Íþróttablaðið - 01.11.1974, Side 18
Gamlar íþróttakempur:
JCSSÍ
OWCNS
SVARTI
MCTHAFIN
— eftir
Jósepsson
anai
Árið 1928 bar það við vestur i Banda-
ríkjunum, að skólakennari nokkur þurfti
að senda nemendur sína til íþróttaleiks,
og í því skyni valdi hann úr hæfustu
og fræknustu nemendurna. Til þess að
velja bestu hlauparana lét kennarinn
alla nemendur sína hlaupa í kringum
skólahúsið, og fjórir hinir fljótustu áttu
að taka þátt í kappleiknum.
Hverjir þessir fjórir voru, veit. ég ekki
um, þeir voru allir dáðir og hylltir, en
sá, sem siðast.ur varð, var laglegur og
góðlegur negrastrákur, sem óspart var
gert gys að fyrir þá sök, að hann var
aftastur allra. Þessi náungi hét fullu
nafni Jesse Owens.
Frá þeim degi gerðist fátt sögulegt í
lifi Jesse Owens. Hann varð stúdent,
stundaði síðan nám við tækniháskóla i
Cleveland og enn síðar við háskólann i
Ohio. Þar var hann enn nemandi Olym-
píuárið 1936.
Negrar eru ekki i miklum metum í
Bandaríkjunum og síst af öllu, ef þeir
hafa unnið það eitt til frægðar, að verða
síðastir i íþróttakeppni. Jesse Owens
var líka óspart hafður að skotspæni,
háði og spéi fyrir þetta afrek sitt, en
hann tók iþví karlmannlega, og lét það
ekki á neinn hátt á sig fá. Honum kom
ekki til hugar að reiðast og því síður
18
að afsaka sig. Hann ákvað að leggja
iþróttaiðkanir og íþróttakeppni niður ___
svo brosti hann bara að ertni skóla-
bræðra sinna, og bros hans var góðlát-
legt og vingjarnlegt.
En einn góðan veðurdag, nokkuð löngu
seinna, var Jesse Owens aftur á kepp-
endaskrá á amerísku íþróttamóti. Það
var landsmót amerískra stúdenta, og þar
er jafnan við ramman reip að draga,
því að stúdentar eru yfirleitt meðal
færustu iþróttamanna Bandarikjanna.
Jesse Owens var þá nýbakaður stúdent
og keppti i fjórum iþróttagreinum, 100
og 220 yarda sprett'hlaupum, 220 yarda
grindahlaupi og langstökki. 1 öllum þess-
um íþróttum keppti hann sama daginn
— á einni síðdegisstund — og það var
meira en lagt var á nokkurn annan kepp-
anda mótsins. Þá var Jesse ekki heldur
frægur orðinn — nema hvað hann var
frægur meðalo skólabræðra sinna fyrir
það að verða síðastur allra,
Fyrsta iþróttin, sem hanrí keppti i,
var 220 yarda hlaupið. Sprettskotið reið
af. I stað þess að húka eins og bjálfi
eftir í sprettholunum, þegar hinir hlaup-
ararnir þutu af stað, var Jesse hvað
viðbragðsfljótastur þeirra allra, og með
leifturhröðum, fjaðurmögnuðum skref-
um og undraverðum yfirburðum þaut
hann fram úr öllum keppinautunum.
Það var líkast Því sem þeir stæðu kyrr-
ir samanborið við Owens, og með hverju
skrefi, sem hann hljóp, lengdi hann bil-
ið milli sin og þeirra. Hann kom mörg-
um metrum á undan þeim i mark og
hljóp vegalengdina á nýjum heimsmets-
tíma.
En Jesse Owens lét ekki við það sitja.
Á þessari einu síðdegistund — dagstund,
er ýmsir skólabræðra hans væntu honum
háðungar og skammar — sigraði hann
í öllum íþróttunum, sem hann tók þátt
í. Og meira en það. Hann setti tvö ný
heimsmet og vann þriðju íþróttagreinina
með þeim árangri, að nákvæmlega nam
þáverandi heimsmet. Yfirburðir hans yf-
ir alla keppinautana voru svo ótrúlegir
og undraverðir, að það líktist fremur
ævintýri en veruleikanum sjálfum.
Það er mjög sennilegt, að þessi sigur
Jesse Owens sé einhver óvæntasti og um
leið glæsilegasti iþróttasigur, sem nokkru
sinni 'hefur verið unninn í Bandaríkjun-
um. Áhorfendurnir stóðu sem sturlaðir
af undrun, og Bandaríkin komust öll í
uppnám vegna þessara fádæma glæsilegu
sigra. Morgunútgáfur fréttablaðanna um
gjörvallan heim fluttu fregnir af þess-
um afrekum og- ihinu nýja undrabarni
iþróttanna. Þann dag var Jesse Owens