Spássían - 2011, Síða 36

Spássían - 2011, Síða 36
 36 Það hefur ekki verið nein sérstök gróska í smásagnagerð á undanförnum árum. Þau má telja á fingrum annarrar handar, smásagnasöfnin sem getið er í Bókatíðindum ár hvert. Þó hafa nokkur þeirra náð í gegn: Sagnasveigur Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Aldingarðurinn (2006), hreppti Íslensku bókmenntaverðlaunin og fyrir smásagnasafnið Milli trjánna (2009) var Gyrðir Elíasson sæmdur Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs. Vonandi hvetur það íslenska höfunda til að sinna þessu eðla bókmenntaformi. Ekki er heldur hægt að segja að mikil nýsköpun hafi átt sér stað í smásagnagerð á síðustu árum. Hið klassíska form smásögunnar heldur velli og lítið er um róttæka tilraunastarfsemi. Samt sem áður leynast fagrir fuglar innan um, og hér hef ég tínt til nokkrar athyglisverðar sögur sem hafa komið út á bók á undanförnum fimm árum. Þær bera ekki nein sameiginleg einkenni önnur en þau að þar tekst höfundunum að skapa eftirtektarverðan merkingarheim í vandasömu formi. – staldrað við nokkrar smásögur frá liðnum árum Smáfuglar fagrir Eftir Rúnar Helga Vignisson SAGNASVEIGUR Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Aldingarðurinn, hefur að geyma sögur sem bera nöfn mánaðanna tólf og fjalla allar um samskipti. Þarna eru margar haglega fléttaðar sögur en hér verður staldrað við febrúarsöguna. Einar og Hildur búa á Manhattan en þegar sagan hefst eru þau stödd í sumarhúsi sínu á Long Island þótt þau séu ekki vön að fara þangað á veturna. Þau eru þarna ein, hafa ekki reynt að fá börnin með í þetta sinn, krákur sveima yfir gráum ökrunum og allt er lokað. „Ráðgjafinn sem þau leituðu til hafði hvatt þau til að fara saman í frí“ (32–33) og það er ekki liðinn nema hálfur mánuður síðan „ósköpin dundu yfir“ (33). Þannig leiðir höfundur okkur smátt og smátt að viðfangsefni sögunnar; framhjáhaldi eiginmannsins. Ekki nýstárlegt viðfangsefni en Ólafur Jóhann býður upp á listilega fléttu í seinni hluta sögunnar. Sagan er byggð á klassískan hátt eins og allar sögurnar í bókinni. Höfundur kemur persónunum fyrir í ákveðnum atburði, staldrar síðan við og gefur okkur svolitla forsögu áður en hann heldur áfram með atburðarásina. Mál æxlast þannig í „Febrúar“ að Hildur fær Einar til þess að aka með sig í gegnum Queens- hverfið á leiðinni heim. Hann virðist hafa sagt henni að viðhaldið búi þar og henni finnst hún þurfi að sjá íbúðina hennar til þess að þau geti haldið áfram að „fara í leikhús aftur“ (41). Með semingi fellst hann á það og þau leggja af stað í snjókomu og þæfingi. Hann fer með hana í götu í Queens en virðist eitthvað óöruggur og endar á því að keyra inn í blindgötu á leiðinni frá íbúð hjásvæfunnar. Í ljós kemur að Einar er kominn í blindgötu í fleiri en einum skilningi. Hann neyðist til að viðurkenna að viðhaldið búi ekki í Queens heldur „á hæðinni fyrir neðan okkur“ (45). Þar með stígur Hildur út úr bílnum og hverfur út í febrúarbylinn. Fyrir utan svolítið klossað endurlit er sagan vel riðin og fléttan kemur hinu ósagða vel til skila. Höfundi tekst prýðilega að miðla spennunni í sambandi hjónanna og gerir það bæði með samtölum og andrúmslofti. Og lygin í lokin, sem er að hluta til vegna þrýstings Hildar, kemur brestunum í sambandinu til skila á afar snjallan hátt.

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.