Íþróttablaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 7

Íþróttablaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 7
ADSTADAN HEFUR EKKI SKAPAD AFREKSFÓLKID — heldur eldmóður og úhugi Ekkert knattspyrnulið á Islandi hef- ur notið eins mikilla vinsælda um land allt og lið Akurnesinga á árunum milli 1950—1960 og margir eru beirrar skoð- unar að það lið sé það besta, sem við höfum eignast fyrr og síðar. Hvað sem segja má um Þessa fuilyrðingu, er það víst, að margir minnast gömlu kapp- anna frá Akranesi enn þann dag í dag og þeirra sigra sem Þeir unnu. Þótt Þeir kappar sem skipuðu liðið á gullaldar- árunum hafi allir og Það fyrir Iöngu lagt skóna á hilluna, 'hafa aðrir yngri tekið við og gera enn garðinn frægann með góðum sigrum og skemmst er að minnast þess að á s.l. sumri fór Is- iandsbikarinn enn einu sinni til Akra- ness. þangað sem hann kom fyrst árið 1951. Skagamenn segja, að þeir hafi ekki ihug á því, að skila honum aftur næstu árin, en hvort þeim tekst að standa við þá ætlun sína, mun koma í Ijós síðar. KN ATTSP YRNUBÆRINN Akranes hefur oft verið nefndur knatt- spyrnubærinn og það ekki af ástæðu- lausu, því bar hefur knattspyrnan um hálfrar aldar skeið verið vinsæl íþrótt og hafa bæjarbúar sett sitt stolt og metnað í að lið þeirra sé í fremstu röð. — Það eru liðin liðlega 50 ár síðan knattspyrn- an var fyrst iðkuð á Akranesi. Séra Friðrik Friðriksson, sem lagði grund- vöilinn að stofnun Vals árið 1911 var oft á Akranesi á þeim árum og hélt fundi fyrir drengi i Akraneskirkju. Oftsinnis minntist hann á knattspyrnu og það félag, sem hann átti hvað mestan þátt í að stofna. Hvatti hann unga drengi á Akranesi tii að æfa knattspyrnu og stofna með sér félag um þessa íþrótt. Árið 1922 komu nokkrir drengir saman, á aldrinum 10—13 ára og stofnuðu knatt- spyrnufélagið Kára. Þeir voru fátækir og fákunnandi um flest, sem að slíkri félagsstofnun laut ,en fengu til liðs við sig mætan mann, Sveinbjörn Oddsson, sem samdi fyrir þá lög fyrir félagið. Ekki er ætlunin að rekja nánar stofnun þess félags hér, en þess má geta, að tveim árum síðar stofnuðu aðrir dreng- ir á Akranesi annað knattspyrnufélag, sem í upphafi hét Njörður, en var skömmu síðar gefið nýtt nafn, Knatt- spyrnufélag Akraness. Bæði þessi félög starfa enn þann dag í dag og hafa lagt til knattspyrnumenn, sem margir hverj- ir hafa náð í fremstu röð. Árið 1934 er Iþróttaráð Akraness stofn að til þess að vera sameiginlegur tengi- liður alls íþróttastarfs á Akranesi, en árið 1946 er breytt um nefn, í Iþrótta- bandalag Akraness og undir því nafni hafa íþróttamenn frá Akranesi keppt æ síðan í landsmótum og öðrum keppnum utan bæjarins. Þess má geta, að fyrsti formaður Iþróttaráðs Akraness var hinn lands- kunni knattspyrnuþjálfari, Axel Andrés- son, sem um langt árabil ferðaðist um landið og kenndi knattspyrnu og 'hafa margir af okkar eldri knattspyrnumönn- um notið tilsagnar hans. ÍÞRÓTTAMANNVIRKI Þótt nú sé á Akranesi glæsilegur gras- völlur, einn sá besti hér á landi, með skemmtilegum áhorfendasvæðum, sem eru einstæð að því leytinu til, að þau eru grasi lögð, hefur ekki alltaf svo Akranes hlauí íslandsmelsfaratignina 1974, hér afhendir Ellert Schram, for- maður KSÍ sigurlaunin. 7

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.