Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Blaðsíða 33
PRESSAN 3313. mars 2020
starfsemina ýtt undir þetta.
Sérfræðingar telja almennt séð
að Area 51 sé „ fæðingarstaður
njósna úr lofti“. Í því samhengi er
rétt að hafa í huga að svæðið er
risastórt og var afskekkt framan af.
Það er um 200 kílómetrum norð-
vestan við Las Vegas. Flugherinn
segir að svæðið sé stærsta svæði
heims á landi og það sem ræður
yfir stærstu lofthelginni fyrir starf-
semi hers á friðartímum. Svæðið
er um það bil á stærð við Conn-
ecticut eða um 14.000 ferkíló-
metrar. Það er ósköp lítið þarna,
að minnsta kosti að sjá. Eiginlega
ekkert annað en eyðimörk fjarri
öllu. Það var gert af ráðnum hug
því þegar starfseminni var kom-
ið á laggirnar 1954 vildi Dwight
Eisenhower, þáverandi forseti, að
leynilegur staður yrði fyrir valinu.
Tveir starfsmenn leyniþjón-
ustunnar CIA voru gerðir út af
örkinni til að finna vænlega stað-
setningu fyrir rekstur njósnastarf-
semi í háloftunum. Þetta þurfti að
vera afskekktur staður þar sem
hægt væri að gera tilraunir með
nýjar njósnaflugvélar sem gætu
fylgst með vopnabrölti Sovét-
manna, þar á meðal kjarnorku-
vopnabrölti þeirra. Leitin tók ekki
langan tíma. Þeir fundu stað sem
stóð algjörlega undir vænting-
um forsetans. Uppþornað vatn í
miðju Nevadaríki. Svo vel vildi til
að þetta svæði var þá þegar notað
til leynilegrar starfsemi en þar var
unnið með kjarnorkuvopn. Nán-
ast útilokað var á þeim tíma að
fólk reyndi að komast þarna inn,
sérstaklega vegna þess að kjarn-
orkusprengjur voru sprengdar
þarna í tilraunaskyni. Ekki leið
á löngu þar til verkfræðingar,
njósnarar og hermenn voru
mættir á svæðið og breyttu því í
„fæðingarstað háloftanjósna“.
Tvær flugvélar tengjast svæð-
inu sérstaklega sterkum böndum.
Önnur er hin fræga U-2 sem var
notuð til að fylgjast með vaxandi
mætti Sovétríkjanna á sviði kjarn-
orku. Sovétmenn sprengdu fyrstu
kjarnorkusprengju sína 1949 og
byrjuðu þá að hrekja allar óvið-
komandi flugvélar úr lofthelgi
sinni til að viðhalda leynd yfir
verkefninu. Af þeim sökum gátu
Bandaríkjamenn ekki fylgst með
því sem var að gerast en á þeim
tíma réðu þeir ekki yfir gervi-
hnöttum sem var hægt að nota til
að ná góðum myndum. Af þess-
um sökum var byrjað að hanna
og smíða U-2 vélina sem gat flog-
ið í 70.000 feta hæð og flogið um
5.000 kílómetra án þess að taka
eldsneyti. Vélin varð eitt mikil-
vægasta njósnatæki bandarískrar
hersögu. Sem dæmi má nefna að
í júlí 1956 var slíkri vél flogið langt
inn yfir Sovétríkin þar sem mynd-
ir voru teknar sem sýndu að Sov-
étmenn höfðu ekki náð eins langt
á hernaðarsviðinu og þeir vildu
vera láta. Þetta veitti Bandaríkj-
unum vissu fyrir að þau stæðu
Sovétríkjunum ekki langt að baki
á því sviði. Þann 1. maí 1960 skutu
Sovétmenn U-2 njósnavél nið-
ur í sovéskri lofthelgi. Flugmað-
urinn var handtekinn og Sovét-
menn náðu flugvélarbrakinu og
neyddist bandaríski herinn til
að viðurkenna njósnastarfsemi
sína. Í framhaldi af því var SR-
71 njósnavélin smíðuð á aðeins
20 mánuðum. Hún gat flogið í
80.000 feta hæð og á allt að 3.400
kílómetra hraða á klukkustund.
Sem sagt of hátt og of hratt til að
hægt væri að skjóta hana niður.
