Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Blaðsíða 4
1 Selja alla sumarbústaðina og lána fyrir 70 prósent af kaup-
verðinu Eigendur tjaldsvæðisins og
þjónustumiðstöðvarinnar Hraun-
borga neyðast til að selja sumar-
bústaði vegna brostinna rekstrarfor-
senda í heimsfaraldri COVID-19.
2 Eru þetta árslaun Heimis í Katar? – Ótrúlegar tölur Hjörvar
Hafliðason heldur því fram að Heimir
Hallgrímsson, þjálfari Al-Arabi í Katar,
sé með 1,8 milljónir dollara í árslaun,
eða 262 milljónir íslenskra króna.
3 Brot á samkomubanni í beinni útsendingu á Hlíðarenda Stöð
2 birti frétt sem sýndi frá æfingu
leikmanna Vals, þrátt fyrir að sam-
komubann kvæði á um að allar slíkar
æfingar væru bannaðar.
4 Þetta eru sönnunargögnin í máli Tom Hagen Auðkýfingurinn
Tom Hagen var handtekinn í Noregi
nýlega, grunaður um að hafa átt þátt
í hvarfi eiginkonu sinnar, Anne-
Elisabeth. Meðal sönnunargagna
eru sögð vera lífsýni, blóðdropar og
mótsagnir í skýringum Toms á hvarfi
konu sinnar.
5 Íslensk móðir í angist vegna dóttur sinnar: „Nú forðast fólk
hana“ Íslensk móðir unglingsstúlku
lýsir þeirri martröð sem það er að
missa barnið sitt niður í hyldýpi
fíknar.
6 „Fyrir mér er hann kynþokka-fullur, ekki fatlaður“ Luke er
fatlaður sökum sjúkdóms og fólk
hefur átt erfitt með að skilja hvernig
Rebeccu, ófatlaðri kærustu hans, geti
þótt hann kynþokkafullur.
7 Nýjar og nokkuð óvæntar fréttir af Kim Jong-un Kim Jong-un,
einræðisherra Norður-Kóreu er víst
ekki látinn líkt og þrálátur orðrómur
hefur gengið um. En hann kom í
vikunni fram opinberlega í fyrsta sinn
í langan tíma.
8 Bikiníbuxur valda usla – „Þetta hlýtur að vera djók“ Bikiníbux-
ur sem varla hylja eitt né neitt vöktu
athygli á Instagram og var fyrirtækið
sem selur þær gagnrýnt fyrir.
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Skeljungur sætir harðri gagnrýni
Olíufélagið Skeljungur greiddi 600 milljóna króna arð til
hluthafa sinna í byrjun apríl. Sex dögum síðar byrjaði félag-
ið að nýta sér hlutabótaleið ríkisstjórnarinnar vegna áhrifa
COVID-19. Bættist Skeljungur því í hóp fyrirtækja sem hafa
harðlega verið gagnrýnd fyrir að nýta sér hlutabótaleið rétt
eftir arðgreiðslur en slíkt gerðu líka Össur og Bláa lónið.
Rúmur helmingur starfsmanna Skeljungs er nú í skertu starfs-
hlutfalli, á meðan hluthafar njóta arðsins.
Líkamsrækt og sund í gang á ný
Líkamsræktarstöðvar mega hefja starfsemi að nýju þann 25.
maí, en það er fyrr en reiknað hafði verið með. Þetta má rekja
til þess að faraldur Covid-19 hefur gengið hraðar niður en
búist var við. Sundlaugar mega sömuleiðis hefja starfsemi að
nýju þann 18. maí. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir benti
á að þótt 2 metra reglan eigi að gilda fyrir einstaklinga út
árið verði eðlilega slakað á henni eftir því sem takmarkanir
samkomubanns verða rýmkaðar. Hún sé því ekki ófrávíkjan-
leg í allri starfsemi, en gæta verði þess þó að þeir einstakling-
ar sem tilheyri viðkvæmum hópi geti fengið hana uppfyllta.
Uppákoma á Alþingi
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagn-
rýndi á Alþingi í vikunni fjölda fyrirspurna sem þingmaður
Pírata, Björn Leví Gunnarsson, hefur lagt fram á þingi undan-
farna viku. Vakti gagnrýni Birgis athygli þar sem hann gaf
Birni Leví ekki kost á að svara fyrir hana, líkt og venjur þings-
ins gera ráð fyrir, og þurfti Birgir að biðjast afsökunar. Björn
Leví var aftur gagnrýndur í pontu síðar í vikunni er Þorsteinn
Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, kvartaði sáran yfir
því Björn hefði stigið jakkalaus í ræðustól og þar að auki skó-
laus, en slíkt væri fyrir neðan virðingu þingsins.
Hús Hagen-hjónanna girt af
Lögreglan í Noregi hefur
handtekið auðkýfinginn Tom
Hagen vegna hvarfs eigin-
konu hans, Anne-Elisabeth. Nú
hefur hús þeirra hjóna verið
girt af og er verið að grafa í
garðinum þar, líklega í leit að
mögulegum sönnunargögnum
eða líkamsleifum Anne, sem
ekkert hefur til spurst frá
árinu 2018.
Grænt ljós í knattspyrnunni
Íslensk knattspyrnulið geta að óbreyttu spilað æfingaleiki frá
og með 25. maí þegar næstu rýmkanir á samkomubanni taka
gildi. Knattspyrnusamband Íslands stefnir að því að hefja
keppni í úrvalsdeild karla, Pepsi Max deildinni, um miðjan
júní, en hefur mætt gagnrýni fyrir þá ákvörðun þar sem
mögulegt væri að hefja deildina strax þegar rýmkanirnar
taka gildi þann 25. maí.
Sögufölsun hjá Borgarleikhúsinu
Sígaretta í munni Bubba Morthens var fjarlægð af kynningar-
og markaðsefni söngleiksins Níu líf sem Borgarleikhúsið er
að setja upp um ævi Bubba. Var þetta gert í kjölfar fjölda
kvartana um að plakatið gæti stuðlað að reykingum og einn-
ig var leikhúsinu bent á að bannað væri að hafa sígarettu á
auglýsingu. Bubba finnst málið hið undarlegasta. Hann hafi
mökkreykt þegar umrædd mynd var tekin og það sé ekki hægt
að ritskoða söguna. Hann hafi hins vegar hætt að reykja 2005.
CMYK
SV/HV
Vertu viss um að velja
besta kjötið á grillið!
Meira á
www.fjallalamb.is
4 FRÉTTIR 8. MAÍ 2020 DV