Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.11.1974, Qupperneq 44

Íþróttablaðið - 01.11.1974, Qupperneq 44
Sauna FramhaW á af Ws. 15 Sé hjartað veilt þarf einnig að gæta fyllstu varúðar. Saunabaðið er aukaálag á hjartað. Hjartað verður nú að auka dælustarfsemina til að örva blóðrásina til húðarinnar. Fyrir lélegt hjarta get- ur þetta orðið of erfitt. Rétt er einnig I Sumarauki fráOSRAM vegna gæðanna ■þessu tilfelli að ráðfæra sig við lækni áð- ur en viðkomandi fer að stunda sauna- böð. Þá ráðleegur Vikerjuuri læknir mönn- um eindree'ð að fara ekki i saunabað örbrevttir Eftir mikla og langvinna á- reynslu segir hann rétt að hvíla vel áð- ur en farið er í baðið. Einnig bendir hann á að því erfiðari sem vinnan hef- ur veríð. beim mun styttri tíma skuli vera í baðinu. Þurr hitinn í saunabaðmu dregur úr snennu brevttra vöðva. En -hann getur líka valdið ertingu og of miklum þurrki í slímhimnum og 'húð. Þá er ráðlegt að nota venjuleg húðsmyrsl eða ullarfeiti (lanólín) og skvetta vatni á heita stein- ana. Flestir sem iðka finnska saunabaðið, eru í því 15—30 mínútur. Hins vegar er því haldið fram að 10 mínútur komi að fullu gagni. Gætið iþess vel að sauna bað;ð sé vel lofthreinsað Venjulega er loftrás undir ofninum, eða hitatækinu sem notað er. 1 gegnum loftrásina berst frískt loft. 1 gegnum aðra loftrás í horn inu uppi undir loftinu, dregst óhreina loftið út. En hvað á að taka sér fyrir hendur í saunabaðinu? Bara leggjast niður og láta ,.hita eyðimerkurinnar" leika um sig? Vikerjjuuri gefur ýmis ráð. Hann hvetur menn að vera í sem minnstu, helst engu. Þeim sem finnst það nauð- synlegt, geta vafið sig handklæði, en alls ekki að vera í baðfötunum, þau falla of þétt að líkamanum. Hringi og aðra skartgripi, úr og gleraugu á að taka af sér. Skvettið ekki vökva á steinana í byrj- un baðsins og farið gætilega að þvi, svo ekki myndist tyrkneskt gufubað, því það á að forðast. Dveljið 15 mínútur eða svo í baðstof- unni. Farið síðan í kalda sturtu og hvíl- ist í nokkra stund á eftir. Þetta telur læknirinn ófrávíkjanlega reglu og mjög þýðingarmikla, áður en e.t.v. er farið inn í baðstofuna á ný í 10—15 mínútur. Menn ættu ekki að ætla sér minna en hálftíma í loftkælingu og steypubað. Þurrkið ykkur síðan með handklæði, Iátið loftið þurrka húðina á meðan hæg- ’fara kæling á sér stað Reynið að vera máttlaus á meðan á því stendur. Finnar taka saunabað sitt mjög há- tíðlega og ætlast til að gestirnir geri það sömuleiðis. Þeir hafa þá föstu venju að berja allan líkamann með hrísvendi, til þess að örva blóðrásina og auka á svit- ann. Byggt aö mestu á þýöingu Bjarna Bjarnasonar læknis úr „Life and Health“ sem birtist í Fréttabréfi um heilbrigö- ismál. J

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.