Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Blaðsíða 36
36 FÓKUS 8. MAÍ 2020 DV
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
Fjölskylduhornið
Sérfræðingur svarar
Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi
svarar spurningum lesenda um málefni
er varða fjölskylduna, börnin og ástina í
Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar
Kristín spurningu lesanda sem á vinkonu
í ofbeldissambandi.
VIL EKKI VITA AF HENNI
MEÐ ÞESSUM MANNI
H æhæ. Ég veit ekki alveg hvað ég á að gera, eða hvort ég
geti gert eitthvað en ég á
mjög góða vinkonu sem er í
ofbeldissambandi. Hún hef-
ur sagt okkur vinkonunum
frá ofbeldinu og gert margar
tilraunir til að komast út úr
sambandinu en sogast alltaf
aftur inn og þá vill hún ekk-
ert lengur tala um ofbeldið
og þá er bara allt í gúddí og
við vinkonurnar eigum bara
að láta eins og við vitum
ekki neitt og umgangast of-
beldismanninn eins og ekk-
ert hafi í skorist. Ég vil ekki
missa vinkonuna frá mér
og vita af henni einni með
þessum manni.
Sæl, kæra vinkona
Þetta er snúin staða og því
miður ekki nein einföld lausn
til. Það gæti verið farsælt að
aðgreina annars vegar vin
konuhlutverkið og hins vegar
stöðuna sem vinkona þín er í.
Sennilega hefur hún aldr
ei þurft jafn mikið á þér að
halda svo þú gerir líklega
mest með því að vera til stað
ar fyrir hana og grípa hana
þegar hún hrasar.
Óbærilegar aðstæður
Varðandi hennar stöðu þá er
mikilvægt að vita að ef ein
hver er í hættu þá hringjum
við í lögregluna. Þó svo að þú
vitir ekki hvort það sé eitt
hvert atvik í gangi þá getur
þú tilkynnt um að þig gruni
að á þessu heimili eigi sér
stað viðvarandi ofbeldi. Ef
börn eru á heimilinu ber þér
skylda til að tilkynna um það
til barnaverndarnefndar.
Hvort tveggja er gert með
því að hringja í 112. Þetta
gildir ekki bara ef börnin eru
sjálf í hættu á að verða fyrir
ofbeldi heldur er ofbeldi
gagnvart móður skilgreint
sem ofbeldi gagnvart barni.
Það eru óbærilegar aðstæður
fyrir börn að lifa við ótta og
hræðslu við foreldri, en því
miður gleymast stundum
börnin við svona aðstæður.
Skaðaminnkandi nálgun
Þá er ofboðslega mikilvægt
að reyna að halda í trúnað
vinkonu þinnar þegar hún
segir frá, þakka henni traust
ið. Þannig nærð þú mikilvæg
um upplýsingum, getur metið
hættuna og tilkynnt nafn
laust til lögreglu um leið og
þú telur ástandið hættulegt.
Annað varðandi hættuna,
hefur vinkona þín skipulagð
ar flóttaleiðir? Er hún alltaf
með símann á sér? Þetta eru
öryggisatriði sem geta bjarg
að mannslífum og með því að
koma þeim upplýsingum á
framfæri til vinkonu þinnar,
gætir þú verið að beita veru
lega skaða minnkandi nálgun
við sorglegar aðstæður.
Ég skil vel að þig langi til
að segja vinkonu þinni að
fara frá honum, en því miður
skilar það sjaldnast árangri.
Við getum aldrei sagt neinum
að skilja, heldur þarf fólk að
finna kraft og löngun hjá
sjálfu sér.
Eitt af því sem gerir heim
ilisofbeldismál flókin er að
sá sem verður fyrir ofbeld
inu verður ódómbær á að
stæður sínar, sér ekki ofbeld
ið eða finnst jafnvel eins og
það sé verðskuldað. Í slíkum
tilfellum skiptir ekki máli
hvað þér finnst, eða hvernig
þú vilt að hún bregðist við,
heldur að hennar innsæi og
upplifun er önnur og því er
erfitt fyrir þig að breyta.
Aldrei rétt að þegja
Það er aldrei rétt að þegja
yfir ofbeldi, en ef vinkona
þín lokar á alla umræðu er
mikilvægt að nota glufurnar
þegar þær skapast. Þá skiptir
máli að vera ekki dæmandi
eða ásakandi „ætlarðu ekki
að fara að koma þér frá hon
um?“ eða „hvað ætlarðu að
láta þennan fávita bjóða þér
þetta lengi?“. Slíkur ásök
unartónn kallar á varnarvið
brögð hjá vinkonu þinni og
þannig myndast stærri gjá á
milli ykkar.
Segðu henni heldur hvað
þér þyki vænt um hana og
að þú sért til staðar. Þú
getur nálgast hana með litla
fræðslumola um einkenni
heimilisofbeldis, ofbeldis
hringinn og hvernig ofbeldið
getur stigmagnast. Eins gæti
verið gott að skapa hjá henni
von, með því að nefna dæmi
þar sem aðrir hafa komist út
úr svona aðstæðum. Á You
tube má finna slíkt efni sem
nefnist „Þekktu rauðu ljósin“.
Þá gætir þú bent henni á að
það er alltaf hægt að sækja
aðstoð í bæði Kvennaathvarf
inu og Bjarkarhlíð.
Þess á milli væri farsælt að
eiga með henni ánægjulegar
stundir þar sem umræðuefn
ið er ekki stöðugt aðstæður
hennar. Það skapar trú á að
hún geti átt innihaldsríkt líf
og það gefur henni saman
burð sem mögulega hjálpar
henni að meta aðstæður
sínar.
Þú getur alltaf sett mörk
Þú getur alltaf sett mörk og
ef þú vilt ekki umgangast
mann vinkonu þinnar, þá er
það þitt val. Það getur eng
inn neytt þig til þess að vera
í samneyti við ofbeldismann
og þar mátt þú alveg vera
skýr. Það skiptir þó alltaf
máli hvernig við orðum líðan
okkar og þú þarft að vanda
orðavalið svo þú fælir ekki
vinkonu þína frá þér.
Við þurfum svo alltaf að
vega og meta hagsmuni, ef
þú ert ekki hrædd við að
hann geri þér eitthvað og
vinkona þín vill að þið hitt
ist öll saman, þá er spurning
hvort vegur þyngra, þín and
styggð á manninum eða vilji
vinkonu þinnar? Getur verið
að með samveru þinni sé hún
að hlífa sjálfri sér við ofbeldi
mannsins?
Ég er að sjálfsögðu ekki að
setja ábyrgðina á þig varð
andi ofbeldið, en mögulega
varpar þetta ljósi á aðstæður
sem þú hafðir ekki velt fyrir
þér.
Vinkonur eru gulls ígildi
og í erfiðum aðstæðum geta
vinkonur komið til bjargar.
Ég heyri að vinkona þín á
gott bakland í ykkur vinkon
um sínum og þegar á reynir
verður það skýrara. Haldið
áfram að skapa von, trú og
góðar stundir, vera til staðar
og sýna henni stuðning. Með
kærleika ykkar vinnst þetta
vonandi á endanum. n
Við getum aldrei sagt
neinum að skilja heldur
þarf fólk að finna kraft og
löngun hjá sjálfu sér.
MYND/GETTY