Spássían - 2011, Síða 47

Spássían - 2011, Síða 47
47 við myndlist. Ég endaði í fagurfræði og þóttist hafa fundið rétta tækið til að takast á við myndlistina. Mér fannst ekki nóg að láta segja mér hvaða verk ég ætti að láta mér líka við, ég varð að fá að vita hvers vegna. Menntunin sem ég varð mér úti um varð hins vegar vandamál þegar ég fór síðar að vinna á Listasafni Íslands. Þar giltu önnur viðmið en sú sjálfstæða hugsun sem ég hafði lært að tileinka mér. Ég hafði brennandi áhuga á hugmyndasögu, hugtökum og samtímalist, en hafði ekki sinnt því að kynna mér íslenska listasögu sérstaklega. Þegar ég byrjaði á safninu og þurfti að kynna mér söguna voru góð ráð dýr. Ég náði engu sambandi við skrifin í útgáfum safnsins. Formgreiningarnar stóðu í mér og ég velti því fyrir mér hvort listasagan þyrfti nauðsynlega að vera sögð á þurru máli. Mér fannst safnið ekki vera í neinu sambandi við samtímann og því þarf ekki orðlengja það að starfstími minn þar varð óhjákvæmlega stuttur. *** Tíminn sem ég starfaði á Listasafninu reyndist mér engu að síður dýrmætur því hann opnaði fyrir spurningar um hvernig saga íslenskrar myndlistar er sögð. Hvernig gat sagan til dæmis byrjaði árið 1900 eins og upp úr þurru? Hvað gat skýrt það að strákar – og stelpur – sem samkvæmt þessu höfðu alist upp í myndlistarlausum sveitum og sjávarþorpum, fengu þá flugu í höfuðið að hægt væri að læra eitthvað sem hét myndlist? Varla kviknaði sú löngun af sjálfu sér? Ekki fannst mér skipta minna máli að skilja hvað gerði þau móttækileg fyrir nýjum viðhorfum sem voru að leggja undir sig evrópska samtímalist. Mér fannst vanta fleiri sjónarhorn á frásögnina. Ég skildi ekki heldur, þegar ég kom frá Frakklandi, hvernig hægt var að segja frá verkum íslensku listamannanna án þess að tengja þau erlendum verkum og gera grein fyrir þeim hugmyndalegu breytingum sem átt höfðu sér stað í Evrópu. Nú á ég ekki við að íslensk myndlist hafi aldrei verið sett í samhengi við strauma og stefnur í myndlist á meginlandinu. Ég á við að ef ætlunin er að skilja upphaf íslenskrar listasögu - sem sumir vilja nú meina að eigi sér ekkert upphaf því myndlist hafi alltaf verið iðkuð í landinu - sé mikilvægt að átta sig á hvað gerðist á 19. öldinni. Listasafn Íslands var stofnað á síðari hluta þeirrar aldar, utan um gjöf á erlendum listaverkum. Markmiðið með stofnun safnsins var að gefa Íslendingum tækifæri til að kynnast evrópskri málaralist milliliðalaust. Upphaflega átti safnið því ekki að safna íslenskri myndlist sérstaklega, enda var myndlistarlífið í sögulegri lægð framan af 19. öldinni og fátt sem hægt var að kaupa. Hlutverk Listasafnsins, líkt og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Þjóðleikhússins síðar, var að búa í haginn fyrir listrænt uppeldi þjóðar sem stefndi hraðbyri í átt að sjálfstæði. Starfsemi Listasafns Íslands þróaðist hins vegar með öðrum hætti en til stóð, enda mun erfiðara að koma sér upp erlendri safneign en setja upp erlend leikverk í Þjóðleikhúsinu eða flytja erlendar sinfóníur. Gildi frummyndarinnar í myndlistinni og áhrif hennar á hreyfanleika og verð verka gerði safninu einfaldlega óhægt um vik að halda áfram að safna erlendum verkum. Hlutverk Listasafns Íslands þróaðist í þá átt að safna íslenskum málverkum í geymslur og halda stopular sýningar á innlendri nútímalist í listsögulegu tómarúmi. Það vekur enda athygli, að þegar íslensk listasaga 20. aldar er sögð, fellur forskeytið „nútími“ brott. Öllum sem til listasögu þekkja má þó ljóst vera að íslensk listasaga er nútímalistasaga, þar sem frásögnin er knúin áfram af „nútímanum“ og hugmyndalegum áhrifum hans, m.a. á stöðu listamannsins sem sjálfstætt starfandi og aðgreiningu listhugtaksins frá handverki og nytjalistum. Í listsögulegum skilningi á nútímalist sér upphaf sem vísar til rofs er verður í sögu myndlistar undir lok 19. aldar, eftir að hópur franskra listamanna rís upp gegn viðhorfum klassískrar hefðar í eftirmála frönsku byltingarinnar og segir skilið við Listaakademíuna. Það var langt frá því að allir franskir listamenn tækju þátt í uppreisninni gegn akademíunni, enda hefði þá ekki orðið nein togstreita og ekkert rof. Margir starfandi listamenn á 19. öld vildu halda í hefðina, enda var hún lykillinn að velgengni þeirra. Þessir listamenn hétu nöfnum á borð við Baudry, Gérôme, Cabanel og Bouguereau. Þeir eru hluti af franskri listasögu þótt nöfn þeirra beri, eðli málsins samkvæmt, sjaldnast á góma í ritum sem fjalla um sögu nútímalistar á Vesturlöndum. Þar hafa þeir orðið að víkja fyrir nöfnum hinna, sem börðust fyrir því að myndlistin fengi að fjalla um samtímann. Skilgreiningin nútímalist afmarkast því við list sem tekst á við samtímann með nýjum aðferðum og listamenn sem eru sér meðvitaðir um stöðu sína í ferli endurnýjunarinnar. Meðal listamanna sem gerðu þá kröfu að fá að fjalla um samtímann voru Courbet, Manet, Monet og Cézanne, sem var ekki aðeins óþekktur öllum almenningi stóran hluta lífsins, heldur naut framan af lítillar hylli starfsbræðra sinna. Þessi útlagi útlaganna er nú talinn áhrifamestur impressjónistanna. Nafn hans er táknrænt fyrir leiðarstef í listasögu nútímans, sem nær yfir heila öld. Það hefur nært ímyndina um misskilda snillinginn og knúið áfram hugmyndina um framúrstefnuna. *** Á 19. öld voru engar stofnanir á Íslandi sem hægt var að hafna, eins og glöggt kemur fram í skrifum Þóru Kristjánsdóttur um tímabilið í Sögu Íslands. Í upphafi 19. aldar var engan starfsvettvang að finna fyrir íslenska listamenn og því hverfur myndlistin úr menningarlífinu. Fram að því var listsköpun í landinu nokkuð blómleg miðað við aðstæður, eins og kemur fram í riti Þóru Mynd á þili, sem fjallar íslenska myndlist frá 16., 17. og 18. öld. Það var sem sagt búin til myndlist á Íslandi á þessu myrka tímabili í sögu landsins sem nýlendu. Í ritinu tekst Þóra á við það verkefni að finna þessum myndverkum höfunda og höfundum verk, eflaust til að færa þá nær okkur. En það er á vissan hátt tímaskekkja Jean Honoré Fragonard (1732-1806), Rólan, 1767. Erótískur undirtónn málverka Fragonard öfluðu honum velgengni og vinsælda í því frjálslynda andrúmslofti sem ríkti hjá frönskum aðli undir lok einveldisins.

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.