem gengur í sem skemmstu máli út á að endurvekja gömlu, góðu marxistafrasana frá árum Fylkingarinnar, taka upp þráðinn frá sjöunda áratugnum eins og ekkert hafi í skorist. Til þess að þetta sé gerlegt þarf gleymsku, það þarf að sníða burt alla róttæka hugsun sem komið hefur fram eftir hrun múrsins (með hugrenningatengslum við útrásina ef ekki vill betur). En að minni hyggju er tómahljóð í róttækni sem afneitar sögu sinni. Einu sinni var mannskepnan firrt. Það merkti að hún var framandi í framleiðsluferlinu, sat innan um vélar og tæki, slitin úr samhengi, og sá aldrei upphaf og endi færibandsins. Þegar fram liðu stundir var maðurinn ekki bara firrtur í gamaldags marxískum skilningi heldur tók að renna sífellt meira saman við vélarnar. Chaplin í Nútímanum er ekki aðeins skilningssljór gagnvart tækjum nýs tíma heldur rennur hann eftir tannhjólunum þar til hann virðist hluti vélavirkisins. Til varð þrálát hugmynd um mennskt vélmenni, blöndu af mannveru og vél, hugmynd sem á sér djúpar rætur eins og rakið er í bókinni Sæborgin. Úlfhildur hefur lengi fjallað um þessa hugmynd og hennar mörgu birtingarmyndir, mig minnir að hún sé höfundur orðsins „sæborg“ sem er bein hljóðþýðing á hugtakinu „cyborg“ – sem merkir mannveru sem hefur verið blönduð raftækjum, eða öfugt. Það er ekki skrýtið að slík sýn sé miðlæg í huga þeirra sem vilja slaufa nokkrum liðum hugmyndasögunnar. Hugmyndin um sæborg gengur nefnilega þvert gegn húmanismanum sem afturhaldssöm róttækni hvílir á. Með sæborginni missir maðurinn sína heildstæðu mynd og sína einstöku mennsku, grunnstoðir margra einfaldra og þægilegra heimsmynda, ekki síst er húmanismi mikilvægur í hugmyndakerfum hægrimanna. Í menningu og veruleika koma upp sífellt fleiri þemu þar sem vél og mennska renna saman með margslungnum hætti, vélin hefur hug á að gerast mennsk og öðlast tilfinningar, mannveran fjarar út í vél, vélin verður eðlilegt framhald af manneskjunni og tekur jafnvel yfir drjúgan hluta af sálarlífi hennar (eins og allir notendur Facebook ættu að kannast við þegar kemur að sambandinu sem sá miðill skapar milli fingra og lyklaborðs, félagslífs og tækis, hugar og tjáningar). Sæborgin hefur ólíkar birtingarmyndir, í bók sinni kemur Úlfhildur víða við, jafnt í mesta pölpi sem hámenningu: Hún greinir ekki beinlínis milli æðri lista og afþreyingarefnis en gerir greinarmun á drasli og góðu stöffi – sem er annað. Í fyrstu var ég hálf efins um útlit bókarinnar. Það er vísvitandi draslkennt, margar myndir prýða bókina og uppsetning þeirra er ágeng, leturgerðir og –stærðir eru margar og sundurgerð nokkur; en svo venst þetta og bókin verður mjög læsileg, bæði hvað útlit og innihald snertir. Ritið skiptist í þrjá hluta, sá fyrsti nefnist „Skáldskapur“, annar „Fræði“ og sá síðasti „Sæborgin á Íslandi“ en hlutarnir skiptast í undirkafla sem sjálfir skiptast í undirkafla. Aftast fylgir rækileg heimildaskrá, nafnaskrá og annað sem fræðiriti hæfir. Raunar er sjaldgæft að út komi bækur sem eru svo þaulunnar og á svo löngum tíma: Mikill lestur liggur hér að baki. Úlfhildur byrjar leikinn á að kynna til sögunnar sinn helsta fræðimann, fræðikonu að nafni Donna Haraway, og rekja sögu sæborgarinnar, sem nær býsna langt aftur, áður en haldið er í greiningu sæborga í bókmenntum. Grundvallarrit þessara fræða eru Frankenstein eftir Mary Shelley og The Island of Dr. Moreau eftir H.G. Wells. Ákveðin (neikvæð) ára festist við sæborgina með Frankenstein sem vísindaskáldsagnahöfundurinn Isac Asimov vinnur síðan gegn í sínum framtíðarsögum. Á eftir bókmenntakaflanum tekur við kafli um myndmál sæborgarinnar og nefndar eru til sögunnar ótal kvikmyndir, Star Wars, Blade Runner, RoboCop og fleiri (ég þekki hvorki haus né sporð á mörgum þeirra og ekki hef ég lesið stafkrók eftir Donnu Haraway), áður en haldið er út í fræðakaflann þar sem bæði skáldskapur og kvikmyndir og önnur form koma við sögu. Reyndar má nefna að Úlfhildi hefur eins og mörgum öðrum yfirsést eitt mesta stórvirki vísindaskáldsögunnar, bók sem kölluð hefur verið fullkomin, bók sem hefur haft lúmsk áhrif ekki aðeins á bókmenntir heldur einnig á ýmislegt afþreyingarefni Keisarinn er með gangráð Úlfhildur Dagsdóttir. Sæborgin: stefnumót líkama og tækni í ævintýri og veruleika. Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands. 2011.Eftir Hermann Stefánsson „Hún hafnar tæknifóbíu og tæknidýrkun til jafns, en leitar að frjóa, skapandi, róttæka femíníska fletinum á þróun manns í átt að sæborg, bæði í listum og veruleika.“ GAGNRÝNI

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.