Spássían - 2011, Side 40

Spássían - 2011, Side 40
 40 ÁSDÍS STOFNAÐI fyrst bókmennta- klúbb ásamt Hrafni Harðarsyni 11. september 1984 hjá Frístunda- hópnum Hana-nú í samvinnu við Bókasafn Kópavogs. Ásdís á ennþá fundargerðina og blaðar í henni til að rifja upp. „Það mættu svo margir að það þurfti að skipta hópnum. Við fengum Silju Aðalsteinsdóttur bókmenntafræðing til okkar og hún gaf okkur viðmiðunarramma til að fara eftir þegar við læsum skáldsögur. Ég nota það plagg enn og dreifi reglulega. Hér sé ég líka hver kom með bakkelsi, en við skiptumst á. Þá þótti sjálfsagt að það væri bakkelsi ef við hittumst að kveldi. Það hefur breyst; hér í Hæðargarði byrjaði ég á því að bjóða upp á vatn og vínber og núna erum við bara með vatn. En hópurinn í Kópavogi starfar ennþá, undir stjórn Hrafns Harðarsonar. Þau eru nú að lesa Jón Thoroddsen en við lesum Þórarin Eldjárn.“ Áður en Ásdís varð forstöðumaður Hæðargarðs átti hún líka þátt í að stofna Bókmenntahóp í félagsmiðstöðinni Gullsmára í Kópavogi, en þar kom Matthías Johannessen einnig við sögu sem heiðursgestur á fyrsta fundi. Ásdís hefur því allar götur síðan 1984 verið með bókmenntahóp í sinni umsjá. „Ég hef grætt mikið á því og lesið mun meira en ég hefði annars gert. Þetta er svo skemmtilegt að ég held að ég hætti því aldrei.“ Í hópnum sem hún stýrir núna sækja fundi yfirleitt um 10 til 15 manns, sem Ásdís segir mjög hæfilegt. „Ég stjórna ekki beint en leiði hópinn og sé til þess að allir komist að. Fólk veit að það er þannig og hefur svo sannarlega skoðanir en vill ekki bara láta messa yfir sér. Við fáum stundum fólk í heimsókn, höfunda eða bókmenntafræðinga til dæmis, en það eru þó fyrst og fremst við sem lesum og höldum uppi lifandi umræðu um skáldverk og skáld þótt við séum ekki bókmenntalega lærð. Þarna er náttúrulega víðlesið og frótt fólk, frá miðjum aldri og uppúr, og margir flytja með sér kynni af gamalli bókmenntahefð inn í nútímann. Það er því margt sem kemur upp úr kafinu á fundum. Ein reyndist til dæmis hafa verið vinnukona hjá Gunnari Gunnarssyni í Fljótsdal og gat sagt okkur sína hlið á merkilegum atburðum í Íslandssögunni.“ Stundum tengir hópurinn lesturinn því sem er að gerast í leikhúsmenning- unni. „Við lásum Íslandsklukkuna þegar hún var sett upp og tókum Gerplu fyrir í fyrra. Bárum svo saman bækur okkar eftir að hafa farið á leiksýninguna en sumir lesa Gerplu reglulega og finnst þetta stórkostlegt skáldverk á meðan aðrir komust ekki í gegnum hana, fannst hún algjör hryllingur. En það gerir þetta svo skemmtilegt.“ Og það má sannarlega segja að hópurinn sé með puttann á púlsinum. Þau tóku fyrir verk Gyrðis Elíassonar rétt áður en hann var tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkt gerist. Ásdís grínast með það að taki hópurinn skáld fyrir fái það einhver bókmenntaverðlaun skömmu síðar – sem hlýtur að boða gott fyrir Þórarin Eldjárn. Hópurinn rifjar þó einnig upp fyrri tíma. „Við kíktum til dæmis í Guðrúnu frá Lundi fyrir skömmu og rifjuðum upp Dalalíf. Sumir höfðu lesið þær bækur sem ungt fólk og fóru að lesa aftur. Það urðu af því mjög skemmtilegar umræður, til dæmis um það hvað Dalalíf var þá vinsæl bók hjá hinum almenna lesanda en er orðið verk úr öðrum menningarheimi í augum á ungu fólki nútímans. Í slíkum umræðum nýtur maður þess að vera með fólk Víðlesið og frótt fólk Bókmenntahópur Hæðargarðs, félagsmiðstöðvar fyrir fullorðið fólk, var stofnaður 22. september árið 2004 í samvinnu við Kringlubókasafn. Heiðursgestur kvöldsins var Matthías Johannessen og gaf hann leyfi sitt til að vera kallaður verndari hópsins. Síðan þá hefur hópurinn hist á þriggja vikna fresti yfir vetrartímann en vertíðinni lýkur ávallt með vorferð í samstarfi við framsagnarhóp Hæðargarðs þar sem farið er á slóðir ýmissa skálda og boðið upp á hátíðadagskrá. Stofnandi hópsins, Ásdís Skúladóttir, hefur áratuga reynslu af slíku starfi og segist ekki geta hugsað sér að hætta. Eftir Auði Aðalsteinsdóttur sem hefur margt að segja

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.