Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Qupperneq 38
38 13. mars 2020STJÖRNUSPÁ Lesið í tarot klámstjörnu stjörnurnar Spáð í Afmælisbörn vikunnarn 16. mars Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður, 50 ára n 17. mars Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur, 44 ára n 18. mars Kogga listakona, 68 ára n 18. mars Heimir Karlsson útvarpsmaður, 59 ára n 19. mars Björgólfur Thor Björgólfsson kaupsýslumaður, 53 ára n 20. mars Gísli Rúnar Jónsson leikari, 67 ára n 21. mars Atli Þór Fanndal blaðamaður, 37 ára Naut - 20. apríl–20. maí Fiskur - 19. febrúar–20. mars Vatnsberi - 20. janúar–18. febrúar Steingeit - 22. desember–19. janúar Bogmaður - 22. nóvember–21. desember Sporðdreki - 23. október–21. nóvember Vog - 23. sept.–22. október Meyja - 23. ágúst–22 .sept. Ljón - 23. júlí–22. ágúst Krabbi - 22. júní–22. júlí Tvíburi - 21. maí–21. júní Stjörnuspá vikunnar Gildir 15. – 21. mars Þú fyllist miklum eldmóði, sérstaklega varðandi allt er varðar hollustu og heil- brigði. Þú finnur þörf fyrir að hreyfa þig og það lætur þér líða afskaplega vel. Þú ert samt ekki hrifin/n af hefðbundnum líkamsræktarstöðvum en finnur tíma á óvæntum stað sem á eftir að fylla þig lífshamingju. Undanfarna mánuði hefur þér fundist eins og enginn hafi tekið eftir þér og að þú sért eiginlega ósýnileg/ur. Í þessari viku hins vegar kemstu að því að fólk hefur vissulega tekið eftir því góða starfi sem þú hefur unnið og þú uppskerð laun erfiðis þíns. Virkilega spennandi tækifæri verður á vegi þínum. Líf þitt hefur einkennst af ringulreið undanfarið og þér finnst þú stundum vera að missa tök á lífinu. Nú færist hins vegar ró yfir allt og þú sættir þig fyllilega við þitt hlutskipti í lífinu. Hlutir fara eins og þeir fara og maður getur ekki breytt öðrum en sjálfum sér. Þetta skaltu hafa hugfast til að forðast frekari örvilnan. Þú tekur til hendinni og endurskipuleggur þig frá A til Ö. Þú færð endanlega leiða á öllu ruslinu í kringum þig og ákveður að taka til í kringum þig. Hins vegar felst þessi endurskipulagning og tiltekt einnig í því að kafa ofan í sjálfið þar sem þú verð- ur að meta hvað sé nauðsynlegt fyrir þig til að lifa sómasamlegu lífi. Síðustu vikur hafa verið þér erfiðar og það hefur mikið mætt á þér. Svo mikið að þú hefur ekki getað eyrnamerkt tíma til að rækta þig sjálfa/n eða leyst vandamál sem hvíla þungt á þér. Nú er þungu fargi af þér létt og þú dembir þér í mikla sjálfsvinnu til að ákveða hvert þú ætlar að fara með lífið og núverandi samband sem þú ert í. Þú hefur verið að læðast með veggjum og látið lítið fyrir þér fara, sem er svo sem ekki mjög ólíkt þér. Þú nýtur einverunnar og hefur þurft að spá í aðeins of mörg praktísk atriði. Nú er hins vegar komið að þér að sletta úr klaufunum og þú ferð á óviðjafnanlegan viðburð sem opnar nýjan heim. Þú þarft að eyða næstu viku eða tveimur í að sleppa tökunum á ákveðnu verkefni eða vandamáli og fyrirgefa. Þú átt yfirleitt auðvelt með að fyrirgefa og halda áfram, en í þetta sinn reynist þér það erfitt, einhverra hluta vegna. Gamall vinur kemur aftur inn í líf þitt og þarf hjálp. Hins vegar er þessi vinur ekki allur þar sem hann er séður. Þú átt stundum erfitt með að brjóta odd af oflæti þínu en í þessari viku verður þú að taka á honum stóra þínum. Þú kyngir stoltinu þegar þú biður um hjálp frá reynsluminna fólki en þér og það pirrar þig að þetta fólk hafi rétt fyrir sér. Þú lærir mikilvæga lexíu um samvinnu sem þú mátt ekki gleyma. Það er allt á fullu spani hjá þér þessa dagana, kæri bogmaður. Þú sérð atvinnu- tækifæri sem heillar þig og þú stekkur ekki aðeins á það heldur trampar á því af öllum þínum mætti. Þú ert tilbúin/n að byrja upp á nýtt á þínum ferli, fara í allt aðra átt og það eru virkilega skemmtileg- ir tímar fram undan. Þú ferð aðeins út úr boxinu og stingur upp á hugmynd sem fólkið í kringum þig kveikir ekki alveg strax á. Gefðu því tíma – það fattar þetta á endanum. Svo er það blessað fjölskyldulífið þar sem aldrei ríkir lognmolla. Þú nærð að vera höfuð fjölskyldunnar, heldur ávallt ró þinni, en núna fer þessi ringulreið verulega í taugarnar á þér. Þú hefur enga þolinmæði fyrir innan- tómum orðum