Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Blaðsíða 28
Iðnaður um allt land 13. mars 2020KYNNINGARBLAÐ V ið höfum verið að í ríflega 30 ár og erum með afar stóran og góðan kúnnahóp sem hefur verið hjá okkur í mörg ár,“ segir Þorvarður Kristjánsson, framkvæmdastjóri hjá GSG sem sinnir meðal annars bílastæðamálun, vélsópun, malbiksviðgerðum og lóðaþjónustu. GSG er treyst fyrir mikilvægum verkefnum fyrir Vegagerðina, Reykjavíkurborg og ýmis stórfyrirtæki en GSG þjónar ekki síður smærri aðilum, til dæmis húsfélögum. GSG býr yfir fullkomnum tækjakosti sem auk þekkingar og reynslu starfsmanna stuðlar til dæmis að góðu viðhaldi á bílaplönum og lóðum í kringum fjölbýlishús. Engin samskeyti eftir malbiksviðgerðir Í malbiksviðgerðum býður GSG upp á samskeytalausar viðgerðir á holum og sprungum sem myndast í malbiki. Til þessara verkefna er notast við gashlemm sem gerir starfsmönnum kleift að hita upp malbik í kringum skemmdir. Með þessu mætir heitt malbik heitu malbiki og þannig næst að hindra að samskeyti verði sjáanleg. Vélsópun og þvottur bílastæða GSG býður upp á vélsópun á bílaplönum og gangstígum. Einnig er boðið upp á að þvo plön með vatni en það er oft nauðsynlegt, sérstaklega þegar plön hafa verið sandborin yfir veturinn. Nokkrar gerðir af sópum eru til staðar og notast er við þá sem henta best hverju verkefni. Bílastæðamálun GSG býður fyrirtækjum, bæjarfélögum, húsfélögum og öðrum upp á málun bílastæða og aðrar yfirborðsmerkingar, t.d. örvar, gangbrautir, blá stæði fyrir fatlaða, biðskylduþríhyrninga, gula kanta, gula krossa, miðlínur gatna, hraðatakmarkanir og fleira. Eingöngu er notast við fullkomnasta tækjakost sem völ er á hverju sinni og sérstaka gatnamálningu sem samþykkt er af Vegagerðinni. Rafhleðslustöðvar til að mæta rafbílavæðingunni Uppsetning rafhleðslustöðva er nýjasti þátturinn í starfsemi GSG. „Þetta er vinsæl þjónusta sem við bjóðum mikið upp á þessa dagana. Eftirspurnin fer sívaxandi enda líður vart sá dagur að ekki bætist við rafbílseigandi á landinu,“ segir Þorvarður, en fyrirtækið setur meðal annars upp rafhleðslustöðvar við fjölbýlishús og fyrirtæki. GSG útvegar hleðslustöð sem hentar hverju sinni, grefur fyrir undirstöðum og lögnum, gengur frá á eftir og málar græn stæði þar sem við á. Nánari upplýsingar um þjónustu GSG er að finna á vefsíðunni gsg.is. Einnig er gott að hafa samband í síma 588-4800 eða í gegnum netfangið thorvardur@gsg.is. GSG: Málun á bílastæðum, malbiksviðgerðir, vélsópun og rafhleðslustöðvar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.