Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.08.1983, Blaðsíða 50

Íþróttablaðið - 01.08.1983, Blaðsíða 50
hefur gengið, og sama má einnig segja um Blikana. Þeir verða þó sterkir í seinni hlutanum þegar þeir hafa náð valdi á breyttu leikskipulagi. Lið ÍA og ÍBV eru aftur á móti sterkari en ég hafði reiknað með. Takmarkið hjá okkur er að falla ekki og það á að takast. Við vorum heppnir með þjálf- ara þegar við fengum Martin Wilkinsson. Hann er mjög góð- ur og hefur komið skynsamlega inn í hlutina miðað við þann tíma sem hann hefur haft.“ Þátttaka Jóns Oddssonar í frjálsum íþróttum. Önnur aðalíþróttagrein Jóns Oddssonar hefur í gegnum árin verið langstökk. Jón vakti ung- ur athygli fyrir að hlaupa hratt og stökkva langt, en það var engin aðstaða til frjálsíþrótta- æfinga fyrir vestan svo það fór lítið fyrir æfingum í hlaupum og stökkum hjá Jóni. Fyrsta frjálsíþróttamótið sem Jón tók þátt í var héraðsmót á Núpi árið 1975. Jón var þá 17 ára gamali og keppti fyrir íþróttafélagið Gretti á Flateyri fyrir tilstilli Gunnars Guð- mundssonar. Ekki er hægt að segja annað en að árangurinn hafi verið ágætur hjá unglingi sem aldrei hafði æft stökk. Jón var annar í langstökki með 6.55 m og vann hástökkið er hann vippaði sér yfir 1.80 m. Næstu árin tók Jón alloft þátt i frjáls- íþróttamótum, svo sem héraðs- mótum og bikarkeppni FRI og þá á vegum HVÍ. Ekki var al- varan mikil á bak við þátttök- una, bara skroppið og keppt en engar æfingar á milli móta. Jón minnist þess að athygli vakti á Meistaramóti Islands innanhúss 1976 eða '11, að „sveitamenn að vestan“ náðu góðum árangri og verðlaunasætum. Það voru þeir félagar úr Menntaskólanum á ísafirði, Jón og Angantýr Valur Jóhannsson, sem voru sveita- Knattspyrnumaðurinn, frjáts- íþróttamaðurinn, sundmaðurinn, körfuknattleiksmaðurinn og fim- leikamaðurinn Jón Oddsson. mennirnir. Angantýr vann 50 m hlaupið og Jón varð annar í langstökki með 6.94 m, á eftir Friðriki Þóri Óskarssyni hinum góðkunna stökkvara úr ÍR. Breyttar aðstæður. Eftir að Jón flutti til Reykja- víkur til framhaldsnáms breytt- ust mjög allar hans aðstæður til íþróttaæfinga. Hann hafði meiri tíma, fékk tilsögn sem í sumum greinum var sú fyrsta sem hann fékk í viðkomandi íþrótt. Ekki sneri Jón sér þó að langstökkinu af fullum krafti strax. Hann lagði áfram mesta áherslu á knattspyrnuna, en hélt sér við á veturna með körfuknattleik. Árið 1979 tók Jón ekki þátt í frjálsíþróttamótum, en árið eftir fór hann aftur að láta að sér kveða sem góður stökkvari. Hann átti best 7.14 m utan- húss, en bætti það er hann sigr- aði í Kalott-keppninni sem þá var haldin hér á landi. Jón stökk þá 7.21 í síðasta stökki sínu, en næstir með 7.19 og 7.17 komu menn sem áttu fyrr mun betri árangur en Jón, 7.40—7.60 m, þannig að afrek Jóns var mikið og sigurinn sætur. Jón fer að æfa frjálsar og setur met sem ekki er staðfest. í kjölfar furðu góðs árangurs Jóns í langstökki og fleiri grein- um var lagt hart að honum að gefa knattspyrnuna upp á bát- inn og leggja frjálsar íþróttir fyr- ir sig. Hann þráaðist við lengi vel, en þar kom að Jón hóf loks að æfa reglubundið og virkilega leggja sig fram um að verða góð- ur frjálsíþróttamaður, en ekki bara langstökkvari í hjáverkum. Þetta gerðist veturinn 1980—81 og Jón lagði hart að sér við æfingarnar. Það skilaði sér á Meistaramótinu innanhúss þeg- ar Jón stökk 7.27 m, sem var betra en gildandi íslandsmet. Ekki fékkst það þó staðfest, því Jón var á milli félaga. Hann hafði keppt fyrir KA á Akureyri fyrstu árin eftir að hann kom „á mölina“, en var að skipta yfir í KR, félagið sem hann hefur keppt fyrir síðan. Sannarlega furðulegt að Islandsmet fáist ekki staðfest vegna slíkra smá- atriða. Jón setti síðar íslands- met 7.26 m þegar hann bar sig- ur úr býtum á opna norska meistaramótinu, en sagðist sjálfur aldrei hafa litið á það sem met, þar eð hann hafði stokkið lengra áður. „Boðhlaupssveit skipuð langstökkvara, lang- hlaupara og öðrum jólasveinum.“ Þegar hér var komið sögu var Jón kominn í fremstu röð lang- 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.