Íþróttablaðið - 01.12.1969, Page 18

Íþróttablaðið - 01.12.1969, Page 18
Anton Bjarnason, hinn margreyndi landsliðsmaður í kattspyrnu og körfu- knattleik kennir knattíþróttir, en Mínerva Jónsdóttir kennir stúlkum leikfimi. Það er rétt, hann kom að skól- anum í haust, og hefur tekið við allri knattleikjakennslu, en hana önnuðust áður, auk mín, þeir Karl Guðmundsson, Viðar Sím- onarson og Einar Ólafsson. Nú er aðsókn að íþróttakenn- araskóla Islands mjög mikil og umsóknir langtum fleiri en hægt er að sinna. Er ekki erfitt verk að taka nemendur í skólann? Jú, vegna þess að ég þarf að synja svo mörgum. Annars er það skoðun mín, að í kennaraskóla eigi að velja nemendur, og það val verði að vanda. Vitanlega verður að leggja til grundvallar ákveðið undir- búningsnám og jafnvel ákveðna lágmarkseinkunn. En einkunnin ein segir alls ekki allt um hæfni nemandans til að stunda nám í kennaraskóla og allra sízt íþrótta- kennaraskóla. Þess vegna er leit- að ítai'legra upplýsinga um þá, er hyggja á nám í Iþróttakenn- araskóla Islands. Síðan er valið úr umsækjendahópnum. Með þessu móti hefur tekizt að fá í skólann yfirgnæfandi fjölda nemenda sem eru heilbrigðir og hraustir og geta einbeitt sér að náminu, eru reglusamir og dug- andi kennarar og leiðtogar, sem óhætt er að treysta. Nú hefur íþróttasamband ís- lands hafið starfrækslu íþrótta- miðstöðvar á Laugarvatni. Hvern- ig lízt þér á þá starfsemi? Mjög vel. Ég þekki ekki ann- an stað á íslandi sem er betur fallinn til svona starfsemi en Laugarvatn. Náttúrugæði staðarins, nátt- úrufegurð og fjölbreytni í lands- lagi er mikil og býður fram mikla möguleika, sem hagnýta má í þágu íþrótanna. Auk þess sem staðurinn býr tiltölulega vel, hvað húsnæði snertir og í þróttamannvirki. Þegar byrjunarörðugleikarnir eru yfirstignir og íþróttafélögin og sérsamböndin hafa lært að hagnýta þessa aðstöðu, er ég þess fullviss að allir, sem til þekkja, fagna þeirri ákvörðun að gera Laugarvatn að íþróttamiðstöð. Er ekki tímabært að breyta lögunum um skólann, t. d. lengja námstímann? Jú, vissulega. Árið 1916 ritaði Jónas Jónsson í Skinfaxa um íþróttaskóla. Setti hann fram þá skoðun sína að slíkur skóli þyrfti að starfa í 9—10 mánuði á ári. r------------------------------------------------>. Vér erum umboðsmenn fyrir þýzku Dieselverksmiðjuna KLOCKNER-HUMBOLT-DEUTZ, stærstu Dieselverksmiðju í heimi, hin elzta og reyndasta í sinni grein. MARGRA ÁRA REYNSLA HÉR Á LANDI. HAMAR H.F. Elzta og reyndasta vélaverkstæfti landsins. Símar 2 2123 — 2 2125 v-------------------------------------------------) 74 fÞRÓTTABLAÐIÐ

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.