Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Blaðsíða 6
8. MAÍ 2020 DV
00000
www.veidikortid.is
Gleðilegt
veiðisumar!
Fæst hjá N1 - OLÍS og veiðiverslunum
GUÐMUNDUR METINN HÆFASTUR
Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, hefur rekið tjaldsvæðið á
Borg síðan 2017. Þrír sóttu um að leigja svæðið en sveitarstjórn valdi Guðmund.
Guðmundur Jónsson, sem á sínum tíma rak með-ferðarheimilið Byrgið,
hefur frá árinu 2017 sinnt
rekstri tjaldsvæðisins á Borg
í Grímsnesi. Sér hann um
daglegan rekstur svæðisins
sem felur meðal annars í sér
samskipti við gesti og inn-
heimtu afnotagjalda, auk þess
sem hann hefur allar tekjur af
rekstri svæðisins og ber allan
kostnað. Þá er hann stjórnar-
maður í húsnefnd félagsheim-
ilisins á svæðinu. Úthlutun
sveitarfélagsins á svæðinu til
Guðmundar hefur vakið at-
hygli í ljósi fortíðar hans.
Mynd þessi er frá árinu 2005. Útlit Guðmundar hefur tekið töluverðum breytingum. Helsta einkennismerki hans var um tíma sítt hár og hattur. MYND/GVA
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
Auður Ösp
Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Nýr þáttur um málið
Byrgismálið er eitt umfangs-
mesta sakamál síðari ára
og var á sínum tíma á allra
vörum. Málið komst í hámæli
eftir afhjúpun fréttaskýringa-
þáttarins Kompáss á sínum
tíma og sneri að grófum kyn-
ferðisbrotum Guðmundar
gagnvart skjólstæðingum sín-
um, fjárdrátt og umboðssvik.
Árið 2008 hlaut Guðmundur
þriggja ára fangelsisdóm fyrir
kynferðislega misnotkun og
árið 2010 níu mánaða fangels-
isdóm fyrir umboðssvik, fjár-
drátt, skattalaga- og bókhalds-
brot. Kynferðisbrotadómurinn
var mildaður í Hæstarétti í
tvö og hálft ár.
Sigursteinn Másson dag-
skrárgerðarmaður tók Byrgis-
málið til umfjöllunar í þátta-
röðinni Sönn íslensk sakamál
sem kom út á Storytel fyrr á
árinu. Í upprifjun þáttarins
kemur meðal annars fram að
eldmóður Guðmundar hafi
smitað fólkið í kringum hann
og hann hafi haft nægan sann-
færingarkraft til að fá í lið
með sér fólk úr ýmsum flokk-
um. Þess ber að geta að á þeim
árum sem Byrgið starfaði að
Efri-Brú var Guðmundur
áberandi í sveitarfélaginu og
stakk víða niður fæti.
Árið 2017 auglýsti Gríms-
nes- og Grafningshreppur
eftir rekstraraðila til að taka
að sér tjaldsvæðið á Borg sem
er flokkað sem fjölskylduvænt
tjaldsvæði. Guðmundur var
valinn umfram annan um-
sækjanda sem ekki fengust
svör um hver hefði verið í
samtölum við oddvita hrepps-
ins og sveitarstjóra. Aftur
var svæðið auglýst til leigu í
Framhald á síðu 8 ➤
6 FRÉTTIR