Spássían - 2011, Blaðsíða 31

Spássían - 2011, Blaðsíða 31
31 upp því við eigum frábæra bakhjarla og fáum mikinn meðbyr á Akureyri.“ Alls eru fyrirhugaðar átta sýningar á Saknað hjá Leikfélagi Akureyrar og verður leikritið aðeins sýnt þrjár helgar. „Við byrjuðum að æfa fyrir um mánuði síðan. Við störfum að breskri fyrirmynd þar sem æft er í 4-5 vikur fyrir frumsýningu og svo sýnt í 3-4 vikur. Líftími hverrar sýningar verður þannig miklu styttri og það er forsenda þess að við getum þetta. Undirbúningsvinnan hófst reyndar fyrir 2-3 mánuðum þannig að við þurftum ekki að byrja frá grunni þegar æfingar hófust.“ Hljóðmyndin er samin af leikhópnum og Mekkín Ragnarsdóttir sér um leikmynd og búninga, en hún hefur hannað allar leikmyndir Silfurtunglsins. „Allir eru að gera svo margt í hverri sýningu. Við unnum t.d. saman í handritinu og göngum almennt mikið í öll störf. Hjá stóru leikhúsunum eru flestir sérhæfðir og taka aðeins að sér eitt hlutverk. Þótt allir þar séu auðvitað opnir fyrir tillögum er oft einhver einn sem sér um hljóðmynd, annar um lýsingu o.s.frv. Með okkar aðferð náum við töluvert meiru út úr hverjum og einum og það gerir starfið í sjálfstæðum leikhópi þeim mun skemmtilegra.“ ENDURVAKNING SILFURTUNGLSINS Silfurtunglið var upphaflega stofnað árið 2007 af Jóni Gunnari. Leikhópurinn setti upp eitt verk í gamla Silfurtunglinu, Fool for Love, og setti síðan upp Lilju í London og Manchester árin 2007-2008. Nafnið var svo endurvakið í byrjun ársins 2011 þegar Jón Gunnar, Matthías Matthíasson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Jana María Guðmundsdóttir ákváðu að finna sér heiti til að vinna undir. „Við kynntumst þegar við vorum með í uppsetningu á Rocky Horror og vildum halda áfram að vinna saman. Söngleikurinn Hárið varð fyrir valinu og allt gerðist mjög hratt. Við fengum réttinn í febrúar, byrjuðum að æfa í mars og frumsýndum svo 15. apríl. Í uppsetningunni tóku þátt átta leikarar sem allir spiluðu á hljóðfæri eða sungu, og voru nýttir þannig á einn eða annan hátt við sköpun tónlistar í sýningunni. Við þetta bættist svo þriggja manna rythmasveit. Jón Gunnar leikstýrði og Mekkín sá um leikmynd og búninga.“ Sýningin hlaut afar góðar viðtökur og eftir að 4.000 manns höfðu séð hana á Akureyri bætti Silfurtunglið um betur, fór með sýninguna suður og sýndi fyrir 15.000 manns í Hörpu. Efniviður sýninganna sem Silfurtunglið ræðst í stjórnar því hverjir taka þátt hverju sinni, segir Jana. Eyþór og Matti fengu því lítið að gera í nýjustu sýningunni sem hún lýsir sem miklu dramaverki. „Annars höfum við mikið verið að vinna með sama fólkinu. Maður vill halda áfram að vinna með góðu fólki og þannig var það í Hárinu og þessari sýningu. Verkefnavalið er í höndum okkar allra. Við styðjum vel hvert við annað og getum komið með verkefni inn og unnið þau saman.“ Jana nefnir sérstaklega þann góða stuðning sem leikhópurinn hefur fundið fyrir á Akureyri. „Fjölbreytni er eitthvað sem gleður bæjarbúa frekar en hitt, og það er skemmtilegt að upplifa. Það hefur kannski helst vantað dramaverk eins og Saknað í flóruna, en tvö ár eru síðan síðasta almennilega dramaverkið var sýnt hér í bænum.“ MÖRG JÁRN Í ELDINUM Silfurtunglið hefur í nógu að snúast og í febrúar stendur til að setja upp svokallaða Söngleikjasprengju, þar sem flutt verða brot úr völdum söngleikjum á 90 mínútum. „Þarna verða söngvarar sem tóku einnig þátt í Hárinu, ásamt hljómsveitinni okkar og fleirum,“ segir Jana. „Þetta verður mjög skemmtilegt.“ Áformað er að setja sýninguna upp í Hofi. Hópurinn hefur einnig staðið fyrir verkefni sem kallast Listaflakk. Þar er leiklist og myndlist blandað saman og er unnið í samstarfi við Myndlistarskólann á Akureyri, Tónlistarskólann á Akureyri, Leikfélag Akureyrar og Menningarhúsið Hof, þar sem sýningar fóru jafnframt fram. „Þetta var að okkar frumkvæði; að búa til menningarferðalag til mismunandi tímabila í listasögunni og snerta á leikritun, málaralist, tónlist og hreyfingum þess tíma. Við byrjuðum á þessu nú í haust og hófum ferðalagið á rómantíska tímanum. Lesið var upp úr Fröken Júlíu eftir August Strindberg og Villiöndinni eftir Henrik Ibsen og tónlist frá þessu tímabili flutt á fagott, selló og píanó. Við fengum myndlistarnema til að teikna upp leikmyndalýsinguna fremst í leikritunum og teikningunum var svo varpað á vegg meðan á lestrinum stóð. Áformað er að halda þessu áfram og við munum taka fyrir þýskan kabarett í janúar, Kurt Weil og Bertolt Brecht.“ Með hlutverk í Saknað fara Þrúður Vilhjálmsdóttir sem leikur mömmuna, Ívar Helgason sem fer með hlutverk pabbans, Kári Viðarsson sem sonurinn, Jana María Guðmundsdóttir sem kærasta hans og Ólafur Ingi Sigurðsson sem yngri sonurinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.