Íþróttablaðið - 01.12.1974, Blaðsíða 46
ÍSLENZK Símar:
Framirald af bls. 23
týr Hafsteinsson í öðru sæti. I 3.—4. sæti urðu Roland og Guðmundur Jó- hannsson. 1 tvíliðaleik unglinga unnu Tómas og Hjálmtýr. 1 einliðaleik fullorð- inra sigraði Jón Sigurðsson og Nick Thomsen varð í öðru sæti. í 3.—4. sæti FYRIRTÆKI 1974-1975 82300 - 82302
urðu Gunnar Finnbjörnsson og Björg-
vin Jóhannesson.
Að lokinni keppni bauð Sverrir Mid-
jord formaður TBF okkur heim til sin
og var þar góð veisla. Þar afhenti Sverr-
ir fagra gjöf til BTl, handmálaðan postu-
línsdisk.
Fimmtudaginn 21. var haldið snemma
morguns með skipi til Þórshafnar og þar
skipt um skip og siglt með „Pride“ norð-
ur til Klakksvíkur, sem er á Borðey. —
Á þessari ferð höfum við séð allar Fær-
eyjar sem eru 18 talsins. Okkur var tjáð
að þær væru allar í byggð nema Litli-
Dimon.
Klakksvík er upprennandi bær með
u.þ.b. 6000 íbúa. Borðtennis hefur ekki
verið stundaður þar nema í eitt ár. Má
ætla að heimsókn íslenska borðtennis-
liðsins veki mikinn áhuga þegar frá líð-
ur.
Opið mót var haldið í Iþróttahöllinni
föstudaginn 22. nóv. og sigraði Jón Sig-
urðsson örugglega en í öðru sæti varð
Ólafur H. Ólafsson. 1 3.—4. sæti urðu
Jónas Kristjánsson og Ragnar Ragnars-
son. 1 tviliðaleik sigruðu Jón Sigurðs-
son og Ragnar Ragnarsson, en í öðru
sæti urðu Birkir Gunnarsson og Ólafur
H. Ólafsson. Yngri unglingar kepptu við
heimamenn og sigruðu íslensku ungling-
arnir 15—3.
Á laugardagsmorgun var svo siglt aft-
ur til Þórshafnar og þar var opið mót,
þar sem Gunnar Finnbjörnsson bar sigur
úr bítum, en Nick Thomsen varð í öðru
sæti. I tvíliðaleik sigruðu Jón Sigurðs-
son og Ragnar Ragnarsson. 1 keppni
yngri unglinga sigraði Tómas Guðjóns-
son og í tvíliðaleik unglinga sigruðu Þeir
Tómas og Guðmundur Jóhannsson.
Um kvöldið bauð ISF til kvöldverðar-
boðs og voru þar afhent verðlaun. Þar
afhenti Sigurður Guðmundsson gjafir til
færeysku borðtennisnefndarinnar og
þakkaði fyrir höfðinglegar móttökur.
Gjöf BTl voru veggplattar Einars Há-
konarsonar í tilefni af þjóðhátið. Eftir
matinn bauð Eyðfinn Lamhauge öllum
iheim til sín.
Sunnudaginn 24. nóv. var Þórshöfn
kvödd ög lagt á stað til Islands eftir
ánægjulega og vel heppnaða heimsókn
til vina okkar í Færeyjum.
46
Muhammad Ali (Cassius Clay) segir:
BULLWORKER SKAPAR
MEISTARANN!
- og hann hefur
reynsluna
0«r Sir;
Sincer*Xy,
__ / ) ALT
CASSIUS UPPLÝSIR ÞJÁLFUNARLEYNDARMÁL
„Alltaf fyrir keppnir þjálfa ég mig með Bullworker tækinu, þetta undra-tæki
skapar meistarann."
Allir iþróttamenn vita að rétt þjálfun er hálfur sigur. Þegar meistari eins og
Cassius velur sér Bullworker tæki til þjálfunar, getum við verið vissir um
að tækið skilar þeim árangri, sem honum líkar — og eru það dágóð meðmæli
með Bullworker tækinu.
Bullworker er bæði tog- og þrýstitæki — Þjálfar upp flest-alla viljabundna
vöðva líkamans — stuttur æfingatími, aðeins ca. 5 mínútur á dag.
Fáðu strax nánari upplýsingar um þetta undratæki Bullworker, og æfinga-
kerfið sem því fylgir. Þú þarft aðeins að hringja í síma 44440 hvenær sem
er sólarhringsins (sjálfvirkur símsvari) segja nafn þitt og heimiilisfang, og
munum við senda þér ókeypis litmyndabækling.
PÖ*tverzl. HEIMAVAL Box 39, Köpavpgi Síml 44440