Íþróttablaðið - 01.12.1974, Blaðsíða 13

Íþróttablaðið - 01.12.1974, Blaðsíða 13
auövelt í framkvæmd í háskólanum, menn sagðir við nám, og fengu náms- styrki frá skólanum eða velvildarmönn- um skólanna. —■ Tvö mót á næstu árum langar mig að biðja ykkur að 'rifja upp. Það er fyrst Evrópumótið í Briissel 1950, í hverju einkum örn átti glæsilegan þátt í. —• Já, nú er það komið fram hjá Erni Eiðssyni, form. FRl, að hefði núgildandi stigatafla verið komin í gildi, hefði ég unnið tugþrautina. Þá hefðum við Is- lendingar átt Þrjá Evrópumeistara á sama móti. — Hvað er þér minnisstæðast úr þeirri dramatísku keppni við Heinrich? —• Ja, það er t. d. spjótkastið (9. greinin). Ég var þar fyrstur í kaströð og stigin milli okkar stóðu allglöggt. Hann ihafði t. d. unnið nokkuð á í stangarstökkinu, þar sem ég að vísu náði 3.40. Það var minn toppárangur í stangarstökki og þóttist ég alltaf góður er ég náði þeim árangri með mínum „sitjandi” stíl. — Sjálfsmorðsstíllinn var stíll Arnar kailaður, grípur Haukur fram í. — ,Já og ég á sem sagt að kasta spjót- inu fyrstur. Ég var í æfingabúningi en kasta og spjótið flýgur yfir 52 m. Það var mitt albezta í spjótkasti nokkru sinni. Allt er löglegt og þeir veifa hvítu flaggi. En svo tekur eitthvað að spila inn í framvindu mála. Það er eitthvert hik á mælingarmönnum. Mér er til- kynnt, að þetta ihafi ekki verið kast í keppninni, ég hafi verið að æfa mig. Auðvitað vildi ég láta telja þetta kast með, því ég var viss um að svona langt kast gæti ég ekki endurtekið. Ég benti á að flaiggi hafi verið veifað og undir- búningur að mælingu verið hafinn. En ég fékk engu um þokað og kastið var ekki talið með. Svo kastaði ég að mig minnir 47—48 m. — Þarna vantaði okkur kláran mann í fararstjórn, skýtur Haukur inn í. — Þannig atvik komu oftar fyrir, þar sem nauðsyn var eldklárs fylgdarmanns, sem hafði bein í nefinu og segði: Kastið var gilt og ekkert múður. — Já, en við skulum halda okkur við tugþraut EM 1950. Eftir þetta komu 1500 m hlaupið, lokagreinin. — Já, er það hóíst, heldur örn á- fram, er Heinrich það á undan í stigum, að ég hafði aðeins veika von um sigur í tugþrautinni. 1500 m. voru mér sem öðrum tugþrautarmönnum þarna kval- ræði. Hinir keppendurnir voru það lé- legir, að ég varð að fara fyrstur til að eiga nokkra von. Ég var orðinn dauð- þreyttur og það var komið kvöld, skoll- in á næturdimma og hlaupið þarna I skímu ljósa. Þetta var hálf óhuggulegt. Ég hljóp á sæmilegum hraða. En Þetta var ægiraun. Ég fann hvernig Heinrich elti mig, hvernig hann lagði ailt í að „hengja sig á mig“. Það hafði hann ein- sett sér, og það nægði honum til sigurs að sleppa mér ekki. Ég fann hvernig hann blés og stundi af mæði, og mér tókst ekki að slíta mig frá honum. Það voru aðeina rúmlega 100 metrar eftir. Þá fannst mér leikurinn vera tapaður og hætti við að gefa allt, sem ég átti eftir. Ég vissi ekki þá, hversu gersam- lega íhann var útkeyrður. Hefði ég tek- ið minn bezta endasprett og pumpað mig út, þá efast ég um, að hann hefði haft það í mark. En það sá ég ekki fyrr en eftir á. Á þessu augnabliki fannst mér leikurinn tapaður og ég hætti við sprettinn, ég sneri mér að honum, tók í hönd hans og samsíða hlupum við — eða réttara sagt hálfgengum — í mark. Ég þurfti að mig minnir að vera 20—30 m á undan horium til að sigra í þraut- inni, og eftir á sá ég að á þvi hefði ver- ið mikill möguleiki. Heinrich var svo gersamlega úttaugaöur og búinn, að hann gat ekki tekið á móti verðlaunum fyrr en næsta dag og var hálf meðvit- undarlaus í hálfan annan tíma. Þurfti að gefa honum súrefni og stumra yfir honum á annan hátt. Svona sögulegt var þetta. — Þú nefndir, Haukur, að skort hefði á hæfni fararstjóranna? — Já, iþá skorti reynslu ekki síður en okkur. Þetta voru allt ágætismenn, en á augnablikum, eins og Örn upplifði í spjótkastinu, þá vantaði eldkláran fylgdarmann, sem hafði bein í nefinu. Til að geta staðið í slíku þarf eldkláran málamann og málafylgjumann. Ég man eftir fleiri tilfellum, er skortur á slíkum mönnum sagði til sín. Það var t. d. í London 1948 er örn var í tugþrautinni þar og fékk ekki að mæla atrennuna fyrir langstökkskeppnina. Segðu þá sögu, Örn. — Já, það kom einhver brezkur hlúnkur og bannaði mér að mæla at- rennuna. Keppendur voru margir og þeir höfðu verið að mæla sina atrennu, en ég beið færis þess. Allt í einu kom þessi maður og sagði að nú hæfist keppnin, um frekari atrennumælingar yrði ekki að ræða. Ég fékk engu um þokað, og þetta ætlaði að verða afdrifa- ríkt. Æstur í skapi fór ég nokkra milli- metra fram fyrir i fyrstu tilraun og stökkið var dæmt ógilt. Það var stökk upp á 7.15—7.20 og slikt stökk hefði í sjálfri langstökkskeppni OL-leikanna dugað til 4. sætis. Og í annarri tilraun gerði ég aftur ógilt. Og nú voru góð ráð dýr. Eitt stökk eftir og 0 stig fyrir langstökkið blasti við. Ég varð að ná gildu stökki. Ég hóf atrennuna aftar og stökk upp á að gizka 20 cm frá plankanum. Stökkið mældist 6.84. Þetta bjargaðist því furðanlega í stöðunni, en á þessum tíma var langstökkið mín bezta grein. — En víkjum þá að þriggja landa keppninni í Osló 1951, þeirri frægu keppni, er við unnum bæði Dani og Norðmenn í frjálsum á Bislett og sama dag Svía í knattspyrnu í Reykjavík. Framhald á bls. 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.