Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2020, Síða 38
SARA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR
& ÁRNI VILHJÁLMSSON
Sara Björk Gunnarsdóttir,
fyrirliði íslenska landsliðsins
í knattspyrnu, fann ástina í
örmum Árna Vilhjálmssonar,
atvinnumanns í knattspyrnu.
Samband þeirra er nýtilkomið.
Sara er búsett í Þýskalandi
og leikur með Wolfsburg.
Árni leikur í Úkraínu og hefur
flakkað á milli landa síðustu
ár. Sara verður þrítug seinna
á þessu ári en Árni er fjórum
árum yngri. Bæði léku með
Breiðabliki áður en þau héldu
í atvinnumennsku í fótbolta.
Sara var áður í sambandi með
sjúkraþjálfara Wolfsburg. Sara
er fyrirliði íslenska kvenna-
landsliðsins og hefur spilað
131 A-landsleik á meðan Árni
hefur spilað einn A-landsleik
fyrir Ísland.
SELMA DÖGG BJÖRGVINSDÓTTIR
& SÖLVI GEIR OTTESEN
Boltinn rúllar hjá þessu sjóð-
heita pari, en Sölvi kom aftur
heim til Íslands árið 2018 eftir
að hafa spilað í 14 ár sem at-
vinnumaður. Parið eignaðist
sitt fyrsta barn í síðasta
mánuði en líklega verður
Selma ekki á vellinum næstu
mánuði eftir barnsburð. Selma
hefur spilað með Val og FH hér
á landi og lék fjölda leikja með
FH í næstefstu deild á síðasta
ári. Sölvi er 36 ára gamall og
hefur búið víða á ferli sínum,
hann lék meðal annars í Sví-
þjóð, Kína og Taílandi. Sölvi
lék 28 A-landsleiki fyrir Ísland
á ferli sínum en Selma lék fyrir
yngri landslið Íslands á ferli
sínum.
ELÍSA VIÐARSDÓTTIR
& RASMUS STEENBERG CHRISTIANSEN
Daninn Rasmus fann ástina
þegar hann mætti til Íslands
árið 2010 og hóf að spila fyrir
ÍBV, Elísa var þá að stimpla sig
inn í kvennalið ÍBV sem lykil-
maður. Rasmus hélt aft ur út
til að spila í atvinnu mennsku
en kom aftur til Ísl ands árið
2016. Hann hefur síðan verið
í herbúðum Vals líkt og Elísa,
en þau hafa gert það gott í
boltanum hér heima.
Elísa kemur af mikl um knatt-
spyrnuættum því systir hennar
er ein besta knattspyrnukona
þjóðarinnar, Margrét Lára
Viðarsdóttir. Elísa hefur spilað
38 A-lands leiki fyrir Ísland, en
saman á þetta kröftuga par
eitt barn.
FANNDÍS FRIÐRIKSDÓTTIR & EYJÓLFUR HÉÐINSSON
Ástin kviknaði hjá þessu öfluga
knattspyrnufólki á síðasta
ári. Fanndís hefur leikið 109
A-landsleiki fyrir Ísland en
Eyjólfur lék fimm leiki á sínum
landsliðsferli. Bæði hafa þau
verið í atvinnumennsku í fót-
bolta en njóta nú ástarinnar hér
á Íslandi. Eyjólfur er fæddur
árið 1985 og er fimm árum
eldri en Fanndís. Í dag spilar
Eyjólfur með Stjörnunni ásamt
því að koma að þjálfun hjá fé-
laginu á meðan Fanndís spilar
fyrir Íslandsmeistara Vals.
Eyjólfur ólst upp í Breiðholti,
en Fanndís er úr Vestmanna-
eyjum.
GLÓDÍS PERLA
VIGGÓSDÓTTIR
& KRISTÓFER
EGGERTSSON
Glódís Perla hefur lengi verið
í sviðsljósinu hér á landi, en
hún hefur verið ein besta
knattspyrnukona Íslands síð-
ustu ár. Þrátt fyrir að vera að-
eins 24 ára gömul hefur þessi
öflugi varnarmaður spilað
84 A-landsleiki. Glódís hélt í
atvinnumennsku árið 2015 og
hefur síðan leikið í Svíþjóð.
Kristófer hafði spilað í neðri
deildum hér á landi og spilað
með HK í næstefstu deild árið
2016. Hann elti svo ástina yfir
hafið og hefur spriklað í neðri
deildum þar í landi.
38 SPORT 433 8. MAÍ 2020 DV
ÁSTIN HITTI BEINT Í MARK
Metnaðarfullar fótboltakonur og -menn hafa fundið ástina og nú er bara að vona að
ástin beri ávöxt og komandi kynslóðir beri fótboltagenið góða. Áfram Ísland!
Þ egar lífið leikur við knattspyrnufólk innan vallar fer boltinn oftar
en ekki einnig að rúlla utan
vallar, þannig hefur boltaást-
in blómstrað. Stelpurnar í A-
landsliði kvenna hafa margar
hverjar nælt sér í álitlega
menn með góða leggi.
Hér gefur á að líta huggu-
leg boltapör og nú er bara
að vona að ástin beri ávöxt
og litlir boltapeyjar og
markadrottningar líti dags-
ins ljós. n
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is