Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Síða 28
Iðnaður um allt land 13. mars 2020KYNNINGARBLAÐ
V ið höfum verið að í ríflega 30 ár og erum með afar stóran og góðan
kúnnahóp sem hefur verið hjá
okkur í mörg ár,“ segir Þorvarður
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
hjá GSG sem sinnir meðal annars
bílastæðamálun, vélsópun,
malbiksviðgerðum og lóðaþjónustu.
GSG er treyst fyrir mikilvægum
verkefnum fyrir Vegagerðina,
Reykjavíkurborg og ýmis
stórfyrirtæki en GSG þjónar
ekki síður smærri aðilum, til
dæmis húsfélögum. GSG býr yfir
fullkomnum tækjakosti sem auk
þekkingar og reynslu starfsmanna
stuðlar til dæmis að góðu viðhaldi
á bílaplönum og lóðum í kringum
fjölbýlishús.
Engin samskeyti eftir
malbiksviðgerðir
Í malbiksviðgerðum býður GSG
upp á samskeytalausar viðgerðir
á holum og sprungum sem
myndast í malbiki. Til þessara
verkefna er notast við gashlemm
sem gerir starfsmönnum kleift
að hita upp malbik í kringum
skemmdir. Með þessu mætir heitt
malbik heitu malbiki og þannig
næst að hindra að samskeyti
verði sjáanleg.
Vélsópun og þvottur bílastæða
GSG býður upp á vélsópun á
bílaplönum og gangstígum. Einnig
er boðið upp á að þvo plön með
vatni en það er oft nauðsynlegt,
sérstaklega þegar plön hafa verið
sandborin yfir veturinn. Nokkrar
gerðir af sópum eru til staðar og
notast er við þá sem henta best
hverju verkefni.
Bílastæðamálun
GSG býður fyrirtækjum,
bæjarfélögum, húsfélögum og
öðrum upp á málun bílastæða
og aðrar yfirborðsmerkingar, t.d.
örvar, gangbrautir, blá stæði fyrir
fatlaða, biðskylduþríhyrninga,
gula kanta, gula krossa, miðlínur
gatna, hraðatakmarkanir og
fleira. Eingöngu er notast við
fullkomnasta tækjakost sem völ
er á hverju sinni og sérstaka
gatnamálningu sem samþykkt er
af Vegagerðinni.
Rafhleðslustöðvar til að mæta
rafbílavæðingunni
Uppsetning rafhleðslustöðva er nýjasti
þátturinn í starfsemi GSG. „Þetta er
vinsæl þjónusta sem við bjóðum mikið
upp á þessa dagana. Eftirspurnin fer
sívaxandi enda líður vart sá dagur að
ekki bætist við rafbílseigandi á landinu,“
segir Þorvarður, en fyrirtækið setur
meðal annars upp rafhleðslustöðvar
við fjölbýlishús og fyrirtæki. GSG
útvegar hleðslustöð sem hentar
hverju sinni, grefur fyrir undirstöðum
og lögnum, gengur frá á eftir og
málar græn stæði þar sem við á.
Nánari upplýsingar um þjónustu GSG er
að finna á vefsíðunni gsg.is. Einnig er gott
að hafa samband í síma 588-4800 eða í
gegnum netfangið thorvardur@gsg.is.
GSG:
Málun á bílastæðum,
malbiksviðgerðir, vélsópun
og rafhleðslustöðvar