Íþróttablaðið - 01.11.1974, Side 15
Sauna
sem vilja, geta skvett dálitlu vatni á
steinana til að skapa svolitla uppguf-
un. Því er haldið fram að þurr hitaböð,
eins og milljónir hraustra og harð-
gerðra Finna, og raunar milljónir manna
um allan heim, fara í, endurnæri lík-
amann og fegri húðina, verki yngjandi
og gefi nýjan þrótt. Það, sem gerir
sauna-baðið svo miklu eftirsóknarverð-
ara en venjulegt gufubað er hið lága
rakastig, sem er aðeins 3—5%.
Við skulum nú líta á nokkra kosti
baðstofunnar, sem íþróttafólk þekkir
raunar margt af eigin reynslu, en aðrir
lesendur e t.v. síður:
Heilsusamlegur sviti
Eftir nokkurra mínútna dvöl í sauna-
baðinu, líklega um 10 mínútur eða svo,
er maður í svitakófi. Þetta er heilbrigt
og gott, því þurr hitinn opnar allar svita-
holur og þannig fær svitinn með öllum
sínum óhreinindum og úrgangsefnum,
frjálsa útrás.
Mátuleg útskolun nýrnanna
í grein í blaði ameríska læknafélags-
ins árið 1966 segir frá því hvernig sjúkl-
ingar með nýrnasjúkdóma í Betel Bent
Brigham-sjúkrahúsinu í Boston, fengu
30 mínútna saunabað á dag. Rannsóknir
sýndu, að ureanitrogen — þvagefni köfn-
unarefni — (úrgangsefni, sem venju-
lega skilst úr gegnum nýrun, en hleðst
upp í iíkamanum sem eitur í blóðinu,
þegar nýrun starfa ekki eins og vera
ber), breinsast nú burt með svitanum
í tvöföidu magni á við það, sem gerðist
án baðsins. Þá dró sauna úr kláðanum,
sem oft fylgir sjúkdómi þessum, hvarf
jafnvel smátt og smátt hjá nokkrum
þeirra.
Bætt og aukin blóðrás
Fjöldamörgum frásögnum ber saman
um að sauna örvi bióðrásina. Með svita-
kófinu fær húðin ferskan og ljósrauð-
an blæ. Blóðið streymir út í yfirborð
líkamans í miklu ríkara mæii en fyrr.
Baðið hefur frábæran hæfileika til að
vikka út æðarnar og bæta blóðrásina,
en það er einmitt lykillinn að góðri
heiisu.
Gefur bæði örvun og afslöppun
Don Dysdaie, kunnur íþróttamaður í
Los Angeles sagði: ,,Ég mæli eindregið
með saunabaði fyrir alla þá, sem óska
þess að vera vel á sig komnir líkamlega,
án tillits til þess hvort þeir eru íþrótta-
menn eða ekki. Sauna á sinn ríka þátt í
að bæta iþróttaafrek og fullkomna af-
slöppun eftir á. Þetta hefur nú orðið
mikla þýðingu fyrir fjölda bandarísks
íþróttafólks". Þá er vert að benda á
íþróttaárangur Finna bæði fyrr og síð-
ar, sem er hreint frábær, skyldi hann
ekki m.a. stafa af saunaböðunum?
Róar án nokkurrar devfingar
Fólk í öllum stéttum Finnlands litur
á saunabað sem kjörið ráð til að róa
taugarnar, slaka á spennunni og losna
við áhyggjurnar, stressið, sem síaukið
álag í störfum manna skapar. Líklega
gætu margir hætt að nota ýmsar töflur,
sem notaðar eru i sama skyni, ef þeir
notfærðu sér saunaböðin reglulega,
fengju sér 10 mínútna sauna, og notuðu
sér þannig aðferð náttúrunnar sjálfrar
til að auka aftur heilbrigði líkama og
sálar.
Fegrunarlyf líka
Þá er enn eitt, sem saunabaðið er tal-
jð gera mannslíkamanum til góða. Bað-
ið er nefnilega talið ákjósanlegt fegrun-
arlyf. Sauna hreinsar húðina og gefur
henni nýjan og ferskan blæ. Táningar
hafa oft áhyggjur af búð sinni, sem oft
er alsett unglingabólum. Konur hafa
líka áhyggjur af húð sinni, en hér bætir
finnska baðstofan sannarlega og fegrar.
Enn aðrir leita til baðsins vegna bak-
verkja, sárra og þreyttra vöðva.
Yerkar líkt og nudd
Saunabaðið hefur svipuð áhrif og örv-
andi nudd eða heilnæm hreyfing. Vegna
þess hversu endurnært og upplagt fólk
er að loknu baði, er það eftirsótt á
morgnana áður en starfsdagur hefst, eða
á kvöldin að lokinni vinnu, eða jafnvel
ef fólk vill verða upplagt til að skemmta
sér.
Eyðimerkurhiti baðsins verkar líkt og
nudd á þreyttan vöðva. Það á sinn þátt
í að draga úr áhrifum eða fjarlægja alls
konar leiðindi, sem fylgja daglega lif-
inu.
VARÚÐ — SAUNA!
En ekki er hægt að skrifa grein um
saunaböð öðruvísi en að benda á það
sem varast ber. Finnski læknirinn J.J.
Vikerjuuri skrifar um þessi atriði í bók
sinni „Finnska saunabaðið".
1 fyrsta lagi á saunabað og fullur magi
ekki saman. Þess vegna á aldrei að fá
sér saunabað strax að loknum málsverði,
það verður að bíða í a.m.k. 1—2 klukku-
stundir, helst lengur, eftir stóra máltíð.
Maginn þarfnast mikillar blóðsóknar eft-
ir máltíðir, en hitinn frá baðinu veitir
blóðinu út í yfirborð líkamans. Þannig
víkur blóðrásin frá því, sem best hentar
undir þessum kringumstæðum, frá mag-
anum út í yfirborðsvefina. Afleiðingin
verður gjarnan þyngslatilfinning. Af
sömu ástæðu ætti að forðast að drekka
mikið á undan saunabaði.
Fólk með of lágan blóðþrýsting og
mjög öran hjaftslátt ætti helst ekki að
fara í saunabað án þess að ráðfæra sig
við lækni áður. Frekari lækkun blóð-
þrýstingsins getur átt sér stað á meðan
á baðinu stendur, vegna þess hvað blóð-
streymið til húðarinnar eykst. Getur
þetta orsakað yfirlið.
Framrald á bls. 4 4
15