Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2020, Page 48
13. mars 2020
11. tölublað 111. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Ekki
snerta
mig!
Landlæknir
og ráðherra
M
ikið hefur mætt á
Ölmu Dagbjörtu
Möller landlækni síð-
ustu daga í COVID-19
storminum. Alma var skip-
uð landlæknir árið 2018 og
varð þar með fyrsta konan til
að gegna embættinu. Alma er
yngst af sex börnum Jóhanns
G. Möller heitins, verka-
lýðsleiðtoga og bæjarfulltrúa
Alþýðuflokksins á Siglufirði,
og Helenu Sigtryggsdóttur.
Einn af eldri bræðrum Ölmu
er Kristján L. Möller, fyrrver-
andi alþingismaður fyrir Sam-
fylkinguna sem og fyrrverandi
samgönguráðherra og sam-
göngu- og sveitarstjórnarráð-
herra.
Lítt þekkt
ættartengsl
Snertiflötum
gesta fækkað í
kvikmyndahúsum
Á
kveðið hefur verið að
selja aðeins í annað
hvert sæti í Smárabíói
og Háskólabíói, sjálf-
virkni verður aukin og snerti-
flötum gesta fækkað. Þessar
aðgerðir verða að fullu komn-
ar til framkvæmda frá og með
næsta mánudegi, en þegar
hefur verið gripið til ýmissa
aðgerða vegna stöðunnar og
tillit tekið til ráðlegginga yfir-
valda og sóttvarnarlækn-
is. Nú hefur verið ákveðið að
taka næsta skref. Nú verður
selt í annað hvert sæti í öllum
almennum bíósölum til að
hver gestur fái aukið rými, en
þeir sem koma saman, til að
mynda pör, vinir og fjölskyld-
ur, geta svo fært sig saman, en
á sama tíma haft nóg pláss á
milli sín og næsta hóps.
Óbreytt fyrirkomulag á Stockfish
K
vikmyndahátíðin Stockfish hefur engin
áform um að fresta neinni samkomu,
en hátíðin var opnuð við mikinn fögn-
uð í gær, fimmtudag, og stendur til 22.
mars. Þrátt fyrir að Almannavarnir hafi lýst
yfir neyðarstigi og mörgum mannamótum
hafi þegar aflýst mun dagskráin halda sinni
göngu þótt smávægilegar raskanir hafi orðið á
skipulagi hátíðarinnar. Leikarinn Udo Kier mun
til að mynda ekki láta sjá sig eins og áætlað var,
hann er orðinn 75 ára og var ráðlagt að halda
kyrru fyrir. Aðstandendur hátíðarinnar hafa þó
biðlað til hátíðargesta að forðast handaband,
faðmlög og fleira þess eðlis. Jafnframt eru við-
komandi beðnir um að halda sig heima finni
þeir fyrir smávægilegum veikindum.