Spássían - 2011, Page 35

Spássían - 2011, Page 35
35 Eftir Helgu Birgisdóttur Ragnar Jónsson. Myrknætti. Veröld. 2011. margir glæpir Eitt morðog MYRKNÆTTI er þriðja bók Ragnars Jónssonar, sjálfstætt framhald fyrri bókanna tveggja, Snjóblindu og Falskrar nótu. Sem fyrr leikur lögregluþjónninn Ari Þór Arason stóra rullu og er nú búinn að koma sér nokkuð vel fyrir á Siglufirði þrátt fyrir að fjöllin þrengi enn að og hann sakni kærustunnar fyrrverandi. Á Reykjaströnd finnst illa útleikið lík og þar með hefst sagan, en morðið á verktakanum Elíasi Freyssyni er sannarlega ekki eini glæpurinn sem í ljós kemur í sögunni. Fórnarlambið var langt í frá saklaus sál og það er vegna glæpa hans sem sjónvarpsfréttakona að sunnan fær áhuga á málinu og kemur norður til að komast að upplýsingum um hinn myrta. Saga hennar er bæði áhugaverð og flókin. Samverkamenn fórnarlambsins koma líka við sögu, missaklausir eins og gengur, auk þess sem fjallað er um barnaþrælkun og misnotkun. Mitt í þessu öllu saman er enn einn glæpurinn framinn, mansal, en ung nepölsk kona er einhvers staðar innilokuð í myrkri, án matar og drykkjar. Þar að auki glíma sögupersónur flestar við ýmis persónuleg málefni, til dæmis eru ástamál Ara enn í ólestri og hinir lögregluþjónarnir á Siglufirði hafa um nóg að hugsa, annar óttast um hjónabandið en hinn um líf sitt. Í Myrknætti fléttast margir þræðir saman, misvel þó, og þótt morðið sé að lokum upplýst eins og vera ber er augljóst að sögunni er ekki lokið. Þetta er bæði kostur og galli. Lesendur eru væntanlega forvitnir um hvað verður um persónurnar, sem eru ansi margar, og spenntir að lesa næstu bók, en mér fannst ekki unnið nægilega vel úr öllum hliðarsögunum, sem er raunar það sama og ég fann að Snjóblindu. Söguna þyrfti að þétta og hreinsa dálítið til svo hún fái notið sín – eða stækka hana og lengja til að skapa rými fyrir allar persónurnar. saga Höllu snýst ekki síst um erfiðleika hennar við að byrja í nýjum skóla. Hún er þvílíkur gæðaunglingur að hafa fengið birt frumsamin ljóð aftan á mjólkurfernu en í nýja skólanum veit enginn af þessum né skyldum afrekum og nemendur og kennarar líta á hana sem vandræðaungling og dópsala. Viðfangsefni Jónínu og Arndísar eru vandmeðfarin. Báðar koma þær efninu frá sér án þess að uppeldis- eða prédikunartónn yfirgnæfi frásögnina. Í Upp á líf og dauða er að finna upplýsingar frá Landlæknisembættinu um sjálfsvíg og sjálfsvígstilraunir unglinga. Þetta er ekki hluti af sjálfri frásögninni og sagan gæti vel verið án þessara fróðleiksmola en þeir trufla þó ekki söguna og dýpka hana raunar því þegar maður les þá tengir maður þá ósjálfrátt við persónur sögunnar og dregur eigin ályktanir. Raunir mjólkurfernuskáldsins eru ansi margar. Fíkniefnamisferlið og hin nýja sjálfsmynd eru dágott viðfangsefni en fleira bætist við. Trúmál, geðræn vandamál og fermingar koma líka við sögu, sem og peningavandræði og krabbamein, en einna merkilegast finnst mér hvernig Arndísi tekst að koma því á framfæri að unglingar eru hugsandi einstaklingar og geti haft áhrif. Þetta er sýnt og sannað þegar Halla og vinir hennar hengja stórt veggteppi á Alþingishúsið. Veggteppið er þakið slagorðum og upplýsingum um málefni sem koma unglingum við, hlutum sem „ættu að vera í lagi en eru það ekki. Sem fá mann til að vilja skera upp á sér handleggina“ (Játningar mjólkurfernuskálds, 216). Framtakssemi, ásamt því að þora að taka málin í eigin hendur, eru einnig stór hluti Upp á líf og dauða. Þetta getur verið vanþakklátt starf en undir lok bókar virðist erfiði Hrannar ætla að bera árangur. Unglingabækur eiga það til að eldast illa og sumum er vafalaust ekki ætlaður langur líftími. Þetta á einkum við um stíl unglingabóka þar sem tilvísanir í poppmenningu samtímans eru oft áberandi og höfundar reyna að líkja eftir talsmáta unglinga. Slíkt gerir að verkum að ferskar bækur úldna oft ansi fljótt. Um leið og höfundar verða að tala til unglinga þannig að þeir vilji hlusta og skilji það sem sagt er má ekki tala niður til þeirra. Þetta er jafnvægisleikur sem bæði Arndís og Jónína eru ansi lunknar í. Frásögn Arndísar er í fyrstu persónu og fullorðinslegur talsmátinn og stundum óvanalegt orðalagið er skýrt með því að aðalsöguhetjan er mjólkurfernuskáld, fyrrverandi fyrirmyndarunglingur og lestrarhestur. Saga Jónínu er sögð í þriðju persónu og þar er meira um samtöl en í Játningunum. Í þeim tekst Jónínu alla jafna að skapa sannfærandi unglinga sem ekki hljóma allir eins en frásögnin sjálf er annars sögð á fremur látlausan hátt. Mér fannst ég þó komast nær Höllu, aðalpersónu Arndísar, en Hrönn í Upp á líf og dauða sem skýrist ef til vill af frásagnaraðferðinni; Halla er alltaf í sviðsljósinu en Hrönn þarf að deila því með öðrum persónum. Því er heldur ekki að neita að Halla er öllu ljúfari persónuleiki en Hrönn sem er afskaplega pirruð. Það er hins vegar bæði gaman að lesa um ljúflinga og pirraða unglinga og vel þess virði að mæla með báðum bókunum. Höfundar verða að tala til unglinga þannig að þeir vilji hlusta og skilji það sem sagt er en ekki má tala niður til þeirra. GAGNRÝNI

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.