Íþróttablaðið - 01.12.1974, Side 21

Íþróttablaðið - 01.12.1974, Side 21
IÞRÓTTIN ÞEIRRA, - ÞEIRRA Iþróttaþing benti á það fyrir nokkr- um vikum að senn mundi skilgrein- ingin milli atvinnumanns og áhuga- manns í iþróttum hverfa. Líklega er það ekki vonum fyrr, því hví skyldu toppmenn íþróttanna ekki hagnast á að sýna tugþúsundum og hundruð- um þúsunda getu sína. Þeir þurfa ekki svo lítið að hafa fyrir því að ná árangri sínum, — og ætli þeir að ná langt í íþróttum, þá verður lifi- brauðið gjarnan minna og lakara hjá þeim en félögum þeirra, sem að- eins stunda sína vinnu og minni hátt- ar áhugamál. Gustavo Thöni, 23 ára gamall son- ur hóteleiganda á N-ltalíu er gott dæmi um íþróttamann sem hefur not- að snilli sína til að hagnast á henni, um leið og hann skemmtir fólki með skíðalist sinni. Thöni varð fyrst frægur fyrir al- vöru í síðustu heimsbikarkeppni á skíðum, þar sem hann sýndi svo ekki varð um villst, að hann er mesti kappi heims í hinum ægilegu skíða- ugt frá einum stað til annars og keppa oft. Allt tal um „hið ljúfa líf“ hjá þessum íþróttamönnum er út í hött. Væri einhver þeirra veikur fyr- ir slíku, væri hann fljótur að falla í gengi. Það sem gildir er að halda sér í formi, ef menn eiga að halda 130 kílómetra hraða i brunbrekkunum. Raunar er Thöni ekki sá skíðamað- ur, sem haft hefur mestar tekjur á- hugaíþróttamanna. Karl Schrantz, Austurríkismaðurinn frægi, komst upp í 14 milljónir í árstekjur. Á sín- um tíma lét Avery Brundage -íæma hann frá keppni áhugamam.a, eins og menn muna. Hótaði Bruncjage skíða- mönnum öllu hinu versta, m.a. að fella niður Vetrarolympíuleikana, þar eð of mikil auglýsingamennska og dulbúin atvinnumennska hefði bú- ið um sig meðal skíðafólksins. En tímarnir breytast. Og nú virð- ist það senn staðreynd að iþrótta- mönnum verði ekki skipað á bása lengur, atvinnumenn og áhugamenn. Hitt er annað mál að þetta gerir stöðu smáþjóða eins og okkar Islend- inga, jafnvel enn vonlausari en fyrr, Thöni g&r um aO merki Spalding komi greiniiega l Ijós, — enda fær hann þegar í stórmótin er Kömið. á fimmtu milljón á ári fyrir vikið. — JBP — LIFIBRAUÐ brekkum Evrópu, ekki hvað sist í brunkeppninni þar sem hann æðir niður brekkurnar af ógnvænlegum hraða. Fyrir nokkrum árum fannst hinum unga Thöni það koma talsvert við pyngjuna að kaupa sér útbúnað. 1 dag hefur dæmið snúist við. Verk- smiðjur, sem framleiða skíði, skíðar fatnað og annan útbúnað, keppast hreinlega um að fá hann til að nota vöru sína, borga honum jafnvel stór- fé fyrir að gera það. Talið er að hann fái allt að 11 milljónir króna á ári frá þessum fyrirtækjum: ☆ Spalting-Persenico borgar honum 4,3 milljónir á ári fyrir að nota skiði fyrirtækisins. ☆ Fataframleiðandi einn borgar honum nær 3,5 milljónir á ári ☆ Look-Nevada borgar honum 2 milljónir fyrir að nota bindingar, aem sá framleiðandi sendir á markaðinn. ☆ Framleiðandi skíðastafa, Kerma, borgar honum 250 þúsund fyrir að sýna sig með stafina þeirra, — og svipaða upphæð borgar Cabé fyrir að hann ber gleraugu þeirra á þeysireiðinni niður brekk- urnar. Hreint ekki illa borgað fyrir hálfs- árs vinnu við það sem aðrir líta á sem þægilegan lúxus, því Thöni býr þetta hálfa ár á glæsilegu hóteli í Ölpun- um og nýtur bestu þjónustu. Skiðastjörnurnar eru annars eins og ’heljarstór skíðasirkus, ferðast stöð 21

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.