Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Qupperneq 26
Iðnaður um allt land 13. mars 2020KYNNINGARBLAÐ
HVELLUR-REIÐHJÓLAÞJÓNUSTA ALLT ÁRIÐ:
Gæðamerki, góð
þjónusta og gott verð
Hvellur er orðið gamalt og reynt fyrirtæki í hjólreiðabransanum og eitt af fáum sem rekur
alvöru reiðhjólaverkstæði,“ segir
Guðmundur Tómasson. Hvellur var
stofnað á Grenivík, en Guðmundur
og fjölskylda hans hafa rekið
fyrirtækið frá árinu 2004 og á
Smiðjuvegi frá árinu 2007.
Hjá Hvelli fást hjól fyrir alla,
allan aldur og hvort sem fólk vill
hjól til daglegra nota eða keppni.
„Við byrjuðum snemma að flytja
inn reiðhjól og erum eitt af elstu
fyrirtækjum landsins í þessum
bransa. Við erum með fjölbreytt
úrval reiðhjóla fyrir alla aldurshópa.
Við erum einnig með mikið af
aukahlutum, dekkjum, slöngum og
öllu því sem þarf til reksturs hjóla.
Hybrid-hjólin, sem eru blanda af
götu- og fjallahjóli, og barnahjólin,
eru vinsælust,“ segir Guðmundur.
Hjólreiðar eru ekki lengur bundnar
við árstíma
Hjólreiðar hafa aukist mikið
síðustu ár og þá helst þannig að
þær eru stundaðar allt árið í stað
hluta árs eins og tíðkaðist áður.
Keppnishjólreiðar hafa einnig aukist
mikið. „Það er alltaf aukning og mikið
um fólk, sem ekki hefur hjólað mikið
áður, jafnvel eldra fólk, sem vill fara
að hjóla og hreyfa sig meira.“
Hvellur hóf innflutning á Fuji-
hjólum árið 2006, en þau eiga
sér langa sögu sem einn elsti
hjólaframleiðandi heims, en
fyrirtækið byrjaði um 1900 að
framleiða hjól. Fyrirtækið var áður
japanskt, en er nú bandarískt og er
á toppnum þar í gæðum og leiðandi
í hönnun keppnisreiðhjóla. Hvellur
selur einnig hjól frá Puky, sem er
þýskt gæðamerki í barnahjólum,
þríhjólum, sem eru aðalsöluvaran,
jafnvægishjólum og hlaupahjólum.
„Fyrirtækið er einkafyrirtæki og
það er áhugavert að geta þess að
fyrirtækið er verndaður vinnustaður,“
segir Guðmundur. „Rafmagnshjólin
frá Fuji og Breezer eru framleidd í
Póllandi, gæði og ending rafhlaðna
er í hámarki. Rafmagnshjólin eru í
seinni þróun hérlendis, miðað við
önnur Evrópulönd, eins og til dæmis
Holland þar sem þau eru að fara
fram úr venjulegum hjólum í sölu.“
Hvellur flytur einnig inn margar
gerðir reiðhjólahjálma frá KED,
hjálmarnir eru framleiddir í
Þýskalandi og eru einstaklega
vandaðir og til í öllum stærðum.
Ungbarnahjálmarnir eru framleiddir
í sömu stöðlum og hjálmarnir fyrir
unglinga og fullorðna.
Alhliða reiðhjólaviðgerðir
Hvellur hefur boðið upp á alhliða
reiðhjólaviðgerðir frá upphafi, þar
sem boðið er upp á allar viðgerðir,
fyrir hvaða hjól sem er.
Hjá Hvelli fást hins vegar
ýmsar vinsælar sumarvörur eins
og körfuboltaspjöld. Á veturna
taka vetrarvörur við, samhliða
reiðhjólunum, en Hvellur er
langstærsti aðilinn hér á landi
í innflutningi á snjókeðjum fyrir
allar gerðir farartækja og eru
keðjuviðgerðir einnig stór hluti af
rekstrinum.
Hvellur hefur gert nýja samninga
við birgja um snjókeðjur þannig
að verðið hefur lækkað og gæði
og fjölbreytni aukist. Fólksbíla-
og jeppakeðjurnar hafa slegið
í gegn ásamt snjókeðjum fyrir
dráttarvélar, allar gerðir vinnuvéla
og flutningabíla.
Hvellur er á Smiðjuvegi 30,
Kópavogi.
Heimasíða: hvellur.com.
Opnunartími verslunar og
verkstæðis er kl. 9–18 virka daga.
Á sumrin er einnig opið í verslun á
laugardögum frá kl. 13–16.