Spássían - 2011, Blaðsíða 49
49
GAGNRÝNI
ÖRLYGUR KRISTFINNSSON er höfundur bæði mynda og
texta bókarinnar Saga úr síldafirði, en sögusvið bókarinnar
er, eins og titillinn ber með sér, Siglufjörður. Rakin er saga
Sigga, tólf ára stráks, og fjölskyldu hans. Eftir að áætlanir
um að flytjast til fyrirheitna landsins, Kanada, fara út um
þúfur ákveður fjölskyldan að flytja til Siglufjarðar og skiptist
sagan efnislega í þrennt. Fyrst er fjallað um sjóferð Sigga
frá Akureyri til Siglufjarðar. Þá er greint frá fyrstu skrefum
fjölskyldunnar á Siglufirði en stærstur hluti bókarinnar fjallar
um lífið í síldarfirði. Gerð er grein fyrir vinnuaðferðum og
vinnuskilyrðum síldarvinnslufólks og því hversu miklu síldin
breytti fyrir fólkið í landinu.
Það er snúið að átta sig á því hvaða aldurshópi bókin hæfir
einna best. Á vefsíðu Síldarminjasafns Íslands er að finna
upplýsingar um þá atburði sem sagan byggir á og þar segir
að Saga úr síldafirði sé „tilraun til að segja 12 ára börnum
síldarsögu Íslendinga“. Á vefnum er einnig hægt að lesa sjálfa
söguna sem byggir á sama grunni og sú sem nú hefur verið
gefin út. Undirtitill sögunnar á netinu er „námsefni fyrir 6.-9.
bekk grunnskóla“. Ég á erfitt með að sjá að unglingar í gaggó
heillist af Sögu úr síldarfirði. Til þess er útlit bókarinnar og
umgjörð einfaldlega of barnaleg og líklegra að yngri lesendur,
eða foreldrar þeirra, heillist af fallegri kápumyndinni.
Saga úr síldarfirði er ríkulega myndskreytt bók. Á hverri opnu
er stór heilsíðumynd á vinstri síðu með stuttum útskýringartexta
undir. Kaflaheiti og textinn sjálfur eru svo hægra megin og oft
er litla mynd að finna undir megintextanum. Myndirnar eru
ekki afmarkaðar af römmum en rammar í myndabókum skapa
yfirleitt fjarlægð á milli myndar og lesanda á meðan myndir
sem þekja heila síðu eða eru án ramma bjóða lesandanum inn
í myndina og þar með söguna sjálfa.
Myndir geta bætt heilmiklu við frásagnir og í barnabókum
sem gerast í fortíðinni sjá myndir lesendum oft fyrir auknum
upplýsingum um tímabilið sem lýst er og sagan gerist á.
Myndir listamannsins í Sögu úr síldarbæ njóta sín vel. Þetta eru
dempaðar, ljúfar og fallegar vatnslitamyndir sem falla vel að
efni bókarinnar og anda – þær eru gamaldags, ef svo má
segja, enda gerist sagan „í gamla daga“. Myndirnar bæta þó
litlu við það sem segir í textanum sjálfum heldur styðja þær við
og sýna það sem sagt er. Hér má nefna kaflann „Róið af stað“.
Á myndinni sést pabbi róa árabátnum en Siggi situr í skutnum.
Báturinn er drekkhlaðinn húsbúnaði sem lýst er í kaflanum á
undan. Himinn og haf renna saman „í einn samfelldan bláma“
(7) eins og þar stendur, við sjáum fugla svífa og synda. Undir
textanum á hægri síðu er svo mynd af sel. Um allt þetta er
fjallað í látlausum en tilþrifalitlum textanum.
Saga úr síldafirði er falleg bók en virðist varla vita hvað
hún er eða fyrir hvern. Uppsetning bókarinnar og umbrot
ásamt lýsandi kaflaheitum og myndatextum höfða líklega til
yngri barna, en frásögnin sjálf og það hversu mikill texti er
á hverri síðu höfðar væntanlega til eldri barna. Þetta breytir
því ekki að saga Siglufjarðar og saga síldarinnar hér á landi
kemur okkur öllum við og öll börn hefðu gott af að fræðast
um þennan tíma.
6
GuðjónÓ prentsmiðja notar tækjakost sem er í fremstu röð.
