Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Síða 35
SAKAMÁL 3513. mars 2020
sem þeim virtist vera Paul og
sannfærðust þeir enn frekar um
það þegar þeir sáu að hann gekk
að bíl eins og Paul átti, samkvæmt
upplýsingum frá Lee Ann.
Ralph lét til skarar skríða og
skaut manninn til bana.
Myrtur fyrir mistök
Víkur nú sögunni aftur að Alex-
ander Algeri, því maðurinn sem
lá andvana á götunni var ekki
Paul. Þar var um að ræða Alex-
ander, besta vin Pauls og með-
eiganda að líkamsræktarstöðinni
og þeir vinirnir áttu eins bíl – því
miður fyrir Alexander.
Hvort Ralph og Scott voru
meðvitaðir um mistökin þegar
þeir óku aftur til Flórída liggur
ekki fyrir, en þeir hafa án efa kom-
ist að því fljótlega að Paul var enn
sprelllifandi.
Hvað sem því öllu líður þá
hafði morðið enga eftirmála fyrir
þá fyrr en ári síðar og gott betur.
Scott handtekinn
Rúmu ári eftir morðið var Scott
Paget handtekinn. Þegar hann
var yfirheyrður kjaftaði á honum
hver tuska og hann upplýsti að
Ralph hefði skotið Alexander. Þá
fyrst varð ljóst að Alexander hafði
verið myrtur í misgripum fyrir
Paul, því Scott sagði lögreglunni
alla söguna; frá ástarsambandi
Ralphs og Lee Ann og fyrirætlun-
um þeirra.
Lee Ann og Ralph voru um-
svifalaust handtekin og ákærð
fyrir morð.
„Ég vil að hann verði drepinn“
Við réttarhöldin sór Lee Ann og
sárt við lagði að hún hefði ekkert
haft með morðið að gera og væri
alsaklaus. Á meðal vitna ákæru-
valdsins var eiturlyfjasali að nafni
Michael Paglianti og hann sagðist
hafa verið viðstaddur þegar Lee
Ann lét Ralph fá ljósmyndina af
Paul. Michael sagði að Lee Ann
hefði þá sagt við Ralph: „Ég vil að
hann verði drepinn.“
Tvennum sögum fer af frá-
sögnum Lee Ann og Ralphs við
réttarhöldin. Annars vegar seg-
ir að Ralph hafi aldrei bendlað
ástkonu sína við ódæðið og hins
vegar að þau hafi reynt að skella
skuldinni á hvort annað.
Þegar upp var staðið fengu
skötuhjúin lífstíðardóm og Scott
Paget fékk átján ára dóm. n www.gilbert.is
VERÐ frá:
29.900,-
arc-tic Retro
GÆÐA ÚR Á GÓÐU VERÐI
Svissnesk quartz gangverk
ÍSLENSK HÖNNUN
MYRTUR FYRIR MISTÖK
n Lee Ann vildi eiginmann sinn feigan n Ástmaður hennar tók að sér verkið n Ráðabruggið endaði á annan veg en þau ætluðu
„Þar hafði hún kynnst
karli nokkrum, Ralph
Salierno, vitgrönnu vöðva-
búnti sem sá sér farborða
með handrukkun.
Lee Ann
Reidel Lagði
á ráðin ásamt
ástmanni
sínum.
Ástmaðurinn
Ralph Salierno var
að sögn vitgrannt
vöðvabúnt.
Hjálparhellan Scott Paget samþykkti
að aðstoða Ralph gegn greiðslu.