Íþróttablaðið - 01.11.1974, Qupperneq 24
Sjaldan fellur eplic
Á því leikur enginn vafi, að
lið Akumesinga var vel að ís-
landsmeistaratitlinum komið I
ár, þar sem liðið tapaði ekki
leik .Liðið er skipað gömlum
og reyndum leikmönnum, sem
eru hertir í baráttueldi liðinna
ára, en við hlið þeirra eru ung-
ir, efnilegir og lítt reyndir leik-
menn, sem þó margir hverjir
hafa skipað sér í fremstu röð
knattspyrnumanna hér á landi
og standa á þröskuldi landsliðs-
ins.
Það var einhvem tíma í sum-
ar, er ég renndi augunum yfir
þann 16 manna hóp, sem skipar
meistaraflokk eða 1. deildar
lið Akurnesinga í dag. Tók ég
eftir því, að þeir gömlu, sem
lagt hafa skóna á hilluna og
gerðu garðinn frægann á sín-
um tíma, eru drjúgir í því að
leggja liðinu til liðsmenn. Þar
á ég við, að synimir hafa fetað
í fótspor feðranna, þótt að vísu
hafi þeir ekki allir tekið stöðu
föðurins í liðinu.
Því fannst mér ekki úr vegi,
að heimsækja þá gömlu leik-
menn, sem eiga syni I hópnum
og spjalla lítillega við þá og
festa þá á filmu með syninum.
Þórður Jónsson:
KNATTSPYRNUSONUR
— OG STELPA LÍKA!
Fyrst heimsótti ég Þórð Jóns-
son, en hans sonur er Karl Þórð-
arson, sem hvað mesta athygli
hefur vakið á liðnu keppnis-
tímabili fyrir mikla knattleikni
og minnir hann óneitanlega tals
vert á föður sinn hér fyrr á
árum. Þess má einnig geta, að
fremsta knattspyrnustúlka Akra
ness og jafnvel landsins, Ragn-
heiður, er einnig dóttir Þórðar.
Þórður Jónsson á að baki 14
landsleiki, auk fjölda leikja
með liði ÍA. — Þórður sagðist
hafa séð velflesta leiki ÍA á
sumrinu og taldi að það hefði
verið vel að sigrínum komið.
Sagði hann að andinn innan
liðsins væri góður og þar væri
hvergi veikur hlekkur. Þá sagðí
hann að hann væri hrifnari af
þeirri leikaðferð, sem leikin
væri í dag, en þegar hann var í
þessu. Þórður þakkaði Kirby
þjálfara þann góða árangur,
sem náðist, sem hefði verið mun
betri, en hann hefði reiknað
með.
Sveinn Teitsson:
LAGÐI UL TIL
GÓÐAN KRAFT
Næsti viðkomustaður var á
Garðabrautinni hjá Sveini Teits
syni, en hans sonur er Árni,
ungur og efnilegur leikmaður
aðeins 18 ára sem leikið hefur
7 unglingalandsleiki og 12 leiki
með m.fl. ÍA.
Jú, ég hef elt flesta leiki liðs-
ins í sumar. Það er leikið öðru-
vísi, en þegar maður var í þessu,
sagði Sveinn og ekki eins
skemmtileg knattspyrna, þar
sem nú er meira um hlaup og
kýlingar. Þá er minna lagt upp
úr sókninni en áður en þess
meira upp úr vörninni. Það sjald
an, sem maður sér stutt spil,
minnir það mann á gamla daga
og yljar um hjartarætumar.
24
iinen^inii ininfdnm ‘iinufui unnpinuinn i9mu ■nvm