Íþróttablaðið - 01.12.1974, Qupperneq 17
ur og meS hörkúskoti sendir hann
knöttinn í mark Valsmanna við mikil
fagnaðarlæti áhorfenda.
Færist nú fjör í leikinn og Skaga-
menn herða sóknina allt hvað af tekur
og má nú segja að.þeir hafi tekið leik-
inn að mestu í sínar hendur. Valsmenn
þétta vörnina og hrinda hverri sóknar-
lotunni á fætur annarri. Völlurinn
gjörspillist af rigningunni svo illmögu-
legt er að leika. Áhorfendur hvetja
leikmenn óspart, en mörkin láta á sér
standa.
Á 68. mín gera Skagamenn enn eina
sóknarlotuna, en Valsmenn hrinda
henni og spyrna knettinum langt fram
á völlinn, fram undir vallarmiðju. Þar
er Dagbjartur Hannesson miðvörður
Skagamanna fyrir og sendir hann knött
inn rakleiðis til baka að marki Vals-
manna. Knötturinn svífur í boga að
markinu og áður en nokkur áttar sig
er hann I netinu og dómarinn dæmir
mark.
Áhangendur Skagamanna í hópi á-
horfenda kunna sér engin læti fyrir
fögnuði, Valsmenn sitja þögulir og
virðast ekki átta sig á því hvað hafði
skeð. Var það mögulegt, að Dagbjart-
ur hafi skorað frá miðju?
Sveinn Helgason miðvörður Vals kem
ur hlaupandi til Helga Daníelssonar
markvarðar og spyr hvernig þetta geti
eiginlega skeð. — Helgi biður hann að
vera rólegan, því að knötturinn hafi
farið yfir markið, svo hann skuli bara
hafa sig hægan. Bendir Sveinn þá á
knöttinn í marknetinu og Helgi á ekk-
ert svar. Leikmenn Vals hópast nú að
markinu og sjá að möskvi er rifinn á
þaki netsins. Gat það verið að knött-
urinn hafi farið í gegnum þetta gat?
Þeir neita að afhenda knöttinn til að
byrja leikinn á ný, nema dómarinn
komi til að sjá rifna möskvann.
Eftir dálítið þjark og rifrildi kemur
dómarinn loks, tekur knöttinn og still-
ir honum sjálfur upp á miðjunni og
flautar til leiks.
Hvorugu liðinu tókst að skora það
sem eftir var leiksins og dómarinn inn-
siglar sigur Skagamanna með því að
flauta leikinn af.
Sigurjón Jónsson formaður KSl af-
hendir Ríkharði Islandsbikarinn og næl
ir verðlaunapening í hvern leikmann
og áhorfendur hylla sigurvegarana.
Þannig lauk viðureigninni á Mela-
vellmum í það skiptið, en þar með var
sagan ekki öll.
Strax að leik loknum hópuðust menn
saman og deildu ákaft um hið um-
deilda mark. Sýndist þar sitt hverjum,
eins og gerist og gengur, um hvora
leiðina knötturinn hafi farið í mark-
ið, án þess að komast að neinni niður-
stöðu Voru menn alveg vissir í sinni
sök, allt eftir því með hvoru liðinu
þeir héldu.
Þegar dagblöðin komu út á þriðju-
deginum 8. september kom i ljós, að
þau voru heldur ekki sammála. Við
skulum að lokum líta í blöðin og heyra
hvað dómarinn og nokkrir leikmenn
liðanna höfðu um þetta mark að segja:
Guöjón Einarsson, dómari: „Ég at-
hugaði marknetjð áður en leikurinn
hófst og var það alveg heilt. Hvernig
það hefur rifnað er erfitt að geta sér
til um. Linuvörður gerði enga athuga-
send við síðasta mark Akurnesinga og
sjálfur sá ég ekki betur, en að það
væri löglega skorað.“
Hélgi Daníelsson, markvörður Vals,
sagði m.a.: „Ég misreiknaði ekki
knöttinn, sem Akurnesingar fengu sig-
urmark sitt úr. Ég sá að hann fór yfir
þverslána."
Ríkharöur Jónsson, fyrirliði Akur-
nesinga, sagði m.a.: „Ég fullyrði að
siðasta mark okkar var algjörlega lög-
lega skorað, enda hafði ég góða að-
stöðu til að fylgjast með því.“
Einar Hálldórsson, fyrirliði Vals
sagði nv.a.: „Ég er viss um það að síð-
asta markið var óiöglegt. — Knöttur-
inn féll næstum beint niður úr tals-
verðri hæð og vegna þess hve hann var
háll vegna rigningarinnar reif hann
einn möskvann í netinu. Á engan ann-
an hátt hefur netið rifnað.“
Já, það sýnist svo sannarlega sitt
hverjum og allir eru vissir í sinni sök.
En eitt er víst, að aldrei fæst úr því
skorið hvort markið var löglegt, eða
ekki.
Mikið var rætt og ritað um þetta
mark og deilur oft harðvítugar. Netið
varð meira að segja svo frægt, að eitt
blaðið stakk upp á því, að gatið yrði
skorið úr því og því komið á safn.
Tilgangur minn með því að rifja upp
þennan leik, er ekki sá, að vekja um
hann deilur á ný, enda eru ár og dagar
síðan menn sættu sig við orðinn hlut.
En hitt er, að ieikurinn er mér minn-
isstæðastur flestra þeirra leikja, sem
ég hef leikið um æfina. Og það eru
einmitt hin óvæntu atvik, sem gera
knattspyrnuna jafn vinsæla og raun
ber vitni, jafnt fyrir leikmenn sem á-
horfendur.
Valsmenn, Jón Þórarinsson, Helgi Dan og Halldór Halldórsson mótmæla markinu.
Guöjón Einarsson, dómari leiksins, táldi aö lhér vceri um mark aö ræöa.
17