Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Qupperneq 34
LINDA PÉTURSDÓTTIR Árið 1988 var Linda Péturs kjörin ungfrú Austurland, ungfrú Ísland og að lokum ungfrú heimur. Eftir að Linda setti kórónuna upp í hillu sneri hún sér að heilsugeiranum og stofnaði líkamsræktarstöð fyrir konur undir nafninu Baðhúsið. Seinna meir stækkaði hún veldið ásamt Sævari bróður sínum og við bættust Þrekhúsið og Sporthúsið. Haustið 2018 tók Linda við stjórn Miss World á Íslandi. Í dag starfar hún sem lífsstíls- og megrunarráðgjafi á lindape.com þar sem hún selur einnig fatnað og silkigrímur sem hún hannar. BRYNDÍS SCHRAM Bryndís Schram var kjörin fegurðardrottning Íslands árið 1957. Þá var hún aðeins nítján ára gömul og stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík. Síðan þá hefur Bryndís Schram verið umsjónarkona Stundarinnar okkar, leikkona og iðin í leikhúsgagnrýni. HRAFNHILDUR HAFSTEINSDÓTTIR Hrafnhildur Hafsteins var nítján ára þegar hún var valin ungfrú Ísland árið 1995. Hrafnhildur er hæfileikarík og hefur unnið hin ýmsu störf svo sem verið fram- kvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) í þrjú ár. Í dag er hún markaðs- og gæða- stjóri hjá Hjallastefnunni. Hrafn- hildur er gift tónlistarmanninum Bubba Morthens og saman eiga þau alls sex börn. ÞESSAR KEPPTU LÍKA Magnaðar og metnaðarfullar konur sem þú vissir ekki að kepptu í Ungfrú Ísland: Sigríður Margrét Oddsdóttir, fyrrverandi forstjóri SkjásEins, já og nú framkvæmdastjóri Lyfju. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar. Andrea Róbertsdóttir, athafnakona og femínisti. Alexía Björg Jóhannesdóttir, leikkona. Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona. Fegurðardrottningar sem leituðu á önnur mið Margar íslenskar fegurðardrottn- ingar hafa kosið að vera áfram í sviðsljósinu og notað keppnirnar sem stökkpall á annan vettvang. F yrsta fegurðarsam­keppnin var haldin á íslandi árið 1950 þegar myndhöggvarinn Kolbrún Jónsdóttir var valin ungfrú Ísland. Stúlkan sem er valin fegurst hverju sinni fer og keppir í keppnum erlendis, eins og Ungfrú heimi og Ung­ frú alheimi. Hér má líta nokkrar fegurð­ ar drottningar sem hafa verið áberandi í íslensku þjóðfélagi fyrir meira en aðeins fegurð­ ina. n MYND/AÐ SEN D Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is SKJÁSKOT/TÍMARIT.IS SKJÁSKOT/TÍMARIT.IS SKJÁSKOT/TÍMARIT.IS 34 STJÖRNUFRÉTTIR 8. MAÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.