Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Síða 24
8. MAÍ 2020 DV24 FÓKUS Saga þeirra er löng og ströng og þið getið heyrt meira um hana á mánu- daginn á vef DV í formi hlaðvarps- ins HÁSKI, þar sem Unnur Regína Gunnarsdóttir fer yfir málið. STÓRKOSTLEG REYNSLA AÐ FRJÓSA NÆSTUM Í HEL Flugsvikahrappurinn Ralph var ekki allur þar sem hann var séður. Helen Klaben lét þó blekkjast af gylliboði um ódýra flugferð, sem endaði með ósköpum. H elen Klaben var 21 árs gömul þegar hún ákvað að ferðast um Ameríku. Hún hafði svo sem ekki séð eða gert margt og gat ekki talist mikil ævin- týramanneskja. Hún hélt nú samt af stað í þetta ferðalag og tók að sér íhlaupastörf hér og þar. Í febrúar árið 1963 var Hel- en stödd í Fairbanks, Alaska. Stefnan var tekin á Mexíkó, með vinum sem hún hafði kynnst á ferðalaginu. Ætlunin var að fljúga frá Fairbanks til San Francisco og koma sér þaðan til Mexíkó. Flugmið- inn kostaði sitt og Helen hafði heyrt útvarpsauglýsingu frá flugmanni sem hafði rellu til umráða og var að leita að einhverjum sem vildi deila kostnaði af flugi frá Fair- banks til San Francisco. Helen gat ekki staðist þetta, þar sem hún myndi þurfa að greiða helmingi minna fyrir þetta en flugmiða hjá flug- félagi. Þannig kynnist hún Ralph Flores, 42 ára rafvirkja sem var á milli starfa í Fair- banks. Hann hafði ákveðið að fljúga aftur til fjölskyldu sinnar í San Francisco. Vélin hans var rella frá árinu 1941 og þó að Ralph hefði einhverja reynslu var hún fjarri því sem flugmaður ætti að hafa. Hans áætlun var að fylgja þjóðveginum suður. Helen var vöruð við að ætla fljúga yfir þetta svæði um há- vetur en Ralph virkaði traust- vekjandi og róaði hana. Bensínlaus og hrædd Saman flugu þau frá Fair- banks til Whitehorse og gekk sá leggur ferðarinnar vel. Vegna erfiðra veðurskilyrða urðu Ralph og Helen að vera í Whitehorse næstu tvo dag- ana. Þann 4. febrúar sýndu veðurspár að veðrið væri að skána svo Ralph og Hel- en héldu af stað snemma morguns í miklu frosti. Hel- en treysti Ralph en var samt stressuð og minnti sjálfa sig oft á að hann væri flugmaður- inn og vissi hvað hann væri að gera. Þau flugu í gegnum þykka skýjabakka og Helen varð áhyggjufyllri eftir því sem ókyrrðin jókst. Næstu tvo tímana flugu þau inn og út úr slæmu veðri. Ralph vissi ekki hvar hann var og sá ekki þjóðveginn og reyndi hann að lækka flugið og finna op í skýjunum. Helen var með kortið og reyndi að finna út hvar þau væru. Klukkan þrjú um nótt, týnd í skýjunum, hringdi við- vörunarbjalla. Vélin var bens- ínslaus. Hún byrjaði að svífa rólega til jarðar og þegar þau komu niður úr skýjunum sá Helen fjallshlíð sem þau nálguðust óðfluga. Helen sagði við sjálfa sig að þetta væri búið, nú myndi hún deyja. Það síðasta sem hún mundi eftir að hafa hugsað var „Hvað ætti ég að gera við fæturna á mér?“ Hvernig undirbýr maður sig fyrir að hrapa?“ Helen rankaði fyrst við sér, um hálftíma eftir að flugvélin hafði hrapað í fjallshlíðinni. Þau höfðu hrapað í óbyggðum Yukon. Vinstri handleggur Helen var brotinn og hægri fótur hennar fastur á milli sætis hennar og veggs flug- vélarinnar. Ralph var líka lifandi en hann var meðvitundarlaus. Andlitið á honum var alblóð- ugt, kjálki hans og rifbein brotin. En þau voru bæði á lífi. Enginn matur Ralph komst fljótt til með- vitundar og hjálpaði Helen að losa sig úr vélinni. Þau kveiktu eld og sváfu í flug- vélinni. Það var nístandi frost og Helen og Ralph voru ekki með mikið af hlýjum fötum meðferðis. Þau útbjuggu skýli inni í braki vélarinnar og átt- uðu sig fljótt á að þau væru þarna ein og gætu ekkert gert nema bíða björgunar. Þau höfðu litlar sem engar vistir í vélinni og kláruðu þær á fyrstu 10 dögunum. Þau bræddu snjó og drukku og borðuðu próteinpillur sem Ralph hafði meðferðis. Það gerði ekki mikið annað en að valda þeim magaverk. Ralph stappaði stórt SOS í snjóinn og gerði allt sem í hans valdi stóð til að halda þeim á lífi. Helen Klaben og Ralph Flores voru týnd í 49 daga og lifðu af í umhverfi sem gaf ekkert af sér. Níu dögum eftir að leit að þeim var hætt, var Chuck Ha- milton að fljúga yfir Yukon að með vistir í veiðikofa. Hann var að horfa á útsýnið og nátt- úruna þegar hann sá stórt SOS í snjónum. Fljótlega sá hann brakið og Helen Klaben og Ralph Flores fundust loks. Lestu hraðar Tólf árum eftir lífsreynsluna var hringt í Helen og hún spurð út í slysið í tilefni þess að verið var að kvikmynda söguna. Hún lýsti reynslunni sem stórkostlegri þrátt fyrir að hún hefði verið skelfilega erfið. „Það er er stórkostlegt að lifa slíkt af. Það er í raun frábært að hafa lifað þetta. Ekki margt fólk er svo heppið að geta sagt að það sé með slíka lífreynslu á bakinu til að deila með heiminum.“ Helen lifði í raun á eigin líkamsfitu því nánast enginn matur var um borð. Tann- krem og tyggjó höfðu þau um tíma en líkamsfita hennar hélt henni á lífi. Helen missti 20 kíló á 40 dögum en hún var bara 64 kíló fyrir svo ekki var af miklu að taka. Áhugavert er að Ralph var mjög strangtrúaður mormóni og sagði við Helen að ef hún myndi lesa Biblíuna og fela sig í hendur Jesú yrði þeim bjargað, hún las hana alla og þeim var bjargað þremur dögum síðar. Hann suðaði í henni að lesa hraðar. Þau urðu nánir vinir eftir þetta, en hann dó 1997 og hún 2018. n LÍFSHÁSKI Unnur Regína Gunnarsdóttir Kvikmynd var gerð um lífs- reynslu Helen, en hún hefur lýst reynslunni sem stór- kostlegri. MYND/GETTY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.