Þar má til að mynda nefna nýja Heidelberg Speedmaster
52. Vélin ræður við allt að 400gr pappír með vatnslakki
sem skilar prentörkinni þurri úr prentvélinni. Með þessu
má stytta vinnslutímann á vörunni verulega þar sem
prentgripurinn getur farið beint í frágang og skurð að
prentun lokinni. Lakkið á prentvélinni er vistvænt og er
fáanlegt í silkimöttu, möttu, glansi og háglansi. Allar
þessar lakktegundir skapa fallega áferð á prentgripinn.
Í raun má segja að stór hluti prentvinnslu hjá GuðjónÓ
sé stafrænn. Aðsend hönnuð gögn eru send beint á
stafrænan plötuskrifara (sem býr til prentplöturnar).
Með þessum fullkomnu tækjum getum við unnið þau
verk sem okkur berast hratt og örugglega og þannig
hjálpað viðskiptavinum að standa við skuldbindingar sínar.
UMHVERFISMÁL
GuðjónÓ, vistvæna prentsmiðjan, er fyrsta og eina prentsmiðja
landsins sem merkt getur prentgripi sína með umhverfi smerkinu
Svaninum. Prentsmiðjan fékk Svaninn fyrst árið 2002 og endurnýjun
árið 2008, en ströng skilyrði eru sett fyrir því að fá að taka
upp Svaninn. Stærstur hluti framleiðslu prentsmiðjunnar er á
umhverfi smerktum pappír eða á pappír sem viðurkenndur er af
umhverfi s merkinu Svaninum. Svansmerktur pappír þarf að upp-
fylla ströng skilyrði. Krafa er gerð um að 50% hráefnis séu
endurnýtt og einnig er þess krafi st að öll þau efni sem notuð eru við
pappírsframleiðsluna séu niðurbrjótanleg í nátturunni. Með ákveðnum
aðgerðum í prentsmiðjunni hefur nýtingarhlutfall á pappír hækkað
og góður árangur hefur náðst í að minnka afskurð á pappír. Að auki
gerir Svanurinn kröfu um að öll fl okkun pappírs sé mjög nákvæm.
Þess vegna ætti GuðjónÓ að vera fyrsti valkostur þeirra fyrirtækja sem
vilja að allir þættir rekstursins séu umhverfi svænir.
GuðjónÓ prentsmiðja hefur í áratugi
stutt margs konar menningarstarf-
semi. Þar má nefna tónlistarhátíðir,
myndlistarsköpun og aðrar listir.
Við viljum leggja okkar af mörkum til
að menning nái að vaxa og dafna í
samfélaginu.
Krafan um að fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög
taki upp ábyrga stefnu við innkaup og notkun vara
hefur vaxið á undanförnum árum. Í Staðardagskrá
21, sem mörg sveitarfélög hafa skrifað undir, er ætlast
til að innkaup taki mið af umhverfi nu. Í þessum svo-
kölluðu grænu innkaupum er eitt einfaldasta skrefi ð
að nota umhverfi smerktar vörur, ekki síst pappír og
prentgögn. Prentsmiðjan GuðjónÓ hefur hlotið vottun
hjá Norræna umhverfi smerkinu Svaninum og getur
því umhverfi smerkt allar vörur sínar.
Hjá GuðjónÓ leggjum við mikla áherslu á persónu-
lega þjónustu og komum til móts við allar óskir
viðskiptavina með faglegum metnaði. Við gætum
þess að hvert verkefni hafi einn ábyrgðarmann sem
fylgist með öllum þáttum verksins og geti upplýst
um gang mála á öllum stigum framleiðslunnar. Þeir
starfsmenn sem sjá um samskipti við viðskipta vini
hafa áratugareynslu í faginu og veita fúslega góða
ráðgjöf.
TÆ
KN
IN
Umhverfisvænn valkostur
Prentgripir frá GuðjónÓ eru umhverfismerktir
Persónuleg þjónusta – alla leið
Eina umhverfisvottaða prentsmiðjan
Tækjabúnaður af bestu gerð
VIÐ STYÐJUM
MENNINGU OG
MANNLÍF
ÞJÓNUSTAN
Prentsmiðjan fékk svansvottun árið 2000
Áratuga reynsla segir allt!
Persónuleg þjónusta alla leið!
Göngum hreint til verks!
www.gudjono.is · sími 511 1234
www.gudjono. s
Síld, síld og aftur síld …
Eftir Helgu Birgisdóttur
Örlygur Kristfinnsson. Saga
úr síldarfirði. Uppheimar og
Síldarminjasafn Íslands. 2011.