Spássían - 2011, Síða 52
52
GEGN TALSETNINGU
Á meðan almenningur í þýskumælandi löndum er almennt
fylgjandi talsetningu sem hinni einu sönnu kvikmyndaupplifun
og kunna oft betur við talsetningaraddir þekktra leikara en
upprunalegar raddir þeirra, eru líka til einstaklingar sem
eru á móti talsetningu. Vefsíðan against-dubbing.com hefur
að geyma gagnrýni á talsetningu og undirskriftasöfnun á
síðunni gegn forminu á að virka sem vogarafl í umræðunni um
málefnið í löndum þar sem talsetning er ríkjandi form þýðinga.
Listi yfir galla formsins sem birtur er á forsíðu síðunnar verður
að teljast afar góð samantekt á helstu göllum formsins:
Talsetning afbakar innihald – upprunaleiki,
brandarar og menningarlegar vísanir týnast.
Málhreimar og mállýskur standa óbreytt í
skjátextuðum kvikmyndum. Það sama á við hið
almenna andrúmsloft sem fylgir tungumálum –
japanska er ekkert lík spænsku.
Sérhver rödd er einstök, en það eru aldrei
jafnmargir talsetjarar og leikarar.
Andrúmsloft glatast – hljómurinn í
verksmiðjusal, á strönd eða í skógarrjóðri
verður að hinu flata hljóði hljóðstofunnar.
Varahreyfingar eru aldrei fullkomlega í takt
við tal, sem er ruglandi og hjálpar til við að
rífa niður andrúmsloft kvikmyndar.
Skjátextaðar kvikmyndir auka
tungumálaþekkingu og lestrarkunnáttu.
Skjátextun er mun ódýrari og ekki eins
tímafrek og talsetning.10
Listinn er nokkuð sannfærandi upptalning enda krefst það
mikils af þýðendum, talsetjurum, leikstjóra talsetningarinnar
og öðrum tæknimönnum sem koma að verkinu að komast hjá
þessum göllum. Ekki er hægt að búast við því að leikarar sem
taka sér nokkra daga í að endurvinna hlutverk frá grunni,
og hafa jafnvel ekki séð myndina, nái góðum árangri með
því að taka talsetninguna upp atriði fyrir atriði og líkja
eftir frammistöðu leikara upprunalegu útgáfunnar.11 Þetta
virðist samt ekki skipta máli, því í Þýskalandi eru myndir í
upprunalegri útgáfu með skjátexta sjaldan sýndar og er
yfirleitt ekki þröngt setið á þeim sýningum. Það er því ljóst að
nokkuð er til í athugasemd Nornes um að hefðin á bak við þá
þýðingaraðferð sem alist er upp við skipti sköpum.
TAKMARKAÐ ÚRVAL
Þegar talsetjari/leikari kemur inn í hlutverk með nýjan texta
sem leggja skal ofan á tilbúna kvikmynd vandast sambandið
á milli leikara, hlutverks og stjörnuímyndar. Í Þýskalandi er sá
hátturinn oftast hafður á að talsetjari er tengdur ákveðnum
leikara og sér um flest hlutverk sem hann tekur að sér. Þannig
talar Klaus Sonnenschein fyrir flest hlutverk Morgan Freemans.
En Sonnenschein talar ekki aðeins fyrir Freeman heldur er hann
einnig rödd eftirfarandi leikara: Danny DeVito, Bob Hoskins,
John Goodman, Gene Hackman, Brian Cox, William Shatner
og margra fleiri. Það er sama hversu hæfileikaríkur herra
Sonnenschein er, hann er ekki samnefnarinn sem sameinar
leikhæfileika Danny DeVitos og Morgan Freemans, enda er
varla hægt að ímynda sér ólíkari leikara, bæði hvað varðar
útlit (Freeman er hávaxinn, grannur og þeldökkur á meðan
DeVito er afar smávaxinn, feitur og hvítur) og stjörnuímynd
(Freeman leikur oft yfirvegaða, menntaða menn á meðan
DeVito tekur að sér freka, háværa nöldurseggi). Sonnenschein
talar fyrir fjölbreyttan hóp leikara sem eru þó margir hverjir
ekki ólíkar týpur; í eldri kantinum, hvítir og þybbnir.
MENNINGARHREINSUN
Talsetning er flókið samspil margra atriða sem snúast
um leifarnar af frumtextanum, sem er myndin á skjánum.
Smáatriðin sem huga þarf að eru mörg og nánast ómögulegt
að gera þýðingu án mistaka, misskilnings eða einhvers konar
afbökunar á upprunalega verkinu. Það þarf þó ekki alltaf
að vera neikvætt. Myndum sem fá dræmar undirtektir í
heimalandinu má breyta með talsetningu og eru dæmi um að
fjárhagslega óarðbærar myndir í heimalandinu hafi gengið
vel eftir breytingar með talsetningu.13 Menningarleg verðmæti
glatast heldur ekki alltaf með talsetningu, en mynd eins og
Gladiator má alveg við því að vera talsett þar sem enginn
talaði hvort eð er ensku í Róm til forna og því ekki mikið um fín
menningarleg blæbrigði sem gæta þarf að.14
STAÐALMYNDIR FEGRAÐAR
Talsetning hefur mikil áhrif á menningu og viðhorf þjóða í
eigin garð. Meðvitund þjóðar um umheiminn og stöðu sína
í stærra samhengi er líklegri til að vera minni eða öðruvísi
Sonnenschein er þó alls ekki eini leikarinn sem
tekur að sér svo margar stjörnuraddir og eru hér
nefnd nokkur dæmi sem tala sínu máli:
Thomas Danneberg: Dan Akroyd, John Travolta,
Sylvester Stallone, Nick Nolte, Dennis Quaid,
Arnold Schwarzenegger, John Cleese, Terence Hill,
Rutger Hauer, Christopher Lambert ásamt fleirum.
Christian Brückner: Robert DeNiro, Martin Sheen,
Peter Fonda, Harvey Keitel, Warren Beatty, Burt
Reynolds, Elliot Gould, Dennis Hopper, Alain Delon
ásamt mun fleirum.
Traudel Haas: Diane Keaton, Annette Bening,
Kristin Scott Thomas, Kathleen Turner, Frances
McDormand, Rene Russo, Sissy Spacek, Mia
Farrow, Sigourney Weaver ásamt mörgum fleirum.
Tilly Lauenstein: Simone Signoret, Ingrid Bergman,
Lana Turner, Shelley Winters, Barbara Stanwyck,
Lauren Bacall, Bette Davis, Katherine Hepburn og
fleiri.12
~
~
~
~
~
~
~