Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Síða 21
FÓKUS 21DV 8. MAÍ 2020 MARTA MARÍA JÓNASDÓTTIR FRÉTTASTJÓRI DÆGURMÁLA HJÁ MBL FÉLAGSSKAPURINN MIKILVÆGASTUR Við maðurinn minn ætluðum á Rammstein-tónleika í Frakk-landi í sumar ásamt vinum okkar, en vegna aðstæðna er búið að fresta þeirri ferð,“ segir Marta María Jónasdóttir, frét tastjóri dægurmála hjá mbl.is. „Ég geri ráð fyrir að við verðum töluvert uppi á fjöllum, í hjóla- ferðum og göngutúrum. Planið er að fara í Heydal við Ísafjarðardjúp en það er alger paradís á jörð. Við fórum þangað síðasta sumar og heilluðumst af fallegri náttúru, góðri stemningu á hótelinu og sér- lega ljúffengum mat. Fyrir tveimur árum fórum við á Strandirnar og gistum á Hótel Djúpavík. Mig langar aftur þangað og svo getur meira en vel verið að við kaupum okkur hótelpakka og eltum góða veðrið. Ég er ekki enn þá komin þangað að finnast gaman að gista í tjaldi í rigningu en ég læri það kannski einhvern daginn.“ Marta segist vera spenntust fyrir Austfjörðum. „Ég hef bara komið þangað í mýflugumynd og langar að kynnast þeim stað betur. Mér skilst að þar séu framúrskarandi gönguleiðir og mikið fjör.” Marta á marga uppáhaldsstaði á Íslandi og nefnir til að mynda Snæ- fellsnes og Akureyri. „Svo finnst mér dagsferðir sniðugar. Það er til dæmis mjög gaman að fara í sjósund í Guðlaugu á Akranesi, fara til Hveragerðis og labba upp í Reykjadal og rúnta um Stokkseyri og Eyrarbakka og fara á kajak. Annars finnst mér áfangastaður- inn ekki vera stóra málið heldur fé- lagsskapurinn. Ef maðurinn minn og börnin mín eru með í för leiðist mér aldrei.“ FELIX BERGSSON ÚTVARPSMAÐUR OG LEIKARI FALDAR PERLUR Á AUSTFJÖRÐUM Felix Bergsson, útvarpsmaður og leikari, og eiginmaður hans Baldur Þórhallsson stjórn- málafræðingur eiga von á tveimur barnabörnum í heiminn í sumar. Felix sér fram á ljúfar stundir heima við. „Planið er bara að vera heima. Við eigum von á tvöfaldri fjölgun í fjölskyldunni í júní og ætlum því að einbeita okkur að því að taka vel á móti þeim nýju fjölskyldumeðlimum og sitja og horfa á þau sem allra, allra mest. Svo kannski drekkum við kaffið úti á palli eða grillum.“ Felix langar mikið að kanna há- lendi Íslands betur og heimsækja til dæmis Veiðivötn. „Ég hef líka aldrei skoðað mig almennilega um í Þjórsárdal en þar munu til dæmis vera fossar sem maður á alls ekki að láta fara fram hjá sér.“ Aðspurður um eftirlætisstað á Íslandi nefnir Felix firðina, bæði í vestri og austri. „Ef fólk hefur aldrei farið á Hornstrandir mæli ég eindregið með því og að sama skapi mæli ég með heimsókn á Austfirði. Þar eru magnaðar gönguleiðir og ýmsar faldar perlur. Ég nefni sem dæmi Stórurð undir hinum stór- kostlegu Dyrfjöllum. Svo er alltaf gaman að heim- sækja Suðurlandið og við fjölskyld- an erum stolt af því að hafa opnað nýjan möguleika með Hellunum við Hellu sem eru bara klukkutíma frá Reykjavík og eru algjörlega magn- aðir.“ SIRRÝ ARNAR DÓTTIR STJÓRNENDAÞJÁLFARI, RITHÖFUNDUR OG FYRRVERANDI FJÖLMIÐLAKONA VERÐUR AÐ HEIMSÆKJA ÞINGVELLI NOKKRUM SINNUM Á ÁRI Sumarið hefst á því að ég kenni masterklass í Framsækni – ör-uggri tjáningu við Háskólann á Bifröst í júní og mun nota náttúruna og umhverfið þar í kennslu. Það er tilhlökkunarefni,“ segir Sirrý Arnar- dóttir stjórnendaþjálfari, rithöf- undur og fyrrverandi fjölmiðlakona. „Það stóð til að fara loksins á þjóðlagahátíðina á Siglufirði í byrjun júlí en við hjónin höfum lengi ætlað en alltaf verið bókuð á öðrum stað þegar hátíðin er haldin og svo var henni frestað um ár. Svo ekkert verður af því að sinni.“ Sirrý segir Suðureyri á Vest- fjörðum vera í miklu uppáhaldi, og hyggur á ferðalag þangað í ágúst. „En ég á að vera með upplestra úr bæði barna- og fullorðinsbókum mínum og fyrirlestur á einleikja- hátíðinni Act alone á Suðureyri í byrjun ágúst og hlakka mikið til að fara þangað. Bæði að fylgjast með allri dagskránni og líka að koma þangað. Við Kristján Franklín fórum nefni- lega fyrir stuttu síðan um Vestfirði en slepptum Suðureyri af einhverri furðulegri ástæðu og sáum eftir því. Nú er stefnan tekin aftur vestur og sérstaklega á Suðureyri. Og svo ætla ég að fara í mun styttri ferð en það er að heimsækja Friðheima á Suðurlandi og borða frægu tómatsúpuna og skoða rækt- unina hjá þessu heiðursfólki, sem ég hef reyndar tekið viðtöl við en ekki farið og skoðað staðinn. Ég hef alltaf verið á leiðinni en ekki farið þangað – nú er tími til þess á næstunni.“ Sirrý bendir á að það megi ekki gleyma stöðum sem eru stutt frá Reykjavík en eru algjör paradís eins og til dæmis. Hótel Glymur í Hvalfirði. „Ég hef verið bæði á hótelinu og í litlu villunum sem til- heyra hótelinu og þar er útsýni úr heita pottinum yfir Hvalfjörðinn og Saurbæjarkirkju. Fossinn og fallegar gönguleiðir í nágrenninu. Þetta er perla rétt við borgina sem ég mæli með. Svo er frábær gönguleið í Borgar- firði beint á móti golfvellinum á Hamri – þessi staður heitir Einkunnir og er skógur, vatn, hamrar og algjör draumur sem of fáir virðast vita um. Þetta sést ekkert frá veginum en er alveg meiriháttar útivistarsvæði. Stutt að fara til dæmis fyrir borgar- búa. Ég verð að heimsækja Þingvelli nokkrum sinnum á ári og það er á dagskrá. Svo langar mig aftur að ganga Fimmvörðuháls við tækifæri. Svo er ég komin með gróðurhús í garðinum svo ég hlakka líka til að vera heima, með græna fingur.“ Svo kannski drekkum við kaffið úti á palli. Heydalur við Ísafjarðar- djúp er alger paradís á jörð. MYND/HEIÐA MYND/ERNIR MYND/STEFÁN MYND/STEFÁN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.