Íþróttablaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 27
varlega i veginn þann, ef svo ber und-
;r. En hitt er svo annað mál að Beru-
fjörður, Hamarsfjörður og Álftafjörður
eru skemmtilegar sveitir, að fara um.
Upplagt að yfirgefa farartækið öðru
hvoru og fá sér göngutúr ef vel viðrar.
1 Austur-Skaftafellssýslu tekur við
töfraland hið mesta. 1 Lónssveit eru
fjöllin einstaklega litskrúðug, og þeir
sem eru svo vel akandi að vera á jeppa,
geta komist i kynni við einhverja mestu
furðuveröld landsins í Lónsöræfum.
Frá Almannaskarði blasir við í einni
sjónhendingu öll hin hrikalega suður-
brún Vatnajökuls, en neðan hennar sand-
ar og sveitir, Nesin, Mýrar og Suður-
sveit.^Og loks erum við komin i ör-
æfin, þessa sveit, sem ihefur verið heill-
uð einhvers konar ljóma í hugum svo
margra, en færri haft tækifæri til að
iheimsækja þar til nú að happdrættið
hefur sigrað sandinn og jökulelfurnar
miklu.
□ ÖRÆFASVEIT
Sveitin milli sanda hefur hún oft ver-
ið köiluð, Öræfasveit, enda naktir eyði-
sandar á báðar hendur. 1 þessari sveit
dugir ekki að aka í gegn og teyga í sig
náttúrufegurð gegnum bílrúðu. Hér er
líka gott að dvelja og fara i smáferða-
lög og skoða sig um. Skaftafell er að
sjálfsögðu sá staður, sem mönnum leik-
ur mest forvitni á að kynnast, en innan
þjóðgarðsins er fjöldamargt að skoða.
Þarna er aðeins einn hliðarvegur af
þjóðveginum, þeim ágæta hringvegi.
Þessi vegur liggur niður um Meðalland
og Landbrot (vesturendinn austan við
Eldvatn, austurendinn vestan við Skaft-
árbrú). Austan við Lómagnúp inn undir
Vatnajökli er Núpsstaðaskógur, unaðs-
reitur hinn mesti, en því miður er heldur
torsótt þangað og fá of fáir þennan stað
augum litið af þeim sökum. Á fjallið
Kaldbak upp af Síðunni er þægilegur
göngutúr og útsýni hið fegursta. Upp úr
Skaftártungu liggur svo Fjallabaksveg-
ur.
□ MÝRDALSSANDUR
AÐ HELLISHEIÐI
Austan Markarfljóts verða menn að
halda sig við þjóðveginn að mestu. Þar
er fáar útrásir hægt að gera. Ferð út
í Hjörleifshöfða er sjálfsögð ef skyggni
er gott. Gamli vegurinn yfir Höfða-
brekkuheiði er og skemmtileg Ieið, en
betra að vera viss um ástand vegarins
áður en lagt er út á hann.
Út í Dyrhólaey er alveg sjálfsagt að
koma, þ.e. ef leiðin þangað yfir sand-
inn er fær vegna vatnsagans. Þá er
athyglisverð leiðin að útrás Jökulsár
Framhald á bls. 46
VlNARBORG; Austurríki: Ný
sundföt hafn verifí kynnt. Þau
eru úr nýju efni mefí nýju
snifíi, sem á afí minnka mót-
stöfíu vatnsins og þannig afí
auka hrafíann. Á Evrópumeist-
aramótinu í sundi voru nokkr-
ar stúlknarvna í þessum nýju
sundfötum. Ulrike Tauber frá
Austur-Þýskalandi sést á mynd
unum rétt áfíur en hún demdi
sér út í laugina og setti í þessu
sundi heimsmet í jOO metra fjór
sundi, j,52,j2 mín
REUTLINGEN; V-Þýskalandi:
Hér er ekki beint hugsafí um
afí ná fram 'hrafía kappsunds-
fólksins, heldur mýkt og glœsi-
leik ungu kvennanna. Sam-
kvœmt fréttum frá tískufröm-
ufíum í baOfataifínafíinum er
nú talsvert meira framleitt af
gömlu gófíu sundbolunum, sem
hylja nektina öllu meira en
bikinibafífötin og „pjötlurnar“
frá í fyrrasumar gerfíu.
27