og innihaldslausum samræðum. Tími þinn er afar dýrmætur og þú einbeitir þér að því að koma hlutum í verk, ekki bara blaðra og þvaðra. Þú afkastar miklu um þessar mundir og verðlaunar þig með því að skipuleggja algjöra draumaferð. Þú hittir manneskju sem tengist vinnunni og þið náið samstundis saman. Þið byrjið strax að plana einhvers konar atvinnu- tækifæri, sem er afar spennandi þótt það gefi ekki mikið í aðra hönd. Nú er tími fyrir þig að skína og þú verður að fylgja eigin sannfæringu í þessu verkefni. Peningar eru ekki allt, mundu það. Hrútur - 21. mars–19. apríl Ný ást – Svona eiga þau saman Á strós Rut Sigurðardóttir vann huga og hjörtu þjóðarinnar ásamt eiginmanni sínum, Bjarka Má Sigvaldasyni heitnum, er þau opnuðu sig um baráttu Bjarka við krabbamein. Bjarki lést á síðasta ári en nú hefur Ástrós fundið ástina á ný í örmum Davíðs Arnar Hjartarsonar. DV ákvað að lesa í stjörnumerkin og sjá hvernig nýja parið á saman. Ástrós er naut en Davíð er krabbi. Þegar þessi tvö merki fella hugi saman er það yfirleitt ávísun á far- sælt ástarsamband. Krabbinn og nautið eiga nefni- lega margt sameiginlegt. Þau þrá bæði öryggi í ást- arsambandi ofar öllu, eru heimakær og elska fátt meira en kósíkvöld í náttfötunum. Þegar krabbinn og nautið mætast á rómantískan máta þá eru þau oft parið sem aðrir líta upp til. Sam- bandið er sterkt og einbeita þau sér bæði að því að halda fjölskyldunni saman og hamingjusamri. Nautið þarf hins vegar að skilja að krabbinn er mjög viðkvæmur á tilfinningasviðinu og krabbinn þarf að vera skýr í samskiptum sínum við nautið. Krabb- inn á það til að byrgja tilfinningar inni og því laðast hann að opinskáa nautinu. Bæði krabbinn og nautið kjósa fremur að eyða tíma sínum með maka en í margmenni. Því ná þau að skapa góðan og traustan grunn sem þau geta byggt á um ókomna tíð. Framtíðin er svo sannarlega björt í þessu sambandi. Ástrós Fædd: 18. maí 1988 Naut n áreiðanleg n þolinmóð n trygglynd n ábyrg n þrjósk n ósamvinnuþýð Davíð Fæddur: 16. júlí 1986 Krabbi n frjó hugsun n tilfinningaríkur n heiðarlegur n geðfelldur n svartsýnn n óöruggur Neikvæðnisraddir tefja fyrir honum S tefan Octavian, klámstjarna og fylgdarsveinn, var borinn þungum sökum í vikunni af ósátt- um viðskiptavinum sem höfðu keypt nær- föt af honum í gegnum Snapchat. Stefan þvertók fyrir að hafa svindlað og segir málið hafa valdið honum miklu hugarangri. Því ákvað DV að leggja tarotspil fyrir Stefan og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér, en lesendur DV geta sjálfir dregið tarotspil á vef DV. Hörundsár Fyrsta spilið sem kemur upp fyrir Stefan er 9 sverð. Stefan þarf að varast að leyfa hindrunum fortíð- ar að eyðileggja góðar stundir sem hann er að upplifa núna. Stefan er einnig að reyna að flýja eitthvað sem gerðist í fortíðinni en það má hann alls ekki gera. Hann þarf að taka á honum stóra sínum og takast á við þau vandamál sem blasa við. Stefan á það til að vera mjög hörundsár og taka skoðanir annarra of nærri sér. Það tef- ur fyrir honum og hann þarf að kljást við kvíða næstu vikur út af þessu. Hann er hins vegar fullkomlega fær um að hreinsa all- ar hindranir úr vitund sinni og blása á neikvæðnisraddirnar. Velferð náungans Næst er það Keisarinn. Það táknar tækifæri sem Stefan stendur frammi fyrir núna. Hann þarf að kanna möguleika fram- tíðarinnar gaum- gæfilega því nýtt starf er í kort- unum hjá hon- um sem getur gefið af sér alls kyns spennandi möguleika. Þá skal Stefan muna að velferð ná- ungans getur komið honum lengra en hann grun- ar. Hann skal ekki fyllast öfund vegna velgengni annarra því hún getur verið lykillinn að hans eigin velgengni. Góð vinátta Loks er það Stafagosi. Það spil táknar góðan vin Stef- ans, líflega manneskju sem færir Stefani skemmti- legar stundir og spennu. Þessi vinátta er byggð á trausti og fram undan eru góðir tímar. Þessi mann- eskja færir Stefani góðar fréttir innan tíðar og við það fyllist hann orku og metnaði. Verkefni sem er nýtt af nálinni fyllir Stefan eldmóði og ný tækfæri bíða hans handan hornsins. Virki- lega spennandi tímar þar sem þessi góði vinur kemur sterkur inn. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.