Íþróttablaðið - 01.12.1974, Page 45
Sitt af hverju frá ÍSÍ
□ ISl-horniÖ í útvarpinu
Oröið hefur að samkomulagi milli
RikisútVarpsins og íþróttasambandsins,
að í íþróttaþáttum útvarpsins á laugar-
dögum í vetur, verði ISf með framlag í
öðrum hvorum þætti, þar sem greint
verði frá og tekin til meðferðar ýmis
mál er varða íþróttahreyfinguna al-
mennt.
Stjórn fSf hefur ákveðið að skipta
með sér verkum i þessu sambandi á þann
veg, að einstakir stjórnarmenn taki þessa
þætti að sér til skiptis og fjalli um þau
viðfangsefni, sem þeim eru einkum
kunnug og efst eru á baugi hverju sinni.
□ Héraðssamband á Seltjarnarnesi
íþróttafélagið Grótta og Golfklúbb-
ur Ness á Seltjarnarnesi hafa látið í
ljósi vilja sinn á því, að stofnað verði
sérstakt íþróttahérað (iþróttabandalag)
fyrir Seltjarnarnes. Þessi félög heyra nú
skipulagslega séð undir UMSK.
Samkvæmt Iþróttalögunum frá 1940
annast fiþróttanefnd ríkisins um skipt-
ingu landsins i íþróttahéruð í samráði
við stjórnir fSf Og UMFI. — Samkvæmt
sömu lögum skal Iþróttanefnd og íþrótta
fultrúi vinna að því að allir aðilar um
•íþróttamál í hverju íþróttahéraði bind-
ist samtökum um hagsmuni sína. — Ósk
Seltirninga um stofnun eigin iþrótta-
héraðs er nú til athugunar hjá Iþrótta-
nefnd.
□ Iþróttir — Slys, nýr bæklingur frá
1S1
S. 1. sumar gaf ISÍ út bæklinginn
fþróttir — Slys. Hann er tekinn saman
af Jóni Ásgeirssyni fréttamanni en að
mestu saminn eftir hliðstæðum norskum
bæklingi. I þessu nauðsynlega og 'hand-
hæga hefti er f jallað um allskonar meiðsl
og slys, er verða í íþróttum og hvernig
þjálfarar og iðkendur sjálfir eiga að
bregðast við þegar slys og óhöpp ber
að höndum. Þarf ekki að fjölyrða um
hversu þýðingarmikið það er fyrir við-
komandi íþróttamenn, að rétt sé að stað-
ið í þeim efnum.
Fræðsluyfirvöld Reykjavíkur keyptu
þennan bækling til notkunar í öllum
íþróttasölum borgarinnar og áformað er
að dreifa honum í íþróttasali og á leik-
velli víðs vegar um landið.
Allir þjálfarar í hinum ýmsu íþrótta-
greinum ættu að eignast bæklinginn
fþróttir — Slys. Hann fæst á skrifstofu
fSf og kostar aðeins kr. 250.00. Nægjan-
legt er að panta hann í gegnum síma
og verður hann þá sendur gegn póst-
kröfu.
□ Iþróttamiöstöö ISI aö Laugarvatni
Starfsemi Iþróttamiðstöðvar fSI var
í hámarki s.l. sumar og urðu dvalardagar
samtals um 3500. Er það um 15% aukn-
ing frá árinu áður. Knattspyrnumenn
voru þar lang fjölmennastir, en einnig
voru þar iðkendur í Judo, handknattleik,
körfuknattleik og fimleikum. Iþrótta-
hóparnir voru frá Reykjavík, Akranesi,
Hafnarfirði, Kópavogi og Keflavík, ým-
ist frá félögum eða samböndum.
Höskuldur Goði Karlsson kennari, sem
verið hefur forstöðumaður fþróttamið-
stöðvarinnar frá því hún tók til starfa,
er nú í árs leyfi frá störfum og dvelur
ásamt fjölskyldu sinni í Danmörku, og
verður því ekki starfandi við Iþrótta-
miðstöðina á komandi sumri.
fþróttamiðstöðin mun væntanlega
starfa með svipuðu sniði næsta sumar og
undanfarin ár og er þegar farið að gera
fyrirspurnir um aðstöðu.
□ Sérsamböndin fá betra húsnæöi.
Með tilkomu nýbyggingarinnar í
Laugardal, sem er áföst við eldri skrif-
stofubygginguna, hefur skapast stórauk-
in og bætt starfsaðstaða hjá sérsam-
böndunum. fSf er eigandi fyrstu hæðar
hinnar nýju byggingar og hefur leigt
hana alla til sérsambanda. Með þessu
rýmkaðist einnig húsnæði í eldri bygg-
ingunni og hafa sum sérsambandanna
fengið þar aðstöðu.
KSf er hins vegar eigandi að 3. hæð
nýbyggingarinnar og er þar með sína
bækistöð.
Eftir þessar breytingar eru nær öll sér-
smaböndin með aðsetur í Iþróttamiðstöð-
inni 1 Laugardal.
45