Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Blaðsíða 36
36 FÓKUS 8. MAÍ 2020 DV Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Sérfræðingur svarar Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem á vinkonu í ofbeldissambandi. VIL EKKI VITA AF HENNI MEÐ ÞESSUM MANNI H æhæ. Ég veit ekki alveg hvað ég á að gera, eða hvort ég geti gert eitthvað en ég á mjög góða vinkonu sem er í ofbeldissambandi. Hún hef- ur sagt okkur vinkonunum frá ofbeldinu og gert margar tilraunir til að komast út úr sambandinu en sogast alltaf aftur inn og þá vill hún ekk- ert lengur tala um ofbeldið og þá er bara allt í gúddí og við vinkonurnar eigum bara að láta eins og við vitum ekki neitt og umgangast of- beldismanninn eins og ekk- ert hafi í skorist. Ég vil ekki missa vinkonuna frá mér og vita af henni einni með þessum manni. Sæl, kæra vinkona Þetta er snúin staða og því miður ekki nein einföld lausn til. Það gæti verið farsælt að aðgreina annars vegar vin­ konuhlutverkið og hins vegar stöðuna sem vinkona þín er í. Sennilega hefur hún aldr­ ei þurft jafn mikið á þér að halda svo þú gerir líklega mest með því að vera til stað­ ar fyrir hana og grípa hana þegar hún hrasar. Óbærilegar aðstæður Varðandi hennar stöðu þá er mikilvægt að vita að ef ein­ hver er í hættu þá hringjum við í lögregluna. Þó svo að þú vitir ekki hvort það sé eitt­ hvert atvik í gangi þá getur þú tilkynnt um að þig gruni að á þessu heimili eigi sér stað viðvarandi ofbeldi. Ef börn eru á heimilinu ber þér skylda til að tilkynna um það til barnaverndarnefndar. Hvort tveggja er gert með því að hringja í 112. Þetta gildir ekki bara ef börnin eru sjálf í hættu á að verða fyrir ofbeldi heldur er ofbeldi gagnvart móður skilgreint sem ofbeldi gagnvart barni. Það eru óbærilegar aðstæður fyrir börn að lifa við ótta og hræðslu við foreldri, en því miður gleymast stundum börnin við svona aðstæður. Skaðaminnkandi nálgun Þá er ofboðslega mikilvægt að reyna að halda í trúnað vinkonu þinnar þegar hún segir frá, þakka henni traust­ ið. Þannig nærð þú mikilvæg­ um upplýsingum, getur metið hættuna og tilkynnt nafn­ laust til lögreglu um leið og þú telur ástandið hættulegt. Annað varðandi hættuna, hefur vinkona þín skipulagð­ ar flóttaleiðir? Er hún alltaf með símann á sér? Þetta eru öryggisatriði sem geta bjarg­ að mannslífum og með því að koma þeim upplýsingum á framfæri til vinkonu þinnar, gætir þú verið að beita veru­ lega skaða minnkandi nálgun við sorglegar aðstæður. Ég skil vel að þig langi til að segja vinkonu þinni að fara frá honum, en því miður skilar það sjaldnast árangri. Við getum aldrei sagt neinum að skilja, heldur þarf fólk að finna kraft og löngun hjá sjálfu sér. Eitt af því sem gerir heim­ ilisofbeldismál flókin er að sá sem verður fyrir ofbeld­ inu verður ódómbær á að­ stæður sínar, sér ekki ofbeld­ ið eða finnst jafnvel eins og það sé verðskuldað. Í slíkum tilfellum skiptir ekki máli hvað þér finnst, eða hvernig þú vilt að hún bregðist við, heldur að hennar innsæi og upplifun er önnur og því er erfitt fyrir þig að breyta. Aldrei rétt að þegja Það er aldrei rétt að þegja yfir ofbeldi, en ef vinkona þín lokar á alla umræðu er mikilvægt að nota glufurnar þegar þær skapast. Þá skiptir máli að vera ekki dæmandi eða ásakandi „ætlarðu ekki að fara að koma þér frá hon­ um?“ eða „hvað ætlarðu að láta þennan fávita bjóða þér þetta lengi?“. Slíkur ásök­ unartónn kallar á varnarvið­ brögð hjá vinkonu þinni og þannig myndast stærri gjá á milli ykkar. Segðu henni heldur hvað þér þyki vænt um hana og að þú sért til staðar. Þú getur nálgast hana með litla fræðslumola um einkenni heimilisofbeldis, ofbeldis­ hringinn og hvernig ofbeldið getur stigmagnast. Eins gæti verið gott að skapa hjá henni von, með því að nefna dæmi þar sem aðrir hafa komist út úr svona aðstæðum. Á You­ tube má finna slíkt efni sem nefnist „Þekktu rauðu ljósin“. Þá gætir þú bent henni á að það er alltaf hægt að sækja aðstoð í bæði Kvennaathvarf­ inu og Bjarkarhlíð. Þess á milli væri farsælt að eiga með henni ánægjulegar stundir þar sem umræðuefn­ ið er ekki stöðugt aðstæður hennar. Það skapar trú á að hún geti átt innihaldsríkt líf og það gefur henni saman­ burð sem mögulega hjálpar henni að meta aðstæður sínar. Þú getur alltaf sett mörk Þú getur alltaf sett mörk og ef þú vilt ekki umgangast mann vinkonu þinnar, þá er það þitt val. Það getur eng­ inn neytt þig til þess að vera í samneyti við ofbeldismann og þar mátt þú alveg vera skýr. Það skiptir þó alltaf máli hvernig við orðum líðan okkar og þú þarft að vanda orðavalið svo þú fælir ekki vinkonu þína frá þér. Við þurfum svo alltaf að vega og meta hagsmuni, ef þú ert ekki hrædd við að hann geri þér eitthvað og vinkona þín vill að þið hitt­ ist öll saman, þá er spurning hvort vegur þyngra, þín and­ styggð á manninum eða vilji vinkonu þinnar? Getur verið að með samveru þinni sé hún að hlífa sjálfri sér við ofbeldi mannsins? Ég er að sjálfsögðu ekki að setja ábyrgðina á þig varð­ andi ofbeldið, en mögulega varpar þetta ljósi á aðstæður sem þú hafðir ekki velt fyrir þér. Vinkonur eru gulls ígildi og í erfiðum aðstæðum geta vinkonur komið til bjargar. Ég heyri að vinkona þín á gott bakland í ykkur vinkon­ um sínum og þegar á reynir verður það skýrara. Haldið áfram að skapa von, trú og góðar stundir, vera til staðar og sýna henni stuðning. Með kærleika ykkar vinnst þetta vonandi á endanum. n Við getum aldrei sagt neinum að skilja heldur þarf fólk að finna kraft og löngun hjá sjálfu sér. MYND/GETTY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.