Það var á þessum tíma sem
svæðið fékk heitið Area 51. Flug-
skýlum var fjölgað sem og flug-
brautum, íbúðarhúsnæði og
annarri aðstöðu enda fór starf-
semin vaxandi. En það dró ekki
úr mikilvægi þess að halda starf-
seminni leyndri því kalda stríðið
var í algleymingi. CIA kynti und-
ir hugmyndum um að fljúgandi
furðuhlutir væru á ferð við Area
51 því það hjálpaði til við að leyna
því sem fór raunverulega fram
þar, tilraunir með undarlega út-
lítandi flugvélar sem flugu hátt
og á ótrúlegum hraða. Leyndin
hvílir enn yfir svæðinu og því sem
þar fer fram og stjórnvöld gera
sitt besta til að viðhalda henni.
Til dæmis er leynilegt flugfélag
rekið sem flytur farþega til og frá
svæðinu nær stanslaust alla daga.
Einnig sjá verktakar, sem nefn-
ast Cammo Dudes, um gæslu
á svæðinu. Þeir klæðast felu-
búningum og aka um svæðið í
ómerktum hvítum pallbílum og
tryggja að óviðkomandi séu ekki
þvælast þar.
Geimverurnar
Miðað við það sem fram kemur
hér á undan þarf ekki að undra að
Area 51 sé oft tengt við geimverur
og fljúgandi furðuhluti. Svæðið er
ekki bara dularfullt æfingasvæði
hersins heldur einnig svæði sem
er notað til njósnastarfsemi og
í næsta nágrenni er unnið með
kjarnorkuvopn. Það er því eðli-
legt að hlutir á borð við dróna,
flugvélar, sem sjást ekki í ratsjám,
vopnatilraunir og heræfingar
geti valdið því að fólk telji sig sjá
fljúgandi furðuhluti. Allt þetta og
meira til fer fram á Area 51.
Í frægu viðtali KLAS-útvarps-
stöðvarinnar í Las Vegas við Bob
Lazar, árið 1989, sagði hann að
hugsanlega væru tengsl á milli
Area 51 og geimvera. Lazar var
„uppljóstrari“ sem hafði starfað
á svæðinu og sagðist hafa séð eitt
og annað þar sem staðfesti að
þar væru fljúgandi furðuhlutir og
geimverur. KLAS var fyrsti stóri
fjölmiðillinn til að tengja svæð-
ið við geimverur. Í viðtalinu kom
fram að Lazar taldi að Area 51 væri
eingöngu hannað til að vinna við
eitt og annað sem tengdist geim-
verum og tækni þeirra.
Orðrómur um tengsl geim-
vera og Area 51 hafði verið á
sveimi síðan löngu áður en við-
talið við Lazar var tekið eða allt
síðan bókin The Roswell Incident
eftir Charles Berlitz og William
Moore var gefin út 1980. Í henni
var farið yfir hrap dularfulls hlut-
ar í Roswell í Nýju-Mexíkó 1947.
Á þeim tíma sögðu fjölmiðlar að
um „fljúgandi furðuhlut“ hefði
verið að ræða. Herinn sagði að
um veðurloftbelg hefði verið
að ræða. Málið vakti ekki mikla
athygli á sínum tíma.
Síðar hefur komið fram að
Lazar sé talinn hafa logið til um
menntun sína en hann sagð-
ist vera með háskólagráður frá
MIT og Cal Tech en þar kannast
enginn við að hann hafi stundað
nám. En hann var yfirvegaður og
talaði af öryggi í fyrrnefndu við-
tali og kannski má segja að hon-
um hafi tekist að koma ákveðn-
um hugmyndum inn í huga fólks
og þá verður ekki aftur snúið.
Frásögn hans kynti undir
samsæriskenningum sem hafa
þróast með tímanum og náð fót-
festu í poppmenningu samtím-
ans. Þar má nefna kvikmyndina
Independence Day og sjónvarps-
þættina X-Files. n
„Við ráð-
leggjum
fólki að reyna
ekki að komast
inn á svæði sem
nýtur alríkis-
verndar
Úr fjarska Hér sést glitta í svæðið. Hin fræga U-2 flugvél Notuð til
að njósna um Sovétríkin.
Hávær
orðrómur
Þættirnir X-Files
voru byggðir á
samsæriskenn-
ingum um Area 51.
Svæði 51 og geimverurnar –
Hvað er rétt og hvað er rangt?
Afgirt Stranglega bannað er að fara inn á Area 51.