Íþróttablaðið - 01.08.1983, Qupperneq 16
Ásgeir í Stuttgart-búningnum,
svipast um eftir samherja.
sunnudögum, og það er þeirra
að reyna að semja um leikdaga
sem henta vel þeim stóra hópi
sem sóttur er í landsleiki frá er-
lendum liðum. Eg veit að það er
erfitt um vik því tímabilið á ís-
landi er svo stutt, en það hlýtur
að mega gera betur.“
Samningur Asgeirs og
landsleikir í náinni
framtíð.
Það kom ekki fram hjá Ás-
geiri hér að framan hvernig
samningi hans við Stuttgart
væri háttað gagnvart þátttöku í
leikjum fyrir land og þjóð, svo
hann er inntur eftir því. Kom
þá fram að í samningi Ásgeirs er
engin klásúla sem skyldar Stutt-
gart til að láta Ásgeir lausan í
landsleiki. Þetta stafar af því að
Ásgeir hélt utan í atvinnu-
mennsku löngu áður en KSÍ hóf
að setja slíkt skilyrði inn í
16
samninga þeirra leikmanna sem
ganga til liðs við erlend félög.
Vissulega slæmt og Ásgeir
nefndi sem dæmi að ef Stuttgart
hefði meinað Didier Six að
leika með franska landsliðinu
þá hefði verið hægt að sekta fé-
lagið um verulega upphæð. En
hvernig eru viðhorf Ásgeirs
gagnvart því að leika með lands-
liðinu ef/þegar til hans verður
leitað?
„Ég er alltaf tilbúinn að leika
fyrir ísland þegar eftir því er
leitað og ég á heimangengt.
Meiddur spila ég að sjálfsögðu
ekki, né heldur í sumarfríi mínu
því ég hef slæma reynslu af
slíku, enda er það ekki rétt
gagnvart áhorfendum, meðspil-
urunum eða sjálfum mér.“
Ásgeir Sigurvinsson hefur
leikið 31 A-landsleik fyrir fs-
land, þar af fjórum sinnum sem
fyrirliði, og gert 5 mörk. Auk
þess lék hann 7 unglingalands-
leiki (16 — 18 ára) á sínum tíma
og skoraði fjögur mörk í þeim.
Sólskinsströnd og
íslenskur suddi
í sumarleyfinu.
Það var alls ekki tilgangur
þessa spjalls við Ásgeir Sigur-
vinsson að rifja upp knatt-
spyrnuferil hans. Það væri að
æra óstöðugan því íslenskir
þlaðalesendur vita allt um lit-
ríkan feril Ásgeirs og afrek á
knattspyrnusviðinu. En úr því
hann er staddur hér heima í
sumarleyfi, er ekki úr vegi að
spyrja hann hvernig hann eyði
því fríi sem hann fær frá hinni
kreíjandi og bindandi atvinnu
sinni, knattspyrnunni.
„Það er einungis hægt að tala
um frí frá knattspyrnunni tvisv-
ar á ári, um jólin og svo sumar-
fríið. í báðum tilfellum hef ég
alltaf notað tækifærið og
skroppið til íslands til að heim-
sækja ættingja og vini. Á sumrin
bregð ég mér einnig á sólar-
strönd og nýt þess á að „sleikja
sólina“ við saltan sjó og bara
slappa af. Eleima eru nokkrir
fastir liðir eins og t.d. laxveiði-
túrar með góðum félögum.
Veiðifélagið hefur síðast liðin 5
ár farið í Víðidal og eru þær
ferðir jafnan ákaflega eftir-
minnilegar. Svo spila ég golf og
þegar ég er heima í Eyjum
skrepp ég stundum í lunda.
Annars reynir maður bara að
halda tengslum við fjölskyldu
og vini með heimsóknum og