Íþróttablaðið - 01.12.1974, Blaðsíða 28
ÞEIRRA NAFN ÓTTAST
Líklega hefur ekkert félag íslenzkt
náð öðrum eins árangri i keppni á er-
lendri grund og FH, Fimleikafélag
Hafnarfjarðar. — FH ihefur átt á að
skipa einstökum handknattleiksflokk-
um ,og er virt félag af handknattleiks-
mönnum um alla Evrópu, þar sem
sitja öll beztu handknattleikslið heims.
Gegn FH eig'a þessi félög aldrei fyrir-
fram unninn leik, langt í frá. Hand-
knattleiksmenn FH 'hafa séð áhorf-
endum hér heima fyrir góðri skemmt-
an gegnum árin, og margan risann að
velli lagt, enda þótt félagið sé ættað
úr tiltölulega fámennri byggð, a. m. k.
miðað við mörg þau stóru félög, sem
hingað koma á ári hverju.
Það hefur verið kraftur í allri sögu
FH, og liklega getur félagið ekki hvað
sízt þakkað góðri forystusveit fyrir
hversu vel hefur til tekist.
Félagið varð til 15. október 1929,
eða fyrir 45 árum rúmum. Eftir því
sem næst verður komizt, voru mættir
11 menn í leikfimihúsi gamla barna-
skólans þennan dag, og tilgangurinn
var að stofna Fimleikafélag Hafnar-
fjarðar, og eins og sjá má af nafni
félagsins, voru það fimleikar, sem
fyrst og fremst voru á stefnuskrá fé-
lagsins.
Þesir menn voru Hallsteinn Hin-
riksson, Kristján Gamalíelsson, Lárus
Gamalíelsson, Ottó Jónsson, Ágúst Jó-
hannsson, Sveinn V. B. Stefánsson,
Böðvar Eggertsson, Sigurður Gíslason,
Guðjón Sigurjónsson og Jóhannes Ein-
arsson.
Félagsstarfið fyrstu árin, frá 1929
til 1940 einkenndist fyrst og fremst af
fimleikaflokkum félagsins. Frá 1934
og lengi vel, jafnvel fram yfir 1%0,
var mikið fjör hjá frjálsíþróttafólki
FH, og frá 1940 hefur knattspyrnan
átt miklu gengi að fagna meðal fé-
lagsmanna — og i sumar vann lið FH
sig upp í 1. deild í knattspyrnu. Þá var
glæsibragur mikill yfir sundinu með-
an félagið hafði þá grein innan sinna
vébanda.
Þá megum við ekki gleyma þeirri
skrautfjöður, sem orðið hefur hvað
fegurst í hatti FH-inga síðari árin,
handknattleiknum. Það má segja að
handknattleikstímabilið 'hafi hafizt
fyrir alvöru um 1940 — og Það stend-
ur enn í blóma í dag — FH er efst í
1. deildinni og virðist ætla að gera
sitt bezta til að verja Islandsmeistara-
titilinn, sem félagið vann svo örugg-
lega í fyrra. Þá er FH eitt af 8 liðum
Evrópu, sem eftir er í Evrópubikar-
keppninni í handknattleik, hefur lagt