Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Qupperneq 25
Iðnaður um allt land13. mars 2020 KYNNINGARBLAÐSérblað 03. janúar 2020KYNNINGARBLAÐ
LOFTSTOKKAHREINSUNIN K2:
Hreinsun loftræstikerfa í
fjölbýlishúsum mikilvæg
Loftstokkahreinsunin K2 ehf. sérhæfir sig í hreinsun og sótthreinsun loftræstikerfa
og hefur yfir áratuga reynslu af
hreinsun loftræstikerfa á Íslandi.
Magnús Ásmundsson, verkefnastjóri
K2, segir fyrirtækið sinna
einstaklingum sem og fyrirtækjum
og það sé nóg að gera enda
gríðarlega mikilvægt að hreinsa
loftræstikerfi reglulega áður en þau
skaða heilsu fólks.
Stundum er ekki þörf á hreinsun –
þetta getið þið gert sjálf
Það kemur stundum fyrir að
starfsmaður K2 mætir til að skoða
loftræstingu, til dæmis í baðherbergi
í fjölbýlishúsi, og þá kemur í ljós að
ekki er þörf á hreinsun. Stundum
þarf bara að skrúfa túðuna úr og
þrífa. En þetta geta allir gert sjálfir.
Þegar þörf er á hreinsun – hvernig
fer hún fram?
„Loftræsting í fjölbýlishúsum er í
flestum tilfellum á gluggalausum
baðherbergjum og geymslum. Það
er mjög mikilvægt að loftræstingin
nái að losa raka og hita sem safnast
upp því þegar loftstokkar eru skítugir
og ná ekki að loftræsta rýmið þá er
hætta á að raki þéttist í herberginu
sem býður svo upp á skemmdir og
jafnvel myglu.
Hreinsun fer þannig fram að
starfsmenn K2 mæta og fara
annaðhvort upp á þak eða á
lagnaloft sé það til staðar, þaðan
eru loftræstistokkar hreinsaðir frá
þaki niður í hverja íbúð fyrir sig og
í sumum tilfellum sótthreinsaðir.
Einnig er blásari hreinsaður sé hann
til staðar.
Að því loknu þarf að fara inn í
allar íbúðir í húsinu sem tengjast
loftræstingunni og þar er lofttúðan
tekin úr og þrifin, og restin af
loftstokk hreinsuð. Það er lítið ónæði
fyrir íbúa hússins við svona hreinsun
og yfirleitt tekur ekki meira en 10–15
mínútur að klára hverja íbúð eftir að
búið er að hreinsa lagnir og blásara
frá þaki.
Æskilegt er að hreinsa útsogskerfi
frá baðherbergjum á 3–5 ára fresti.“
Magnús bætir við að K2 bjóði
upp á ástandsskoðun loftræstikerfa
og mat á því hvort tími sé kominn á
hreinsun; ekkert er rukkað fyrir þá
þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Þjónustusíminn hjá
Loftstokkahreinsun K2 ehf.
er 775-7770 og 557-7000.
Heimasíðan er: http://k2.is/
Þessi aðgerð er framkvæmd
í þremur skrefum:
1. Þú byrjar á því að skrúfa
miðjuna úr
2. Síðan snýrðu túðunni til að
losa hana frá
3. Loks skolar þú túðuna og
skrúfar hana síðan aftur
BÍLMÁLNING:
Glæsilegt réttingar-
og sprautuverkstæði
Bílmálning er glæsilegt þjónustufyrirtæki fyrir bíla, en þar er sinnt öllu því sem kemur
að viðgerðum og tjónaskoðun á bílum.
Öll alhliða þjónusta
Bílmálning sérhæfir sig í
tjónaviðgerðum á öllum tegundum
bifreiða og veitir viðskiptavinum
sínum hágæða þjónustu. Hjá
fyrirtækinu vinna eingöngu
fagmenn með áratuga
langa menntun, þjálfun
og reynslu í sínu fagi.
Starfsmennirnir
sækja reglulega
námskeið,
hérlendis og
erlendis, til að
verða enn betri
í sínu fagi en
þeir kappkosta
að skila
viðskiptavinum
sínum góðu og
vönduðu verki.
Bílmálning býður
einnig upp á hágæða
bílasprautun fyrir allar
gerðir farartækja, svo sem
bifreiðar, mótorhjól, báta,
fjórhjól og fleira. Starfsmenn
Bílmálningar sjá svo einnig um
að útvega viðskiptavinum sínum
bílaleigubíl meðan á viðgerð stendur
svo að viðskiptavinurinn verði fyrir
sem minnstu raski í daglegu lífi.
Cabas-vottað verkstæði
Bílmálning þjónustar öll
tryggingafélög, fyrirtæki, bílaumboð
og einstaklinga, en þeir vinna eftir
Cabas-tjónmatskerfinu. Cabas-
kerfið er beintengt
gagnagrunni
tryggingafélaganna. Því
þurfa ökutækjaeigendur
ekki að fara í skoðunarstöð
tryggingafélaganna til að láta
meta tjónið heldur geta þeir farið til
verkstæði með Cabas. Bílmálning sér
auk þess um tjón sem eigendur þurfa
að bera sjálfir og gera viðskiptavinum
sínum ráðgjöf og föst verðtilboð.
Bílmálning er staðsett að Mánamörk
3 í Hveragerði
Hægt er að hafa samband við
Bílmálningu í síma er 867-7604 eða
með því að hafa samband í gegnum
Facebook-síðuna https://www.
facebook.com/bilmalningis