Íþróttablaðið - 01.08.1983, Blaðsíða 76
skyldum sínum. En á miðju
sumri var Rono gripinn heimþrá
og ætlaði heim — alveg sama
hvað öllum samningum viðkom.
Tók það langan tíma fyrir Mike
Boit sem var fararstjóri Kenía-
mannanna, að telja Rono af því
að fara og gera honum ljóst að
hann varð að standa við samn-
inga sína.
Um þetta sagði Henry Rono: í
Kenía er fjölskylda mín og vinir.
Ég verð því að komast heim
a.m.k. öðru hverju. Ég veit að ég
fer úr æfingu við það, en það
gefur mér sálræna krafta og þeir
eru mér ekki minna nrikilvægir
heldur en gott líkamsform.
Henry Rono er einn þeirra
Afríkuhúa sem auðgast hefur
sæmilega á íþróttum, þótt auðæfi
hans séu ekki mikil á mælikvarða
Vesturlandabúa. Alla fjármunina
sem hann vann sér inn í fyrra og
hitteðfyrra notaði hann til þessað
kaupa sér þrjá vörubíla og hefja
vörubílaútgerð í heimalandi sínu
og gengur hún með miklum
ágætum.
Kipchoge Keino notaði líka
vel peningana sem hann vann sér
inn með þátttöku í langhlaupum.
Hann keypti sér búgarð í Kenía
og kom sér upp kúabúi og hefur
af því ágætar tekjur. Hann er
dæmið sem ungu mennirnir hafa
fyrir augunum — íþróttaframi
þýðir velgengni í lífinu.
Afríkubúar ætla sér mikinn
hlut á Ólympíuleikunum í Los
Angeles næsta sumar. Meðal
þeirra eru bæði Henry Rono og
Mike Boit. Boit hefur til þessa
verið langhlaupari en einbeitir
sér nú að 800 og 1500 metra
hlaupi. Slíkt þykir dálítið undar-
legt og í mótsögn við það sem
algengast er í íþróttum. Boit er
nefnilega orðinn 34 ára og ætti
því heldur að leggja áherslu á
lengri hlaup, ef farið væri eftir
„formúlunni“. En Boit blæs á
allar kenningar og er sjálfur full-
viss að hann muni standast yngri
mönnum snúning á sprettinum.
Henry Rono æfir hins vegar fyrst
og fremst með keppni í 5000
metra hlaupinu í Los Angeles í
huga og fáum dettur annað í hug
en að hann muni verða í fremstu
röð, ef ekki sigurvegari í þeirri
grein, a.m.k. ef hann nær að ein-
beita sér við æfingarnar.
Og meðal þeirra sem ætla sér á
leikana í Los Angeles er Amos
Biwott sem sigraði í 3000 metra
hindrunarhlaupi á leikunum
1968. Biwott er nú 35 ára og
vinnur sem verkamaður við
vegagerð í heimalandi sínu og
eru daglaun hans upphæð sem
svarar til 16 íslenskra króna. „Ég
er enn ungur og mér mun takast
að komast á Ólympíuleika enn
einu sinni,“ hefur Biwott sagt og í
sannleika sagt er ekki ótrúlegt að
honum takist það.
Félagsheimilið Búðardal
Opið júní-september 9-21
október-maí 8-23.30.
Hótel Búðardalur
Eins og tveggja manna herbergi
og svefnpokaaðstaða.
Opið allt árið — sími 93-4154
Velkomin til Búðardals
j